"rumpulýður"

Þetta og atvikið í úkraínska þinginu í morgun sýna manni hverslags andsk..... "rumpulýður" getur slæðst inn á þjóðþing hérlendis og erlendis. Fólk sem ekkert erindi á inn á þessar samkomur. Og svo vill þetta lið að það sé borin virðing fyrir því.

 

Maður kemur sennilega ekki til með að lifa það að  þessi samkoma hér endurvinni virðingu fólksins eins og ætti að vera. Allavega ekki með stærsta hlutanum af því liði sem er þar í dag.Og ekki vantar ávörpin og hégómaskapinn ja svei. Kært kvaddir sem það eiga skilið


mbl.is Stjórnmálamaður sem ekki er hægt að stóla á
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skrípaleikur!!!!!!

Hvenær ætlar þeim skrípaleik sem gengur undir nafninu ja ég veit hreint ekki undir hvaða nafni hann gengur: Hafrannsóknir?? Fiskirannsóknir?? Nú er svo komið að grásleppukallar eru í standandi vandræðum með meðafla. Humarbátar fá lítið annað en þorsk og eru sumir hreinlega hættir í bili Rækjubátar fyrir N-landi moka helling af loðnu fyrir borð.

 

 

En fræðingarni í vissu húsi við visst stræti sitja bara á vissum líkamshluta og steinhalda öðrum vissum líkamshluta yfir ósköpunum. Og hreyfa sig ekkert til að kanna málið. Og ýja að því að  heiðalegir sjómenn hringinn í kring um landið séu hreinlega gráðugir lygarar.

Og eru að gera suma af þeim að lögbrjótum. Vegna brottkasts sem hlýtur að eiga sér stað. Eða hvað gerir grásleppuveiðimaður sem fær netin full af þorski og sem engan þorskkvóta á við hann??? Kveð þá kært sem það eiga skilið


mbl.is Kolmunnaveiðar gengið vel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"örvæntingarfullar tilraunir"

Þingforseta gera nú örvæntingar tilraunir til að reyna að halda einhverri svokallaðri virðingu uppi á vissum cirkus ( sem hann er löngu búið að missa) við vissan völl. Í vetur  var að mig minnir orðið "ámælisvert" tilefni til bjölluhringls og nú "magasveisa".

Í bæði skiftin voru það konur úr VG sem áminningarnar gáfu. Þær virðast vera taugatrekktar enda málstaðurinn kannske á hálum ís. Og mikill er hrokinn ef ekki má tala mannamál í fg cirkus við vissan völl  Kveð þá sem það eiga skilið kært


mbl.is Áminntur fyrir tal um magakveisu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 27. apríl 2010

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 537318

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband