23.4.2011 | 18:17
Gleðilega páska
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.4.2011 | 18:07
Sjómannadagurinn II
Af því ég bloggaði áðan um sjómannadaginn er ekki úr vegi að birta hér brot úr forustugrein Moggans á Sjómannadaginn fyrir 50 árum En þar segit m.a:
"HVER SÁ DAGUR, sem færir hina íslensku þjóð saman, laðar til samstilltra átaka fyrir góðum og nytsömum málum, skapar samúð og góðvild milli stétta okkar fámenna þjóðfélags, hver sá dagur sem þessu fær áorkað er góður dagur. Af þessum ástæðum er Sjómannadagurinn, sem við höldum hátíðlegan í dag, góður dagur.
Hann hefur þrátt fyrir það að vera minninga- og baráttudagur sjómannastéttarinnar orðið almennur hátíðisdagur allra landsmanna. Á því er oft haft orð að þessi litla þjóð sé deilu- og þrætugjörn um of og jafnvel öðrum þjóðum deilugjarnari um innanlandsmál sín.
Á það, hvort svo sé í raun og veru, skal ekki lagður neinn úrskurður hér. Hitt vitum við, að margvísleg togstreyta og þröngsýni hefur oft tafið framgang góðra mála. Okkur hefur skort hæfileika til þess að sjá nægilega vítt yfir þjóðarhag, en horft í þess stað á takrnörkuð sjónarmið stétta og starfshópa á líðandi stund.
Baráttan um þessi sjónarmið hefur stundum valdið óþörfum töfum á framsókn þjóðarinnar til raunhæfra og varanlegra framfara". Tilvitnun lýkur. Leturbreitingar eru mínar.Svo mörg voru þau orð. Verið ávallt kært kvödd
23.4.2011 | 17:48
Sjómannadagur
Ég vil byrja á að benda hér á blog vinar míns Sigmars Þórs Sveinbjörnssonar um daginn. Og svo taka undir með honum.
http://nafar.blog.is/blog/nafar/entry/1160382/#comments
Ég skil satt að segja ekki þessa andsk..... meinvillu að þurfa að uppnefna Sjómannadaginn og kalla hann "Hátíð hafsins"
Nafn hans er lögfest í lögum nr 20 þ. 26 mars 1987 Þar segir m.a:" 1. gr. Fyrsti sunnudagur í júnímánuði ár hvert skal vera almennur frídagur sjómanna með þeim undantekningum sem um getur í lögum þessum. Beri hvítasunnudag upp á fyrsta sunnudag í júní skal sjómannadagur haldinn næsta sunnudag á eftir. Sjómannadagurinn skal vera almennur fánadagur." Tilvitnun lýkur. Leturbreitingar eru minar
Vitaskuld hefur hafið verið okkur gjöfullt og það ber að þakka. En fyrir þá þakkarhátið má finna annan dag. Málið er það að ein af aðal ástæðum fyir að halda Sjómannadaginn hátíðlegan er að minnast þeirra sem töpuðu í baráttunni við hafið og líka að fagna þeim sem unnu hana.
Þessvegna er t.d mönnum veit verðlaun fyrir unnar hetjudáðir við björgun annara. Einnig eru gamlir sjómenn sem sluppu (misjafnlega vel samt) í viðureign sinni við hafið heiðraðir. Ég er eignlega hálfhissa á að forsvarsmenn þeirra launþegasamtaka sem tilheira sjómönnum skuli láta þetta nafnabrengl ekki til sín taka.
Þótt maður sé flokkaður sem gamall neikvæður og úrillur leyfi ég mér að hafa þessa skoðun. Og finnst þetta "hátíð hafsins" kjaftæði háfgerð móðgun við þá menn sem lutu í lægra haldi í baráttunni við það. En það er kannske líka sjómönnum sjálfum að kennar ef nafnið á degi þeirra er að þurkast út. Þeir þyrftu kannske að taka meiri þátt í deginum.
Hér áður var keppt í reiptogi beitningu bætningu jafnvel splæsningu og ýmsum handbrögðum tengdri sjómennsku. Það þarf ekki háttlaunaða svokallaða listamenn til að gera daginn ánægjulegan. Svo finnst mér vera athugandi að færa daginn aftar í almanakinu. Vorið er oft svo nýkomið í byrjun júní í þessu harðbýla land. Þótt alvarleikinn eigi að svífa yfir vötnum þá á þetta líka að vera fagnaðarhátíð þeirra sem háðu kannske tvísýna baráttu en unnu sigur. Og þar með sigurhátíð yfir hafinu. Kært kvödd
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 23. apríl 2011
Um bloggið
Ólafur Ragnarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
kolbrunerin
-
gudruntora
-
gmaria
-
dala
-
nafar
-
valmundur
-
johannesgylfi
-
gudrunmagnea
-
rheidur
-
gretarmar
-
magnusthor
-
nilli
-
georg
-
lydurarnason
-
reykur
-
johanneliasson
-
helgigunnars
-
hector
- kerfi
-
kallimatt
-
jonsnae
-
jp
-
jaj
-
hva
-
valurstef
-
sigurjonth
-
einherji
-
fiski
-
jakobk
-
harhar33
-
rs1600
-
iceman
-
thorirniels
-
kjartan
-
oliskula
-
1kaldi
-
gretar-petur
-
jon-o-vilhjalmsson
-
skulablogg
-
floyde
-
ragnarb
-
meistarinn
-
palmig
-
aevark
-
morgunbladid
-
zumann
-
jensgud
-
gutti
-
gudni-is
-
saethorhelgi
-
geirfz
-
iceship
-
fuf
-
saemi7
-
ketilas08
-
kokkurinn
-
einarorneinars
-
xfakureyri
-
siggith
-
stormsker
-
valli57
-
markusth
-
luf
-
framtid
-
vefritid
-
jakob
-
postdoc
-
jenni-1001
-
mal214
-
partners
-
iceberg
-
valdivest
-
torfis
-
gattin
-
malacai
-
benz
-
gumson
-
hildurhelgas
-
minos
-
seinars
-
skinogskurir
-
krist
-
thjodarheidur
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 16
- Frá upphafi: 537325
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar