25.2.2011 | 22:56
"haga mér"
Nú lofa ég að hætta öllum fíflaskap og fara að haga mér eins og siðuðun rúmlega sjötugum "eldri" borgara sæmir. Ég er alltaf að sjá það betur og betur hve rétt ákvörðun það var ( sennilega ein af fáum virkilega réttum í lífinu) þegar ég ákvað hálfheilsulaus komin að lokum starfsævinnar (sem stóð allt í allt 53 ár eitt bættist við þegar hingað var komið) að flytja hingað til Vestmannaeyja eftir 15 ára sjálfskipaða útlegð í Svíþjóð 2005.
Í morgun Arnarfell 2 Wilsonar, Axel auk loðnubáta
Ég hafði verið hér um stundarsakir nokkrum sinnum hér á árum áður. Var að vísu giftur konu héðan í 10 ár og tengslin slitnuðu þá kannske ekki alveg. En hvað um það, ég er alltaf að sjá það betur og betur hve marga virkilega góða vini ég átti hér í raun og veru. Og hve virkilega góða vini ég hef eignast hér síðan. Ég vona að þessir menn leyfi mér að kalla þá vini mína.
Og ég ætla að leyfa mér að vera ennþá skáldlegri þegar ég segi að það er vegna svona vinatengsla sem þessar fallegu myndir birtast hér á blogginu mínu. Einn úr klúbbnum í litla snyrtilega húsinu við höfn friðarins Stefán Geir Gunnarsson fékk myndavélina hjá "klúbbsstjóranum" Torfa Haraldssyni til að taka þessar myndir yfir athafnalífið við höfnina í dag af Heimakletti. Og nú segi ég bara ég þakka fyrir mig strákar og við hin, njótið.
Það er nefnilega hér sem hlutirnir eru að gerast. Hér voru í dag sex svokölluð "fragtskip" fyrir utan Herjólf. Eitt að vísu ekki sérlega velkomið. En það er að sjálfsögðu sandæluskipið Skandia. Sem samt var beðið eftir að kæmi en verðrátta hefur hamlað störfum síða það kom.
Hér siglir nýjasta skip Þórunn Sveinsdóttir út vonandi í enn eina velheppnaða veiðiferð eftir löndun
Með þessu kveð ég ykkur kært sem og endranær
Stjórnmál og samfélag | Breytt 26.2.2011 kl. 14:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.2.2011 | 01:05
"Recent attack of gout"
Maður nokkur notar furðulegar aðferðir til að vekja á sér athygli
Hann fékk nýlega þvagsýrugiktar kast (Recent attack of gout"myndi það heita á frummálinu) Þar sem hann er mikið upp með sér af þessum sjúkdómi sem á miðöldum hrjáði aðallega ríka aðals menn með Henri VIII í fararbroddi þurfti hann helst að láta allan bæjinn vita af kastinu.
Einn frægasti þvagsýrugiktar sjúklingur Henri VIII
Hann byrjaði á að plata heiðvirta konu í bænum til að skutla" sér upp á spítala. Þar æpti hann og vældi þegar auminga konan dröslaði" honum framhjá að minnsta kosti tveim hjólastólum svo hún kæmi ekki auga á þá.
Úr Trudor sjónvarpsmynd um Henri VIII
Þegar hún komst svo með hann hangandi á baki sér, dröslandi úr lyftunni inn í biðstofuna mændu að minnsta kosti 50 augu á þetta furðuverk. Til að bjarga heiðri konunnar allavega í horn kom ein hjúkrunarkonan hlaupandi með hjólastól sem sjúklingurinn" var settur í Honum var svo plantað" við dyrnar á blóðssuguherberginu meðan fylgdarkonan settist ein langt frá honum og húsrúm leyfði. Bóðprufa tekin og hálf sigri hrósandi var honum dröslað heim aftur með ný meðul
Ýmislegt sem ekki má borða ef menn fá þvagsýrugikt
Þetta endaði svo allt með því að af slolti yfir að ganga með þennan "konunglega" sjúkdóm gleymdi vinurinn að setja bensín á bílinn sinn. Varð bensínlaus á miðri aðalgötu bæjarins. Og þá varð einni vinkonu hans að orði "Er ekki nóg að þú sért hálf ná.....laus þarftu að verða bensínlaus líka" Við þetta sljákkaði aðeins í manninum með hin konunglega sjúkdóm. Kært kvödd
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.2.2011 | 00:46
" við höfn friðarins í kaupstað"
Miklar umræður voru í gær í litla snotra húsinu við höfn friðarins í kaupstað úti á landi. Fundar menn sem aðallega voru gamlir togveiðiskipstjórar og fyrrverandi og núverandi verkstjórar. Fyrir utan furðufuglinn mrð hattinn
Uppsala uppvakningurinn þarna í horninu til hægri þykist allt vita þessvegna er honum plantað" þarna í hornið. Hann er sennilega svona feitur af því að hann hefur þurft að éta allan andsk..... ofan í sig aftur.
Þar sem þeir eldri töluðu af mikilli sannfæringu um hvernig allt var betra hér í den" Og töluðu hve þetta hefði allt verið liprara Fv trollaraskipstjórarnir slettu í góm og sögðu t.d að þessi veiðiskapur þ.e.a.s á loðnu" væri nú lítill vandi. Bauju væri hent út hún fundin og tekin aftur um borð eftir ca einn hring Híft í einhvern (vonandi réttan) vír og svo pumpað og alles klar".
Gamlir verkstjórar og trollaraskipstjorar
Fv verkstjórar í vinnslu slettu líka í góm og sögðu að lítill vandi væri að vinna fyrrgreint fiskkríli to day" Og við að hlusta á þetta kemur óneitanlega Tómas Guðmundsson aftur upp í hugann Og daprar sálir söngva vorsins yngja / Og svo er mikill ljóssins undrakraftur / að jafnvel gamlir símastaurar syngja / í sólskininu og verða grænir aftur /
Ekki mikið fjör í umræðunni Enda þarna fáir í fundarsal sem títt er um alvöruþing Einhverir í hliðarsölum eða þannig
Þar sem hornamaðurinn" hafði enga aðra reynslu af loðnuveiðum en að vera skráður á loðnubát sem svo datt" í slippnum á Akranesi. hefur hann lítið vit á þeim veiðum. Og tilraunir hans til togveiðaskipstjórnar enduðu yfirleitt með mörgum hringum til að vinda ofan af þeim snúningum sem trollið tók á sig í köstun. Svo lítið var vitið á þeim veiðum. Að maður tali nú ekki um hringina sem stundum voru teknir þegar helv.... fragtdallarnir voru ekki "rétt handel" og bökkuðu í allt aðra átt en til var ætlast. Þessi samsuða er eins mikil lýgi og það er sannleikur að mennirnir á myndinni voru staddir þarna þegar myndirnar voru teknar. Og er allavega 99.9 % lýgi Með von um að allir komi ósærðir út úr þessu kveð ég alla kært.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 8.3.2017 kl. 16:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bloggfærslur 25. febrúar 2011
Um bloggið
Ólafur Ragnarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
kolbrunerin
-
gudruntora
-
gmaria
-
dala
-
nafar
-
valmundur
-
johannesgylfi
-
gudrunmagnea
-
rheidur
-
gretarmar
-
magnusthor
-
nilli
-
georg
-
lydurarnason
-
reykur
-
johanneliasson
-
helgigunnars
-
hector
- kerfi
-
kallimatt
-
jonsnae
-
jp
-
jaj
-
hva
-
valurstef
-
sigurjonth
-
einherji
-
fiski
-
jakobk
-
harhar33
-
rs1600
-
iceman
-
thorirniels
-
kjartan
-
oliskula
-
1kaldi
-
gretar-petur
-
jon-o-vilhjalmsson
-
skulablogg
-
floyde
-
ragnarb
-
meistarinn
-
palmig
-
aevark
-
morgunbladid
-
zumann
-
jensgud
-
gutti
-
gudni-is
-
saethorhelgi
-
geirfz
-
iceship
-
fuf
-
saemi7
-
ketilas08
-
kokkurinn
-
einarorneinars
-
xfakureyri
-
siggith
-
stormsker
-
valli57
-
markusth
-
luf
-
framtid
-
vefritid
-
jakob
-
postdoc
-
jenni-1001
-
mal214
-
partners
-
iceberg
-
valdivest
-
torfis
-
gattin
-
malacai
-
benz
-
gumson
-
hildurhelgas
-
minos
-
seinars
-
skinogskurir
-
krist
-
thjodarheidur
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 16
- Frá upphafi: 537325
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar