"Þessi hringavitleysa"

Flokkslína eða ekki flokkslína. Þessi hringavitleysa sem fram fer á þessu svokallaða alþingi er tregari en tárum taki. Hún er svo vitlaus að aðeins Spaugstofumenn geta gert t.d. sæmilegan sjónvarps þátt um störf stjórnmálamanna hér á landi.

 

Danir og aðrar norðurlandaþjóðir hafa gert virkilega góða, ja hvað á maður að segja, spennuþætti sem snúast um stjórnmál. Hér eru það bara grínistar sem tekst að gera eitthvað í þá vegu enda tóm stórt grín sem kemur frá þessu fólki. sem í dag kallar sig stjórnmálamenn. 

 

Verði kosningar bráðlega er það á hreinu að alvöru atvinnugrínistum tekst að ná völdum í landinu. Fólk er búið að fá upp í kok af þessu platgrínistum sem nú eru í húsinu við völlinn. Kært kvödd


mbl.is Engin flokkslína Samfylkingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Feitir bitar á leiðinni "

Ja hún gerir það ekki endasleppt í andsk..... vitleysunni sú "tæra". Hvað skyldi þessi andsk.... hringavitleysa kosta. Nú núa "stjörnulögmenn" saman höndum og sleikja út um . Feitir bitar á leiðinni framreiddir af hinni "tæru stjórn öreiga allra landa".

 

Um að gera að halda 5 svokölluðum reynslumestu hæstaréttarlögmönum uppeknum í bölvuðu bulli meðan rumpulýðurinn sem stal aleigunni af þjóðinni sprangar á breiðstrætum stórborganna með alla vasa fulla af stolnum peningum geymdum í skattaskjólum víða um heim. Kært kvödd


mbl.is Fimmtán manna landsdómur kallaður saman
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"ja svei."

"Þungbær og erfið niðurstaða" ja svei. Hvaða íslending sem staddur er hérna niðri á jörðinni og sem hefur gáfnafar yfir 6 ára barn dettur í hug að þessi maður eða nokkur annar verði sóttur til saka út af svokölluðu hruni. Nei og aftur nei þessi skrípaleikur á alþingi verður rannsóknargefni sálfræðinga úti í heimi á næstunni. Hverig 66 hávitar komust þangað inn kosnir af þjóð sem var á barmi gjaldþrots. Kært kvödd

mbl.is Þungbær og erfið niðurstaða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"og lúllið ykkur þar"

Í guðana bænum-:"Íslenskir svokallaðir alþingismenn" Farið í hópferð á Alsherjarþing SÞ og lúllið ykkur þar. Það er miklu meira gagn af ykkur sofandi þar. Ég kveð alla hér niðri á jörðinni kært
mbl.is Flokkspólitísk yfirstétt sló skjaldborg um sjálfa sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"niðri á jörðinni "

Hætti nú þessum helv.... skrípaleík og hunskist heim. Fólkið hérna niðri á jörðinni vill ekki meiri peningaaustur í nefndir ráð sérfræðiþjónustu og hvað þetta heitir nú allt. Þið sem setu eigið á svokölluðu alþingi skammist ykkar. Aldrei hefur ein starfsrétt í landinu  skitið eins í buxurnar Aðra kveð ég kært 
mbl.is Mál höfðað gegn Geir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 28. september 2010

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 537323

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband