""nýmyndun" hafíss??"

Hvað skildi vera átt við með "nýmyndun" hafíss??. Er þetta nýrekin ís frá Grænlandi ??? Hvað um hina margumtöluðu hlýnun jarðar?? Ef hafís er að myndast bara upp úr þurru þarna norðnorðvestur af Kögri ??? Kært kvödd
mbl.is Greindi nýmyndun hafíss
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Já þó ekki sé"

Já þó ekki sé verið að "storka" ja hverju veit ég ekki. En á morgun er föstudagur og meira segja þrettándi dagur janúar Nú ef við bætum einum við tólf þá er það líka þrettán. Ég held að Reykvíkingar já og kannske fleiri ættu að halda sér heima og hlusta á Ellý eða Eyvöru synga??? um sandinn. Fara allavega ekki út  fyrr en búið er að "sanda" vel. Kært kvödd
mbl.is Sandað í Reykjavík á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"minnst bera úr býtum "

Í þessari frétt segir:"Flest loforð um bætt kjör til handa þeim sem minnst bera úr býtum hafa verið svikin " Í annari frétt segir:  "Félagið telur ólíðandi með öllu að kjarasamningar skuli vera í uppnámi vegna vanefnda stjórnvalda og skorar á stjórnvöld að standa við gefin loforð" Þetta eru hvoru tveggja tilkynningar frá sitthvoru Verkalýðsfélaginu til sjórnar "hinnar vinnandi stétta" eins og ég sá þessa ríkistjórn einusinni kallaða.

 

 

Og þrátt fyrir miklar upphrópanir á sínum tíma frá forustu ASÍ er þetta nú orðið að  smásuði. Getur sæmilega skynsamur maður sem man lengra en tvö eða þrjú ár aftur í tíman gert sér í hugalund hvernig þau Jóhanna og Steingrímur væru búin að láta í ræðustólum nú væri hér "hægrisjórn" Já og vissir drengir í ASÍ . Þá væru þeir ekkert að velta sér upp úr kauphækkun á næstunni. Þá myndi allt vera logandi í verkföllum. Sjaldan hefur tilgangsleysi stjórnmála og sleikjuháttur sumra svokallaðra verkalýðsforinga verið jafn berlegur

 

 

 

Það var æpt fyrir nokkrum misserum SVIK VIÐ KJARASAMNINGA "En nú er söngurinn hljóður og horfinn,. aðeins hljómar frá bjöllunnar klið" Eins og þægum drengjum ber að vera. Mamma Jó og pabbi Stein búin að siða óþekktar ormana sína. Og allt komið í frið og spekt.  Eldra fólk sem "slysaðist" til að veita þessu liði brautargengi verður nú illilega fyrir barðinu á þessu áttavillta "Íhaldspakki" sem telur sig vera á vinstri kantinum en gengur afturábak. Og allt sem það gerir  eru skref afturábak  Kært kvödd


mbl.is Flest loforð verið svikin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 12. janúar 2012

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 91
  • Frá upphafi: 537407

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband