13.5.2011 | 21:02
"Fósturland vort hálft er hafið II"
Ég veit að ég tala eiginlega fyrir tómum eyrum þegar ég er að "messa" þetta um Sjómannadaginn En ég vil meina að þetta nafnabrengl séu hrein svik við hinn upprunalega tilgang. Í því sambandi er kannske rétt að rifja upp ýmis skrif á bernskuárum "Sjómannadagsins"Svona skrifar t.d. vikublaðið "Fálkinn" um Sjómannadaginn 1938:
"Það má undarlegt heita, að ekki skuli fyr en nú hafa verið efnt til sjómannadags" hjer á landi, þegar litið er til þess að íslendingar eru flestum þjóðum framar sjómannaþjóð. Engin einstök íslensk stjett hefur um langt skeið gefið þjóð sinni svo mikil verðmæti sem hún.
Og það hefur kostað hana miklar mannraunir að höndla þau. Ósjaldan hefur Ægir heimtað sínar fórnir. Stór er sú fylking ungra og hraustra Islendinga, sem fengið hafa hinstu hvíldina í hafsins djúpi.Ef til vill er mannfallið hjá íslensku þjóðinni af völdum Ægis meira en mannfallið meðal hernaðarþjóðanna, er heyja stríð hver gegn annari." Tilvitnun lýkur Skúli Skúlason var ritstjóri Fálkans er þetta var skrifað. En greinin var ómerkt.
©J. Viana
Höfuðtilgangur var eins og Guðmundur Oddsson einn af frumkvöðlunum lýsir í grein um daginn í Sjómannablaðinu Víking 1939:
"Starfssvið dagsins víðsvegar um land er með mjög líku móti. 1 reglugerð Sjómannadagsins hér, sem er í 11 greinum, segir meðal annars:
1. gr. Einn dagur á ári skal helgaður sjómannastétt landsins, er nefnist Sjómannadagurinn.
2. Takmark Sjómannadagsins sé:
a.) Að efla samhug meðal sjómanna og hinna ýmsu starfsgreina sjómannastéttarinnar.
b.) Að heiðra minningu látinna sjómanna og þá sérstaklega þeirra, er í sjó drukkna.
c.) Að kynna þjóðinni lífsbaráttu sjómannsrns við störf sín á sjónum.
d.) Að kynna þjóðinni hve þýðingarmikið starf stéttin vinnur í þágu þjóðfélagsins.
e.) Að beita sér fyrir menningarmálum varðandi sjómannastéttina, er auka gíldi hennar
3. gr. Þessu takmarki sé náð með: ræðum, útvarpserindum, ritgerðum í blöðum og tímaritum, samkomum sýningum, íþróttum og öðru því, sem stéttin getur vakið eftirtekt á sér með.."Tilvitnun lýkur,
©J. Viana
Mig er farið að gruna að "menningarvitar" úr vissu póstnúmeri séu farnir að hafa þarna áhrif En þetta eru bara mínar hugleiðingar skreyttar gömlum blaðagreinum um "Sjómannadaginn"
©J. Viana
Með vinsemd og virðingu fyrir því sem það á skilið
Bloggfærslur 13. maí 2011
Um bloggið
Ólafur Ragnarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
kolbrunerin
-
gudruntora
-
gmaria
-
dala
-
nafar
-
valmundur
-
johannesgylfi
-
gudrunmagnea
-
rheidur
-
gretarmar
-
magnusthor
-
nilli
-
georg
-
lydurarnason
-
reykur
-
johanneliasson
-
helgigunnars
-
hector
- kerfi
-
kallimatt
-
jonsnae
-
jp
-
jaj
-
hva
-
valurstef
-
sigurjonth
-
einherji
-
fiski
-
jakobk
-
harhar33
-
rs1600
-
iceman
-
thorirniels
-
kjartan
-
oliskula
-
1kaldi
-
gretar-petur
-
jon-o-vilhjalmsson
-
skulablogg
-
floyde
-
ragnarb
-
meistarinn
-
palmig
-
aevark
-
morgunbladid
-
zumann
-
jensgud
-
gutti
-
gudni-is
-
saethorhelgi
-
geirfz
-
iceship
-
fuf
-
saemi7
-
ketilas08
-
kokkurinn
-
einarorneinars
-
xfakureyri
-
siggith
-
stormsker
-
valli57
-
markusth
-
luf
-
framtid
-
vefritid
-
jakob
-
postdoc
-
jenni-1001
-
mal214
-
partners
-
iceberg
-
valdivest
-
torfis
-
gattin
-
malacai
-
benz
-
gumson
-
hildurhelgas
-
minos
-
seinars
-
skinogskurir
-
krist
-
thjodarheidur
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 79
- Sl. sólarhring: 80
- Sl. viku: 90
- Frá upphafi: 537404
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar