"algerum ólíkindum "

Mér finnst það með algerum ólíkindum hvernig sú tæra stendur að þessum málum. Það á "að reyna" að leiga þyrlu fyrstu mánuði næsta árs. En þá fer TF-LÍF í umfangsmikla skoðun.

En svo er það rúsínan í pylsuendanum ef svo skáldlega má að orði komast. Hér vitna ég í greinina og eru leturbreitingar mínar:

"Fyrir liggi að TF-LÍF fari í umfangsmikla skoðun í janúar á næsta ári sem gæti tekið tvo til þrjá mánuði. Sú skoðun hafði verið áformuð nú í haust en var frestað þar sem ekki þótti viðunandi að aðeins ein þyrla væri til taks í langan tíma. TF-GNÁ þurfi hins vegar að fara í stutta skoðun í ágúst sem taki fáeinar vikur".

Aðeins einn dagur með eina þyrlu er á mjög gráu svæði. Og í ágúst, er talað um, er einn umferðarríkasti mánuður ársins Svona til hjálpar aumum fjárhag LHGÍ finnt mér að þetta lið sem tekur stórfé frá Ríkinu fyrir nefndarstörf (þótt það sé í ágætlega launuðum störfum fyrir) ætti að gefa LHGÍ launin fyrir þau. Verið ávallt kært kvödd


mbl.is Gæslan vill leigja þyrlu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"nægir peningar"

Það eru til nægir peningar þegar um einhverjar nefndarskipanir er að ræða. Þetta er með hreinum ólíkindum. Yfirleitt einhverjir bitlingar fyrir fv stjórnmálamenn. Það væri gaman fyrir okkur þessa sauðsvörtu (sem aldrei komast með tærnar inn í svona nefnd hvað þá hælana) að vita hve marga milljónir/milljarða við eru að borga fyrir þessskonar, akkúrat núna. Ávallt kært kvödd
mbl.is Auðlindanefnd skipuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 8. júlí 2011

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 79
  • Sl. sólarhring: 79
  • Sl. viku: 90
  • Frá upphafi: 537404

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband