19.6.2010 | 19:40
Aftenging
Nú ætla ég að aftengja mig gömu togurunum. Þetta byrjaði á að ég ætlaði að blogga um þetta hér:
Ég ætlaði líka að vekja athyli á togarasíðu Hafliða Óskarssonar á Húsavík en slóðin er hér:
En Hafliði er alger alfræðiorðabók um skip allavega um nýsköpunartogarana. En ég ætlaði aðeins að minnast á þá og togarana sem þeir leystu af hólmi. Nú sem sagt þegar músin tók jóðsótt fæddist fíll. Og ég bið Hafliða vin minn afsökunar ef honum finnst ég hafa seilst inn á hans svið. Það er ekki meiningin.
Þorvaldur Magnússon í fullum skrúða Einn af þessum gömlu hetjum
Hafliði á mikinn heiður skilið fyrir síðuna. En ég get hreinlega ekki slitið mig frá þessu nema að minnast aðeins á nokkur skip úr hópi þessara gömlu undanfara "Nýsköpunnartogarana" Og þau þungu högg sem þau urðu fyrir. Og nokkura frægra manna sem þessum skipum stýrðu. Ímyndið ykkur lúkarnir í gömlu togaranna tóku uppí 24 menn.
Ekki var nú miklu vatni til að dreifa enda voru skipin kolakyntir gufutogarar. Í 2 eða 3 nýsköpunartogaranna voru 16 manna lúkar stærsta vistarveran, Og menn töluðu um hallarsalarkynni. Og vatnssalerni varð að veruleika um borð í togara Gamli menn töluðu um að þeir (nýsköpunartogararnir) gætu mætt hvaða veðri sem væri. Og eins og í Halaveðrinu komust þeir að öðru þegar frá leið. Það liðu 12 ár frá því að sá 1sti kom til landsins þar til sá 1sti fórst í rúmsjó
Ég hef sagt frá nokkrum togurum sem týndust í WW2
Gullfoss fórst með allri áhöfn 19 mönnum. Skipstjóri var Finnbogi Magnússon, faðir Finnboga heitins fv skipstjóra hjá Eimskip
Reykjaborg fórst og með henni 13 menn en 2 björguðust. Skipstjóri var Ásmundur Sigurðsson bróðir hins ástsæla skólastjóra Stýrimannaskólans í Reykjavík Jónasar Sigurðssonar
Sviði fórst á stríðsárunum með allri áhöfn 25 mönnum. Skipstjóri var Guðjón Guðmundsson faðir Eyjólfs fv skipstjóra hjá Jöklum og Eimskip.Og ef ég treysti á götótt minni þá var Þorbergur Friðriksson 1sti stm faðir Guðrúnar Katrínar heitinnar fv forsetafrúar.
Jón Ólafsson fórst með allri áhöfn 13 mönnum Skipstjóri Sigfús Ingvar Kolbeinsson
Maður getur ekki skilið við gömlu gufutogarana án þess að minnast á nokkra sem þar gerðu garðinn frægan T.d Tryggva Ófeigsson og Bjarna Ingimars á Júpiter
Guðmundur Jónsson á Skallagrími
Sigurjón Einarsson á Garðari
Guðmundur Markússon á Tryggva gamla
Vilhjálmur Árnason á Venusi
Sjálfsagt gleymi ég einhverjum sem ætti að vera hér. En þetta eru þeir sem ég minnist svona í fljótu bragði. Kært kvaddir sem það eiga skilið
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
19.6.2010 | 01:23
Meir af "Halaveðri"
Við skulum halda aðeins áfram með halaveðrið:Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur hefur sýnt mér þá vinsemd að senda mér veðurkort frá þessum tíma. Ég gríp hér niður í "rafbréf" Einars: "Tölurnar með þrýstilínunum eru ekki mb eða hPa. Innsti hringurinn samsvarar 935 hPa þrýstingi, svo kortið sýnir strax án þess að nokkuð annað séð skoðað að þetta vður hefur svo sannarlega verið alvöru."
Þetta hefur verið eins og Einar bendir réttilega á "alvöruveður" Mikil leit var gerð að skipunum 2 og sést hér leitarsvæðið
Eins og sjá má ef myndin skannast vel hefur það ekki verið nein smávegalengd sem Egill Skallagrímsson hefur rekið af Halanum að krossinum sem gerður er þarna ca V af Látrabjargi. Skipin sem lentu í þessu voru misjöfn .Að gæðum og aldri. Annaðhvort byggð í Þýskalandi eða Englandi. Þýsku skipin þóttu betri sjóskip allavega þegar bræla var komin að ráði.
Áhöfnin á Agli Skallagrímssyni 1924, Sennilega margir þarna sem lentu í Halaveðrinu
En hálf leiðinleg í þæfingi en svo sjóborgir er komið var slæmt veður. Ensku skipin sem um ræðir voru annaðhvort smíðaðir í Beverley eða Selby. Margir gamlir sjómenn sögðu að "Selbyarnir" hefðu verið betri en "Beverleyarnir" Og ef við athugum skipin í Halaveðrinu þá er listinn svona: Þýskbyggðir voru: Ása (1918 í Kopman í Dordrecht) slapp skipa best.Gulltoppur (1920 Unterweser í Lehe) lenti í miklum hremmingum en en dugnaður og kjarkur manna bjargaði skipinu, Gylfi (1920 Seebeck í Geestermunde) Slapp nokkuð vel.
Enskur togari frá þessum tima Sennilega Beverleyskip þvi Selbytogararnir voru með vírnet á brúarvængjum
Selbyar: Tryggvi gamli (1920) Slapp nokkuð vel. Earl Haig (1919) lenti í miklum erfiðleikum en komsr til hafnar með mölbrotna brú m.m. Egill Skallagrímsson ( 1916) Lenti í miklum erfiðleikum en með harðfylgni komst skipið til hafnar. Field Marshall Robertson fórst(1919) með allri áhöfn 35 mönnum (6 enskir) Hilmir (1913) slapp með brotna brú og bilað stýri. Ari (1920) slapp nokkuð vel með bilað stýri. Þórólfur (1920) slapp við stór áföll. Draupnir (1907) slapp vel.
Leifur heppni (1920) fórst með allri áhöfn 33 mönnum Surprise (1920) slapp nokkuð vel Beverleyarnir voru: Njörður (1920) Fékk á sig hvert brotið eftir annað. En með óbilandi dugnaði og kjarki tókst skipverjum að koma skipinu með glugga og hurðarlausa brú til hafnar Cesersio(1915) komst við illan leik til hafnar .Jón Forseti (var smíðaður hjá Scott Bowling í Bowling Englandi 1907)slapp vel Læt þetta duga nú.Ég vil þakka Einari Sveinbjörnssyni fyrir veðurkortið Kveð þá kært sem það eiga skilið
Bloggfærslur 19. júní 2010
Um bloggið
Ólafur Ragnarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
kolbrunerin
-
gudruntora
-
gmaria
-
dala
-
nafar
-
valmundur
-
johannesgylfi
-
gudrunmagnea
-
rheidur
-
gretarmar
-
magnusthor
-
nilli
-
georg
-
lydurarnason
-
reykur
-
johanneliasson
-
helgigunnars
-
hector
- kerfi
-
kallimatt
-
jonsnae
-
jp
-
jaj
-
hva
-
valurstef
-
sigurjonth
-
einherji
-
fiski
-
jakobk
-
harhar33
-
rs1600
-
iceman
-
thorirniels
-
kjartan
-
oliskula
-
1kaldi
-
gretar-petur
-
jon-o-vilhjalmsson
-
skulablogg
-
floyde
-
ragnarb
-
meistarinn
-
palmig
-
aevark
-
morgunbladid
-
zumann
-
jensgud
-
gutti
-
gudni-is
-
saethorhelgi
-
geirfz
-
iceship
-
fuf
-
saemi7
-
ketilas08
-
kokkurinn
-
einarorneinars
-
xfakureyri
-
siggith
-
stormsker
-
valli57
-
markusth
-
luf
-
framtid
-
vefritid
-
jakob
-
postdoc
-
jenni-1001
-
mal214
-
partners
-
iceberg
-
valdivest
-
torfis
-
gattin
-
malacai
-
benz
-
gumson
-
hildurhelgas
-
minos
-
seinars
-
skinogskurir
-
krist
-
thjodarheidur
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 17
- Frá upphafi: 537320
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 15
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar