" í réttu"klíkunni""

Á sama tíma og þeir dæma konu í fangelsi fyrir 6000 kr vísa þeir þessu frá. Dettur einhverjum í hug að hæstiréttur dæmi bankastjórann ? Nei og aftur nei En konan var bara ekki í réttu"klíkunni" Kært kvödd
mbl.is Fékk 330 milljónir haustið 2008
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Vildarvina dómskerfið"

Skelfing er nú gott að vita hve skilvirt dómskerfið er hér á landi Vonandi verður sama formúla notuð, nei annars hún verður aldrei notuð á stórþjófana sem skildu hér eftir sig sviðna jörð  Vildarvina dómskerfið mun sjá fyrir því  Kært kvödd


mbl.is Í fangelsi fyrir búðahnupl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Logaði stafnanna á milli"

Þetta sýnir okkur betur en nokkuð annað hættuna sem sjómönum stafar af eldi um borð í skipum. Með stærri og öruggari skipum er eldurinn jafnvel orðinn hættulegri óvinur sjómannsins en hafið. Sem allir keppast nu til að hylla á degi "Sjómannsins" Gaskútar gerfiefni og margt fleira er hægt að telja til. Að vísu gerðist þetta í höfn til allrar lukku.

 

 

Þetta minnir mig á sögu sem gekk hér í "den" Friðrik Ólafsson skólastjóri Stýrimannaskólans þótti stundum harður í horn að taka hvað lærdóminn varðaði, En hann kenndi (sem venja var hjá skólastjórum f g skóla) siglingarreglur og var betra að gata ekki í tímum hjá honum. 

 

Svo varð það einusinni í tíma hjá Friðrik að hann tekur upp einn nemenda og spyr hann um kaflann í  24 reglunni um skip sem dregur annað skip. Þ.e.a.s hvaða  ljós slíkt skip á að hafa. Nemandinn sem seinna varð fengsæll fiskiskipstjóri og farsæll útgerðarmaður klóraði sér aðeins í hausnum og svaraði:" ja ég er nú ekki aveg viss um það."

 

Friðrik spurði þá strangur á svip:"hvað er þetta lest þú eki reglurna heima drengur." Jú jú svaraði hinn" en síðast þegar ég sá skip draga annað skip þá hafði dráttarskipið togljósið en sá sem dreginn var logaði nú bara stafnanna á milli"  En þá meinti hann þegar b/v Neptúnus RE. var að draga b/v Gylfa BA brennandi til hafnar í mai 1951. Menn sögðu að Friðrik hefði snúið sér undan til að halda andliinu. 001Ef myndin er stækkuð sérst hvernig brúin á Gylfanum hreinlega bráðnaði niðir. Kært kvödd


mbl.is Dæla sjó á eldinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"virðingu þorra landsmanna"

Seint og um síðir er það að  síast inn í höfuð á liðinu á þessu svokölluðu alþingi að almenningur er löngu búinn að missa allt álit á því.  Þetta segir ein konan úr liðinu:"Hverjum sem um er að kenna er ljóst að Alþingi hefur glatað trausti og virðingu þorra landsmanna."
Sem sagt hún viðurkennir að virðingin sé fokin út í veður og vind. Og hún heldur áfram: "Virðingu og traust er hægt að vinna til baka en það krefst þess að við tökum höndum saman."
Getur þetta lið ekki skilið að virðingin á samkundunni kemur aldrei nema að sumt fólk hverfi úr sölum þess. Svona fíflagangur og peningasóun eins og og einhver landsdómur yfir einum (þótt í forsæti hafi verið) ráðherra úr "hrunstjórninni" er bara sýndarmennska til að reyna að slá ryki í augu Þorri almennings vill í burt alla "hrunráðherra" Og ég hef alltaf lagt þá meiningu í "þorra" að það væri meirihluti af einhverju
Nokkrir af þessu liði hafði þó samvisku til að láta sig hverfa, en þeir óforskömmuðustu sitja sem fastast. Þegar þetta lið er farið væri hægt að fara að tala im einhverja virðingu. Kært kvödd

mbl.is Alþingi hefur glatað virðingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"ætum hatti "

Systir hans ætti að geta fengið uppskriftina fyrir ætum hatti hjá tengdamóðir sinni. Kom ekki eitthvað svipað fyrir hana? Þ.e.a.s tengdamóðirina.Kært kvödd


mbl.is Smyr sér hatt og étur hann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 11. maí 2011

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 79
  • Sl. sólarhring: 80
  • Sl. viku: 90
  • Frá upphafi: 537404

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband