"Ég er nú ekki alveg sammála"

Ég er nú ekki alveg sammála öllu sem Lilja hefur haft fram að færa. En ég og ég veit um fleiri koma til með að fylgast vel með því sem á eftir að koma frá þessari mögnuðu konu. Kært kvödd
mbl.is Vill lýðræði í atvinnulífið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Það er frábært að heyra"

Það er frábært að heyra hvað fólk er áhugasamt um þetta skip. Og þetta ætti að vera skýr skilaboð til stjórnvalda þessa lands að setja mál LHGÍ ásamt heilbrigðisþjónustunni í algeran forgang.

 

Það er eiginlega alveg furðulegt á þessari tækniöld þegar hægt er að kveikja undir kartöflunum með farsíma að ekki skuli vera hægt að skera meir niður í svokallaðri utanríkisþjínustunni.

 

Reyna t.d. að "tjóðra" ráðherra þeirra mála í heimahögum. Það mætti láta "borðfána" duga, eins og einn góður maður í sjórnsýslunni í gamla daga orðaði það svo skemmtilega á mörgm þessum EBE ráðstefnum.

 

Sem furðufuglarnir í VG vita ekki hvað snýr upp eða niður á. Önnur fræg orð "Ertu að koma eða fara" eiga við fg ráðherra. Hvað skildi ferðakosnaður hinnar svokölluðu "stjórnsýslu" vera orðin á þessu ári. Kært kvödd


mbl.is Hátt í 6.000 hafa skoðað Þór
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Nokkrir "velvaldir" menn"

Þarf enginn að svara fyrir hvernig stóð á þessu mikla tapi lífeyrissjóðanna. í áhættufjármögnun. Nokkrir "velvaldir" menn á ofurlaunum mega leika lausum hala  með fé sjóðanna að vild.

 

Og og ef enhverjum dirfist að segja eitthvað eru þeir miskunnarlaust barðir niður jafnvel með rógi. Ég vil minna á skrif Jóhanns Páls Símonarsonar sem ráðamenn sjóðanna  hafa reynt að niðurlægja á allan hátt. 

 

Og það er sama hvert er litið það borgar sig ekki að spara á íslandi. Ekki eru þetta góð skilaboð til unga fólksins. Það er á hreinu.

Kært kvödd


mbl.is Skerða rétt um 6%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Maður skorinn á háls"

"Maður skorinn á háls í Mosfellsbæ" Svo hljóðar fyrirsögnin. Einhvernveginn ( en það er nú sennilega arfavitlaust) finnst mér það tákna að hann hafi verið drepinn.

Hefði ekki nægt að segja "Maður særður á hálsi" En það hefur sennilega ekki þótt nægilega æsileg fyrirsögn fyrir nútímafólk

 

Aðra fyrirsögn sá ég einhverstaðar  "Biskupinn fraus" Jæja hugsaði ég  lokaðist nú  kallinn inni í frystigeymslu. En þá var þetta í einhverjum leik nútímans sem gamlingi eins og ég skil ekki

Kært kvödd


mbl.is Maður skorinn á háls í Mosfellsbæ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 29. október 2011

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 91
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband