"undirheimar Reykjavíkur"

Já undirheimar Reykjavíkur já eða Íslands er orðin harður heimur. Og þrátt fyrir andstöðu sumra framsóknarmanna verður að fylgast með aðstreymi óæskilegar glæpamanna. Og það fólk þykist bera fyrir brjósti réttindi innflytenda (sem ég svo sannarlega geri) ætti að athuga hvaða skaða slíkir menn gera hinum mikla meirihluta innflytenda sem hér eru í heiðarlegum tilgangi. Ég held að Kópavogs framsókin ætti að athuga það.

 

Ég var dolfallinn yfir málfutningi Landlæknis í Kastljósi í gær. Er maður sem ekki hefur meira vit á fíkniefnavandanum (sem virkilega er heilbrigðisvandamál) hæfur í fyrrgreint embætti. Veit hann ekki að uppeldi vit eða neitt í þá átt hefur bara ekkert með málið að gera. Ég er aðeins eldri en tvævetur Og á mínum sokkabandsárum í lífinu voru undirheimar Reykjavíkur nokkrir smáþjófar sem höfðu vissa  lækna sem skrifuðu "rebba" eins og það var kallað. Nú sumir höfðu það góð sambönd að þeir voru að selja glas og glas. Og þá uppúr 1950 voru vissir læknar sem gægt var að ganga að Stundum voru þetta gamlingar sem höfðu lítið að gera.

 

Bjórkassi, lúðuflak var stundum gjaldmiðillinn hjá okkur trollaraköllunum. En satt að segja brá manni þegar þessi umræða komst í hámæli nú. Mér datt ekki í hug að læknadópið væri svona algengt. Datt ekki hug að stærðargráðan af því í eiturlyfjaheiminum væri svo stór. Ég heyrði aðeins í Lýð Árnasyni í útvarpinu í dag. Hinum satt að segja fjölhæfa lækni. Þar kom hann með athygli verða hlið á málinu. Getur verið að sumum læknum sé haldið í gíslingu af óprúttnum glæpamönum ? Eitthvað er skrítið í þessu máli Kært kvödd


mbl.is Einn í gæsluvarðhald og annar hefur afplánun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"mjög á móti "

Ég er mjög á móti mannréttindabrotum hvar sem er í heiminum. En ætli Össur hafi aldrei heyrt orðatiltækið:"maður líttu þér nær" 
mbl.is Baðst afsökunar á Falun Gong-máli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Þetta er rangt."

Þetta er rangt. Það voru ekki 90 % póstmanna sem sögu já. Það voru 90 % af rétt rúmum helming póstmanna sem sögðu já
mbl.is 90% póstmanna sögðu já
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

" Stórtækur kampavíns þjófur "

Stórtækur kampavíns þjófur. Ef 24 flöskur af kampavíni er stórttækur þjófnaður hvar eru þá milljarðar af peningum sem stolið var af þjóðinni á þjófnaðarskalanum ? Ég er ekki að bera blak af þjófum hvorki kampavíns eða öðrum en ég bara spyr ? Kært kvödd
mbl.is Stórtækur kampavínsþjófur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 27. maí 2011

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 79
  • Sl. sólarhring: 80
  • Sl. viku: 90
  • Frá upphafi: 537404

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband