Dularfullt

Þetta skipshvarf er algerlega með ólíkindum. Hvernig getur svona stórt skip horfið sporlaust á þessum slóðum.Ship+Photo+Jogaila Arctic Sea.Skipið virðist í fljótu bragði vera í góðu ástandi. Ég vona að menn fyrirgefi mér og með allri virðingu fyrir Rússum. Þá hef ég gefið þeim dálítið hornauga,hvað sjórán varðar.   c users georg pictures 2009 04 10 heimaklettur o a heimaklettur o a 020  Arctic Sea.

Minnugur þess að einusinni fannst 1 rússi  í gúmmíbát með mikil verðmæti á sér. Þegar málið var athugað kom í ljós að hann hafði myrt alla sína skipsfélaga. Og reynt að sökkva skipinu. En það flaut og allt komst upp. Þetta skeði í Norðursjónum. Og ég er orðin þess fullviss að rússneska mafían er með fingurna í sjóránunum við Sómalíu,

 

Þeir rússar sem ég hef kynnst og þeir eru þó nokkrir, eru alveg sómafólk. En ef maður lítur á árin fyrst eftir hrun kommúnismans getur manni dottið margt í hug. Þetta eru jú fleiri tugir þjóða með mismunandi trúarbrögð og menningu. Myndirnar af skipinu eru af Shipspotter. Læt þetta duga kært kvödd


mbl.is Leit hafin að flutningaskipi sem hvarf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Stæli ég glóandi gulli"

"Stæli ég glóandi gulli / úr greipum hvers einasta manns / þá væri ég örn minnar ættar / og orka míns föðurlands."kvað Skáldið frá Skáholti.. Þetta er orð að sönnu. Því meira sem menn stela því hærra virðast þeir geta fótað sig í þjófélagsstiganum og eru krossaðir í bak og fyrir fyrir störf að þjóðarheill og viti á fjármálum

 

 

 

Þessar krossfestingar hjá þessu gagnlausa forsetaembætti er orðið að hreinum skrípaleik. Og ætti að leggast niður áður en fleiri trúðar verða krossfestir.. Er nokkur furða þó fólk sé reitt . Þessi svokallaða" búshaldabylting"reydist vera stórpólitísk og hefur ekki gagnast þeim sem hún átti að gera. Þarna var bara fólki sem vildi agnúast út í lögregluna gefið tækifæri berja á henni.

 

 

Hvar er Hörður Torfason nú.? Sá annars mjög svo ágæti maður. Mér hefur alltaf þótt væntu um hann sem söngvara. Finnst honum"byltingin"hafa tekist sem skyldi. Það eina sem út úr þessu kom var að  Davíð var rekinn úr Seðlabankanum. Og hefur eitthvað breyst hjá Seðlabankanum ?????. Svo að út úr þessum kom stórt 0 núll. síró. 

 

 

 

Mig langar að segja ykkur smá sögu. Gamall maður úti á landi. hafði 130.000 útborgað úr Lífeyrissjóði og frá TR. Um daginn þekk hann bréf frá TR það sem honum er tilkynnt að hann hafði fengið 160.00 kr umframborgað á síðasta ári.  Því yrði að skera niður greiðslur hjá honum um að  minnstakosti 10.000 á mánuði.  Hann fær eitthvað um 60,000 (skulum vona að það skerðist ekki) úr lífeyrissjóði.  Eitthvað yfirlit fékk þessi maður um mánaðargreiðslu fram að áramótum þá kemur í ljós að hann á að fá frá TR mánuðina sept. okt, nóv 54.639 kr.per mán.

 

 

 

Þessi uppæð + 60,000 er samtals.114.639. Á þessu á maðurinn að lifa. Jú og einhverjum 10,000 sem hann fær í húsaleigubætut. Þessi maður hefur verið undir læknishendi í Reykjavík. Þ.e.a.s læknirinn sem er að fylgast með hans sjúkdómi er þar. Maðurinn á að leggast í á spítala þar í endaðan ágúst. En hann hefur hreinlega ekki efni á því.  TR borga ekki út fyrr en 1sta hvers mánaðar.  Og maðurinn á ekki kost á nema einni ferð á ári til lækninga sem TR kosta.  Og hana er hann búinn að nota

 

 

 

Hann kemst því ekki og verður bara að strunta í sinn sjúkdúm.  Það er von að ónefndur rithöfundur sem hefur 400.000 á mánuði frá ríkinu + tekjur af sínum ritstörfum hafi froðufellt við bíl Geirs Harde í vetur. Hann ætti kannske að hugsa til  fg manns ef hann fær frið til þess í kampavínsglasaglaumnum.  En þetta er Ísland í dag með vinstri stjórn á stóli.

 

 

 

 

Það var von að ónefndur ráherra hafi talað digurbarkalega um að loksins væri komin að völdum meirihluta vinstri stjórn    Ja verði þeim að góðu.   Ég ætla að enda þetta með að vitna í þá nafnana Jón Hreggviðsson og Marteinsson er þeir sátu að sumbli í henni Kaupmannahöfn forðum daga  Jón Marteinsson sagði eitthvað á þessa leið:"  Við skulum fá okkur franskt brennivín og súpu. Því Ísland er sokkið hvort eð er"  Síðan fengu þeir sér franskt brennivín og súpu . Þá segir Hreggviðsson:" Ég held að það mætti vera margsokkið mín vegna". "Það er sokkið "sagði þá hinn.  Ég kveð ykkur eins kært og ástandið býður uppá.

 


mbl.is Undirbúa málsókn á hendur Gift
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"pourqoui pas" ????

Menn greinir á um þetta helv.... Iceslave drasl. En hverni væri nú að þjóðin fengi að vita hver stofnaði virkilega ICESAVE. Það hýtur að vera hægt að yfirheyra menn og fá út byrjunina á þessu. Þetta mál er alltaf persónugert Landsbankanum.

 

 

En voru það ekki menn sem héldu um stjórnvölinn á þessu andsk..... banka. Eiga þeir að sleppa eins og olíufurstarnir. Af hverju eru þessir menn ekki látnir borga skuldir sína . Svo er alltaf suðað um: Við verðum öll að standa saman því við tókum öll þátt í þessu. Þetta er bara helv.... kjaftæði. 101 liðið getur kannske sönglað þetta en ekki hinn almenni borgari út á landi.

 

 

Ekki nema kannske þeir sem voru" vélaðir" til að selja verðlausar eigni sínar út á landi (afleiðing kvótakerfisins) og taka himinhá lán til að kaupa sér híbýli á Stór-Reykjavíkursvæðinu Vélað af hverjum jú þessum andsk..... mönnum sem settu heila þjóð út á gaddin. Ef t.d Björgúlfur Thor sem er milljarðamæringur er upphafsmaður að Icesave. Af hverju er þá ekki tekið fjárnám í eignum hans. Allavega vegna skuldarinnar vegna kaupanna á bankanum.

 

 

Sigurjón Þ. Árnason,Halldór J. Kristjánsson komu þeir hvergi nálægt stofnun þessa helv.... óvættar sem þessi and....... Icesave, fyrirgefið Iceslave máli.Af hverju er ekkert hreyfi við þessum mönnu. Og menn spyrja sig oft á dag :"af hverju ???" þetta og hitt. Lýðveldið Ísland er rúmlega 65 ára gamallt. Og menn hafa gortað sif af gamalli tæplega 1080 ára alþingishefð.

 

En þetta lýðveldi hefur enn engin lög sett sem ná yfir stórþjófa. Bara ef þjófnaðurinn er innan við milljarð. Af hverju spyr maður. Af hverju  mistókst alþingi. Ég vil aðallega kenna einkavina- frændsemis- klúbba-og allslags stúku- tenglsum. Ég hef sagt það áður og bendi á það enn 

 

Í svona litlu þjóðfélagi þar sem varla er hægt að finna dómara til að dæma hlutlaust knattleiki vegna tengsla við einhvern í öðtuhvoru liðinu. Hvernig er þá hægt að finna hlutlausa menn í rannsókn á svona stórmáli sem t.d Icesave málið er. Mér er andsk..... sama hvað hver segir .En þetta er bara hinn bitri sannleikur í málinu. Ég kveð ykkur eins kært og mér er unnt vegna reiði.

 


mbl.is Ræða breytingar á Icesave í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"láti gott á vita"

Þetta finnst nér lítil tíðindi. Þetta er nú það sem margir sérfræðingar hafa haldið fram. Og nú er heyrnin sennilega farin að svíkja mig.

Því mér heyrðist hinn helblái íhaldsmaður Ingi Hrafn afneita þessum vini sínum ásamt öðrum vildarvini Geir H Harde í útvarpsþætti í morgun.

 

Ég var að vísu nývaknaður og mig hefur kannske bara dreymt þetta. En guð láti gott á vita ef satt reynist. Kannske maður geti farið að horfa á INN. Kært kvödd


mbl.is Segir Davíð hafa skort sérfræðiþekkingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ávextir m.m

Þegar ég fór fyrst að muna eftir mér var hér við stjórn svokölluð Nýsköpunarstjórn, Samsteypustjórn,Sjálfstæðisflokks, Alþýðuflokks og Sósíalistaflokks Alþýðu.

 

 

 

Undir stjórn Ólafs Thors . Stjórnin var fyrsta ríkisstjórn hins unga lýðveldis sem studdist við þingræðislegan meirihluta. Þetta er að margra mati besta stjórn sem setið hefur að völdum á Íslandi. Þarna voru í stjórn flokkar lengst til vinstri Sósíalistar og lengst til hægri Sjálfstæðismenn.

 

Nú er  stjórn sem er lengst til vinstri. Þetta ætti nú að vera verkalýðnum,eldriborgurum,öryrkjum og öllum sem minna mega sín til góða. Og það er von að ráðherra félagsmála sé brosmildur á myndinni sem fylgir þessari frétt. Því sennilega hefur hann sett met í meðhöndlun sinni á f.g hópum. Á mínum uppvaxtar árum voru verkalýðsfélög VERKALÝÐSFÉLÖG.

 

 

Faðir minn var nokkur ár formaður Verkalýðsfélags Borgarnes. Og aldrei vissi ég tl að hann hafi fengið krónu fyrir það starf. Nú eru verkalýðsleiðtogar með tekjuhæðstu mönnum í þjóðfélaginu. Allavega sumir af þeim. Og hvernig hafa þeir stutt fg hópa. Þá barði Einar Olgeirsson oft í borðið og sagði við vin sinn Ólaf Thors:"hingað og ekki lengra" Og Ólafur Thors leysti verkfall að mig minnir með að lækka vöruverð

 

 

Þá þorðu þessir menn að láta að sér kveða og létu ekki vaða yfir sig á skítugum skónum .Og sósíalistar þorðu að vera það. Þá var ekki við líðið sá pilsfaldasósíalismi sem tíðkast í dag. Og þá þorðu sósíalistar að vera menn og láta ekki allt yfir sig ganga. Samanber stjórnarslitin 10 okt 1946. Þó að stjórnin starfaði til 4 febr. 1947.SÓSÍALISTAR  þess tíma stóðu upp úr stólunum þegar þeir vildu ekki samþykkja inngönguna í NATÓ. Aðalpilsfaldasósíalistinn í dag lætur allan andsk.... vaða yfir sig bara til að halda stólnum.

 

Á þessum árum voru nýjir ávextir munaðarvara og voru skammtaðir . Og ef mig brestur ekki minni þess meir fengust þeir bara fyrir jól. Og það voru aðallega epli og appelsínur. Einstaka sinnum vínber. Banönum man ég ekki efir og smakkaði þá ekki fyrr en fullorðin maður. Nú er þetta að verða svipað þökk sé VINSTRI mönnum. Nema að nú er nóg úrval. Það vantar ekki en vegna verðs eru þeir ornir munaðarvara fyrir UPPÁHALDSHÓPA ráðherra félagsmála og kollega hans í hinni vinstrisinnuðu ríkisstjórn.,

 

 

Fg hópar hafa ekki efni á að kaupa þá lengur.Þessir hópana sem mega búast við að ættingarnir fái stóra bakreikninga ef þeir hrökkva upp af. Hópana sem ekki geta hönd yfir höfuð  sér borið. Meðan vildarvinir hinnar svokölluðu vinnstri stjórnar maka krókinn í allslags ráðgöf búskiftum bakna og gjaldþrota heimilum o.sv. fr..

 

 

Þessi stjórn sem nú starfar hefur gengið lengra en nokkur Íhaldsstjórn hefur gert á að aðrræna fg hópa. Nú er reiðin að ná yfirhöndinni svo ég ætla að hætta áður enn ég verð orðljótari. Um leið og ég kveð ykkur kært býð ég góða nótt og megið ykkur dreyma um suðræna ávexti. 


mbl.is Vilja breytinguna burt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 9. ágúst 2009

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband