"móðursýki"

Skildi þessi móðursýki vera skyld vissri sýki hjá vissri stofnun hér á landi. Maður með mikla reynslu talar á móti fræðingunum. Ég myndi aldrei trúa að svo reyndur maður hreifði flugvél fulla af farþegum ef hann væri ekki viss í sinni sök. En kannske er hann hættur að fljúga?? Gaman að sjá hvernig fer.Kært kvödd sem það eiga skilið
mbl.is Segir flugbannið vera móðursýki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"nú verður kátt í höllinni"

Ja nú verður spennandi að sjá hvort veraldleg yfirvöld yfirvinna "listina" og alla álfana. Þá meina ég ekki þá veraldlegu
mbl.is Segir aðgerðir borgaryfirvalda lögleysu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"tap þjóðarinnar"

Talandi um tap í milljörðum út af eldgosinu, væri gaman að velta fram spurningunni:"hvað tapar þjóðin á  á dag á því að hafa þessa menn sem stjórna fiskveiðimálunum í dag??" Ímyndið ykkur þetta svokallaða "togararall" Það verður t.d að fara á öskuhauga landsins til að finna þá hlera sem notaðir eru.

 

 

Og eins og þoskurinn kunni ekki að synda ( kannske er rannsóknarfólkið sem er í leiðöngrum stofnunarinnar við Skúlagötu svo upptekið að kenna þessum litlu krílum sem þeir fá í seiðarannsóknunum að synda að þeir gleymi að telja þau)og hreyfa  þá er bara togað á sömu svæðum öll árin.

 

 

Ekkert leitað út fyrir þau. Mér skilst að loðnuleitin í vetur hafi verið helber vitleysa og að alltof fljótt hafi v erið hætt við hana. Vart hafi verið við loðnu hér A af Eyjum fram eftir vetri, En þögnin er ógnþrungun um þetta mál. Og svo kenna ´þeir sennilega fjárskorti um ef einhverntíma tekst ap sanna helví... vitleysuna upp á þá Eins og forstjóri vissrar eftirlitsstofnunar með peningamálum.

 

Mikið lifandis skelfing höfum við íslendingar verið óheppin með ráðherra,seðlabankastjóra, og forstjóra margra stofnana sem við eigum mikið upp að unna. Ég segji nú ekki annað. Kært kvaddir sem skilið eiga


mbl.is Tapa 25 milljörðum á dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"almenningur borgar"

Ein andsk..... vitleysan sem almenningur verður að borga fyrir. Einhver útlærður lögspekingur sem hefur sennilega þúsundir króna á klukkutíma fyrir útselda vinnun "gleymdi" að skila inn gögnum um kröfu á einn af þessum föllnu bönkum á tilsettum tíma. .

Hvað skyldi sjóðurinn hafa þurft að borga lögfræðiskrifstofunni fyrir unna vinnu. Allir geta gert mistök Og mannleg mistök verða fylgifiskur mannsins til eilífðar. En það virðist bara ekki vera sama hver gerir þau. Séra Jón eða bara Jón Ég vona að þið skiljið mig, Þá sem það eiga skilið kveð ég að venju kært


mbl.is Afskrifar kröfuna á Straum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"fyrirfram pantaðar niðurstöður"

Ekki líst mér á þessa "ormahreinsun" hjá Samfylkingunni. Svona nokkuð er alltof augljós blekkingarleikur. Að flokkar panti sjálfir"ormalyfið" Ég tek heilshugar undir kröfu "Hreyfingarinnar" um hverjir eigi að taka pokann sinn allavega fram að næstu kosningum En hér er listinn styttur vegna nýlegra afsagna

Bjarni Benediktsson, alþingismaður,
Einar K. Guðfinnsson, þáverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Guðlaugur Þór Þórðarson, þáverandi heilbrigðisráðherra,
Jóhönna Sigurðardóttur, þáverandi félags- og tryggingamálaráðherra,
Kristján L. Möller, fyrrverandi samgönguráðherra,
Steinunn Valdís Óskarsdóttur, alþingismaður, sat  þingflokksfundi dagana 11. og 18. febrúar 2008 þar sem fram komu upplýsingar um stöðu mála í efnahagslífinu, en fundargerðir frá þeim fundum eru á fylgiskjali 10 í gögnum frá Björgvin G. Sigurðsyni í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis
Tryggvi Þór Herbertsson, alþingismaður og fyrrverandi efnahagsráðgjafa forsætisráðherra, 
Þórunn Sveinbjarnardóttir, þáverandi umhverfisráðherra o
Össur Skarphéðinsson, þáverandi iðnaðarráðherra og staðgengill utanríkisráðherra.

Fyrr en þetta skeður verður engin friður í þjóðfélaginu, Kært kvaddir sem það eiga skilið


mbl.is Samfylkingin skipar umbótanefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"hassreyking"????

Það skildi þá aldrei vera að einhver hafi falið slatta af hassi í sinunni og svo kveikt í heila klabbinu. Og allir séu syngandi glaðir"to day" á Hrauninu. Ekki veit ég. Kveð þá sem eiga það skilið kært sem ávallt
mbl.is Sinueldur við Litla-Hraun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"sjómenn"

Aftur og en verða það sjómenn sem bjarga þessu "volaða"landi. Þeir eru aftur að komast í tísku.Sjómannalögin aftur farin að hljóma í útvarpinu. Þó það séu ekki íslenskir sjómenn sem flytja fólk núna milli Íslands og annara landa eru það að mestu leiti islendigar sem manna áætlunarflutningaskipin.

 

Það er alltaf verið að tala um hinar og þessar "einhæfingar" í öllu mögulegu. Hvað með samgögur til og frá landinu. Alltaf verið að tala um samhæfingar og viðbrögð vegna eldgosa.Hugsum okkur Kötlugos. Hefur engum dottið það í hug að þá getur "sjóvegurinn"verið eini færi vegur til og frá landinu Hvernig væri að hugsa alvarlega og fara að plana hvernig ef til þess kæmi yrði að flytja fólk og vörur til og frá landinu.


mbl.is Icelandair fellir niður allt Evrópuflug á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"sami grautur"

"Sami grautur í sömu skál" Hvað XD varðar.Allavega finnst mér það Kveð þá sem eiga það skilið kært
mbl.is Þrír nýir þingmenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 18. apríl 2010

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 537318

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband