2.1.2011 | 00:47
Nú er lag á læk
Nú situr maður dolfallinn. Og eigilega í hálfgerðum trans. Raggi Bjarna nýbúinn að kippa manni rúm 50 ár til baka. Syngandi um forðum daga í Hamborg. Og marga vinsæla Þórskaffislagara. Forðum í Hamborg!!! Þar sá maður nú ýmislegt sem ekki er prenthæft. Einusinni sá ég konu reykja með ónefndum hluta líkamana Þó ekki þessum
En í minningunni litu þær þannig út stúlkurnar í Hamborg Finnst ykkur nokkur furða þótt maður gráti gamla tíma í Hamborg já og víðar.
Hólar og hæðir.
Ég man einnig að togaramenn nefndu ýmsa hóla og hæðir á togslóðunum eftir sumum líkamshlutum ónefndra vinkvenna í ónefndum hafnarborgum Töluðu jafnvel um að að vera undir brjóstunum á einni ónefndri og toga "nið´r eftir" Eða þegar maður lá á Cleethorpe beach þá litu þær allar svona út (Virkilega en þessar eru að vísu frá Blackpool) En svo þegar maður vaknaði leit þetta allt öðruvísi út Þetta vildi nú brenna við í Hamborg og víðar líka En það var ekki þeim að kenna. Viss vökvi sem maður sótti mikið í (oftar en ekki of mikið) villti manni sýn Þetta voru manneskjur sem einhverra hluta vegna urðu á vegi manns. Ég er ekki að gera lítið úr neinum. Og allsekki konum. Þær met ég upp til hópa mikils. Það vita þeir sem mig þekkja
Þetta er heldur ekkert grobb um kvenhylli. Ef einhver hefði verið hvarf hún fljótlega eftir að glösunum fjölgaði. Þessvegan litu þær svona út að morgni. Sjarmurinn leyfði kannske ekki meiri fegurð. En þetta voru ágætis stelpur með örfáum undantekningum.En svona var þetta bara The Cleethorpe beach Konur höfðu og hafa sennilega enn alveg magnað vald yfir okkur karlpeningnum
Hún veit sínu viti sú stutta
Og þessi er of ungur til að vita hverju hann er að fúlsa við
Ég skrifaði um daginn um reynslu góðs vinar míns af ristil speglun og af því ég er viss um að enginn læknir lesi þetta skrifelsi þá held ég því fram að einhvern veginn svona fari þetta fram
Án þess að vita það held ég að totan þarna efst til vinstri sé botlanginn. Ég hafði tvo. Báðir sprungu þeir en með 14 ára millibili. Sá síðari var tekin með skurði á miðjum belgnum. Þar sem tilvist hinnar seinni totu var ekki sönnuð fyrr en belgurinn hafði verið opnaður,
Venjulegur botangaskurður
Skurðlæknirin sem þetta gerði sagði mér að um 2 % af mannkyninu frekar en íslendingum gengu með tvær totur. Þegar ég fór í hina tveggja árlegu læknisskoðun í Danmörk vegna atvinnuréttinda minna lenti ég stundum í strögli þegar ég sagðist aldrei hafa verið "operaður" út af magasári,Minn seinni
Nú hvernig stendur á þessu öri á maganum á þér spurðu þeir þá. Botlangaskurður svaraði ég. " Hvordan i hule helve.. skærer de op til blindtarmen på Island" fékk ég þá stundum að heyra. Síðar fékk ég óþverra í ónefndan kirtil og ég man að mér leið einhvernvegin eins og ég hefði lent í þessu eftir að 8 prufur höfðu verið teknar ódeyft Lent í þessu
Þessi mynd er að vísu ekki frá þeim uppskurði
Nú fjandans kirtillinn var tekinn.Svo nú situr maður hér án mikilvægra tóla og syrgir gamla daga (allavega í kvöld. Á morgun annar dagur og góða skapið tekið við) í Hamborg Og þrátt fyrir allt þakka ég Ragga Bjarna fyrir að vekja upp þessar minningar "forðum í Hambog" og allt það Raggi er engum líkur það hefur hann margsannað Sólin að hníga til viðar hjá manni og fer sennilega að setjast bráðlega
Ég vona að engin móðgist yfir þessu rugli hjá gömlum hálf elliærum stjórntækjalausum fv gæja(að eigin mati þá) sem Raggi Bjarna framkallaði vökva um augu hjá í kvöld Og lítur til baka með óvenjulegum gleraugum Verið öll ávallt kært kvödd og megi góður guð gefa okkur öllum eins gæfurík komandi ár og hver og einn verðskuldar
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Bloggfærslur 2. janúar 2011
Um bloggið
Ólafur Ragnarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
kolbrunerin
-
gudruntora
-
gmaria
-
dala
-
nafar
-
valmundur
-
johannesgylfi
-
gudrunmagnea
-
rheidur
-
gretarmar
-
magnusthor
-
nilli
-
georg
-
lydurarnason
-
reykur
-
johanneliasson
-
helgigunnars
-
hector
- kerfi
-
kallimatt
-
jonsnae
-
jp
-
jaj
-
hva
-
valurstef
-
sigurjonth
-
einherji
-
fiski
-
jakobk
-
harhar33
-
rs1600
-
iceman
-
thorirniels
-
kjartan
-
oliskula
-
1kaldi
-
gretar-petur
-
jon-o-vilhjalmsson
-
skulablogg
-
floyde
-
ragnarb
-
meistarinn
-
palmig
-
aevark
-
morgunbladid
-
zumann
-
jensgud
-
gutti
-
gudni-is
-
saethorhelgi
-
geirfz
-
iceship
-
fuf
-
saemi7
-
ketilas08
-
kokkurinn
-
einarorneinars
-
xfakureyri
-
siggith
-
stormsker
-
valli57
-
markusth
-
luf
-
framtid
-
vefritid
-
jakob
-
postdoc
-
jenni-1001
-
mal214
-
partners
-
iceberg
-
valdivest
-
torfis
-
gattin
-
malacai
-
benz
-
gumson
-
hildurhelgas
-
minos
-
seinars
-
skinogskurir
-
krist
-
thjodarheidur
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 16
- Frá upphafi: 537325
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar