20.5.2010 | 23:52
17 dagar 2
Hér er áframhald á síðustu færslu Næst er það skip sem var smíðaður í Porsgrunds MV í Porsgrund Noregi 1914 sem Villemoes fyrir danska aðila;Skipið mældist: 627.0 ts 775.0 dwt. Loa:61.60 m brd:9.80 m. 1928 kaupir Eimskipafélag Íslands skipið og skírir Selfoss, Það var selt til niðurrifs og rifið í Ghent Belgíu 1956
Stundum kallaður "ljóti andarunginn" einnig:"blessaður svanurinn" eða bara "Selurinn" eða einfaldlega "Selló". Hugsið ykkur Churchill kenndi Selfossi um að sigur í heimstyrjöldinni drógst á langinn
Hann var í Ameríkusiglingum lungan úr stríðinu.Hann "lullaði"þetta á sínum 7 mílum. Og í björtu drógst hann alltaf aftur úr skipalestunum. En var svo oft komin fremstur á morgnana. Maður hlýtur að minnast þessa skips og manna þeirra sem sigldu honum með mikilli lotningu
Næsta skip var byggt (skrokkurinn) hjá Svendborg Skibsværft Svendborg Danmörk skrokkurinn dreginn til Kaupmannahöfn og smíðinni lokið hjá Kjöbenhavn Flydedok & Skipsværft 1921 fyrir Eimskipafélag Íslands Það mældist 1542,0 ts 2058.0 dwt .Loa: 70.10 m brd:10,50 m Farþegar 67. Skipinu var sökkt rétt undan Garðskaga á leið til Reykjavíkur. þ. 10-11-1944. 43 menn fórust með skipinu 19 björguðust
20.5.2010 | 21:47
17 dagar
Nú eru 17 dagar til Sjómannadags, Dags þar sem þeirra sjómanna er minnst sem bíðu ósigur í lífsbaráttu sinni. Menn sem fórnuðu lífi sínu til að brauðfæða þessa þjóð.
Þá er manni hugsað til þeirra sem siglu heimsálfa á milli á litlum skipum í WW2 Menn sem sáu um að mannlíf hér á landi hélst lifandi og færðu björgina heim Eftir að fiskimennirnir höfðu aflað galdeyrirnum til að kaupa hana. Að mínu mati er ekki hægt að gera upp á milli Farmanna og Fiskimanna hvað uppbyggingu þjóðlífs á landinu varðar En samnefnið er einfaldlega Sjómenn.
Það eru dimm ský á lofti í málefnum þeirra í dag og þessvegna þarf þjóðin að sýna þeim samstöðu á baráttu degi þeirra. Það vita allir að Farmannastéttini er að blæða út og er í andastlitrunum.Hver á sökina veit ég hreinlega ekki alveg. Þó mig gruni margt. En ég var í sjálfskipaðri útlegð í 15 ár og hef því ekki þá þekkingu á þessum málum að ég geti tjáð mig um það. En að aðalerindinu Frumkvöðlarnir hvað skip varðar.
Þá er fyrst að telja þetta skip sjálft "Óskabarnið" (mig minnir að þetta nafn hafi byrjað þá þessu skipi en svo flutts yfir á fyrirtækið er frá leið) Gullfoss Það var byggt hjá Kjöbenhavns Flydedok & Skibsværft í Kaupmannahöfn 1915 fyrir hið nýstofnaða Eimskipafélag Íslands. Það mældist 1414,0 ts 1200,0 dwt Loa: 70.10,m brd: 10.70 Farþegar 74.,Skipið var kyrrsett í Kaupmannahöfn þegar Þjóðverjar gerðu innrás í Danmörk 9 apríl 1940,
Esja sem fór í hina frægu Petsamoferð,
Áhöfnin kom svo heim um haustið með Esjunni í hinni frægu Petsamoferð, Skipið "fannst"svo í Kiel eftir stríð 1945 í slæmu ástandi. Eimskip hafði fengið tryggingafé skipsins greitt
og hafði því eki lengur umráð yfir því En félagið var að hugsa um að fá skipið til baka en það reyndist ekki borga sig enda var þá bygging á nýju skipi komin á koppinn., 2 íslendingar keyptu skipið og komu því til Gautaborgar og léta gera það upp. Þegar því var lokið seldu þeir Skipafélagi Föroyja í Færeyja skipið. Og fékk skipið þá nafnið Tjaldur. Það var selt til Þýskaland og rifið 1953 og þá undir nafninu Tjaldur gamli
Hér nýr:
Hér mætast þeir félagar Sá gamli og nýji Gullfoss
Næsta skip átti stutta og sorglega sögu Skipið var byggt hjá Kjöbenhavns Flydedok & Skibsværft í Kaupmannahöfn 1915 einnig fyrir hið nýstofnaða Eimskipafélag Íslands. Það mældist 1374.0 ts 1575.0 dwt.Loa: 69,0 m brd: 10,70 m. Farþegar 56. Þess má geta að Goðafoss var 1sta íslenska skipið sem búið var loftskeytatækjum Endalokin voru sorgleg hvað skipið varðaði. Það strandaði við Straumnes 30-11-1916 og var þar til Síðast þegar ég vissi mátti sjá leifar af skipinu á strandstaðnum
Goðafoss nýr
Næst er skip sem byggt var hjá Nylands Verksted í Kístianíu Noregi1904 sem Profit fyrir þarlenda aðila Eimskipafélag Íslands kaupir skipið 1917 og skírir Lagarfoss. Það mældist: 1211 ts 1600 dwt.Loa:68.60 m brd: 10,30 Farþegar 32 Skipið var rifið í Kaupmannahöfn 1949
Næst er það skip sem bygt var hjá Burmeister & Wain Kaupmannahöfn Danmörk 1911 sem Manchioneal fyrir noska aðila Það mældist: 1654,0 ts 2010,0 dwt Loa: 77.80 m brd: 10.90 m Eimskipafélag Reykjavíkur kaupa skipið 1934 og skíra Reykjafoss Skipið er selt til Tyrklands 1949 og skírt Nazar 1955 fær það nafnið Cerrahzade. Það var rifið í Tyrklandi 1967
Næst er skip sem var byggt hjá Haarlemsche Sceheepswerf Haarlem Hollandi 1919 sem Merwede fyrir þarlenda aðila. Áður en það var afhent frá skipasmíðastöðinni fékk það nýtt nafn Amstelstroom. Það mældist 1451.0 ts 2060.0 dwt. Loa: 82,30 m brd: 11,0 m Skipið var búið 2 gufuknúnum krönum og mun hafa verið 1sta íslenska skipið með þann útbúnað.1934 kaupir skipafélagið Ísafold skipið og skírir Eddu. Eimskipaféla Íslands kaupir öll hlutabréf í Ísafold 1941 og fylgir skipið með í kaupunum Það er þá skírt Fjallfoss 1951 er skipið selt til Ítalíu og fær nafnið Siderea 1957 selt til Saudi Arabíu og fær nafnið Ommalgora. 1968 setl þar innanlands og fær nafnið Star of Taif .Skipið þótti orðið úrelt 1983 og var sökkt út af Jeddah
Stjórnmál og samfélag | Breytt 21.5.2010 kl. 01:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Bloggfærslur 20. maí 2010
Um bloggið
Ólafur Ragnarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
kolbrunerin
-
gudruntora
-
gmaria
-
dala
-
nafar
-
valmundur
-
johannesgylfi
-
gudrunmagnea
-
rheidur
-
gretarmar
-
magnusthor
-
nilli
-
georg
-
lydurarnason
-
reykur
-
johanneliasson
-
helgigunnars
-
hector
- kerfi
-
kallimatt
-
jonsnae
-
jp
-
jaj
-
hva
-
valurstef
-
sigurjonth
-
einherji
-
fiski
-
jakobk
-
harhar33
-
rs1600
-
iceman
-
thorirniels
-
kjartan
-
oliskula
-
1kaldi
-
gretar-petur
-
jon-o-vilhjalmsson
-
skulablogg
-
floyde
-
ragnarb
-
meistarinn
-
palmig
-
aevark
-
morgunbladid
-
zumann
-
jensgud
-
gutti
-
gudni-is
-
saethorhelgi
-
geirfz
-
iceship
-
fuf
-
saemi7
-
ketilas08
-
kokkurinn
-
einarorneinars
-
xfakureyri
-
siggith
-
stormsker
-
valli57
-
markusth
-
luf
-
framtid
-
vefritid
-
jakob
-
postdoc
-
jenni-1001
-
mal214
-
partners
-
iceberg
-
valdivest
-
torfis
-
gattin
-
malacai
-
benz
-
gumson
-
hildurhelgas
-
minos
-
seinars
-
skinogskurir
-
krist
-
thjodarheidur
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 2
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 16
- Frá upphafi: 537319
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar