"saxast á limi"

Ja nú fer nú að saxast á limi Björns bónda hvað þinglið XD varðar Þótt reynt væri að koma í veg fyrir það var samþykkt á landsfundinum að :"Þeir sem hafi þegið háa styrki og meiri fyrirgreiðslur en almenningi stóð til boða sýni ábyrgð með því að stíga til hliðar" KK


mbl.is Forystumenn íhugi stöðu sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"hælir sér af"

SJS hælir sér af að ""Nú væru hins vegar breyttir tíma og nú réði ríkið yfir 70 til 80% af fjármálakerfinu með eign á bönkum, sparisjóðum, Íbúðalánasjóði, Byggðastofnun og fleiri stofnunum.  Nú snérist baráttan hins vegar um framvinduna og hvort halda mætti í almannaeigu þessum eigum og að félagslegar áherslur yrðu áfram ráðandi í fjármálakerfin""

 

 

Takið eftir þessu "fleiri stofnunum". Þeir stjórna bönkum sem aldrei hafa gengið eins hart að skuldurum sínum. Þeir segjast stjórna þeim stofnunum sem aldrei hefur skert kjör þeirra hópa sem minna mega sín, eins mikið. Og aftur á að láta ESB-málið  í dóm kjósenda svo þeir geti svikið það aftur. þ.e.a.s VG.  Það er alveg á hreinu að SJS myndi sitja áfram í þeirri stjórn ef svo vildi til að ESB samningar yrðu samykktir. Þá ennþá ánægðari með sjálfan sig og störf sín. KK


mbl.is Koma þessum draug frá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"óspilltum"

Ég held að ef XD kysi Pétur sem formann yrði það mikil gæfa fyrir þá. Ég held að hann sé einn af fáum óspilltum þingmönnum flokksins. Þá lyki kannske líka þessum fjan.... lögfræðingahroka sem mér hefur fundist svífa yfir vötnunum hjá þeim.

 

T.d. í styrkjamálinu. Reynt að sneiða hjá aðalatriðunum með einhverjum lögfræðibrellum.Og heyra vælið í sumum XD.  Að VG og Samfó séu líka að halda fundi til að draga athyglina frá landsfundi XD.  Nú verður Mogginn að halda vel á spöðunum í fréttaflutningi

Hvar er nú baráttuhugurinn þegar er verið að ná í svona"tittl....skít til áróðurs? Skyldu þeir hafa búist við fólki frá þeim flokki inn í formannskjörið ?. Og hvað um FIFA ? Hversvegna í andsk..... frestuðu þeir ekki "2010 World Cup" þegar landsfundur XD stóð fyrir dyrum? KK 


mbl.is Skorast ekki undan ábyrgð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"gula spjald"

Mér finnst forusta VG ætti að taka þetta gula spjald Lilju Móses alvarlega. KK


mbl.is Draumsýn að flokkurinn lifi af
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 26. júní 2010

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 537319

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband