Er þetta:"Ísland í dag"?

Það er með ólíkindum að svona skuli vera að ske á Íslandi árið 2009. Þessir andsk.....  menn sem kenndir eru við útrás og víkinga skulu vera búnir að koma einum duglegustu verka og sjó-mönnum/konum í heimi á hné.

 

Gera verkalýðin að hálfgerðum betlurum. Við víkinga er hægt að samsama þessa djö... Hvernig voru þessi svokölluðu"víkingar"til forna  Í sannleika sagt og með allri virðingu fyrir sögu landsins, hvað voru þeir eiginlega ??. 

 

Alveg eins og þeir nútíma  fóru þeir rænandi, ruplandi um lönd og skildu eftir sig sviðna jörð. Nema þeir tll forna nauðguðu bara einni konu í einu en þessir nútíma djöflar nauðguðu heilli þjóð.  Á einu bretti.  Og nú verða íslendingar eins og Þjóðverjar eftir WW1 og Finnar eftir WW2  að borga háar svimandi háar upphæðir Kært kvödd


mbl.is Hætta við skólavist vegna fjárskorts
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"eftir þessu var beðið"

Í vor sagði S,J.S hreykin að nú hefði verið mynduð"hrein vinstri"stjórn eins og hann orðaði það. Og ég þessi andsk..... fv íhaldsskurfur trúði á orð hans. Það var  sennilega jafnt á komið með mig og þá sem á sínum tíma  trúðu á" alræði öreyganna" Sem t.d þessi maður boðaðiLenin 05d og  þessi Karl Marx eða þessi Engels Þó í öfugri þessari röð að ég held. Ég trúði því að hin "hreina vinstri stjórn" myndi hlífa eldri borgurum ja þið þekkið röðina. En hvað hefur skeð engin ekki nokkur ríkisstjórn hefur lagt eins miklar byrgðar á þá sem minna mega sín. Engin. sacma Þessi"hreina vinstri stjórn" hefur ekki hlíft þeim sem minna mega sín heldur hinum. Læt þetta duga í bili. Kært kvödd


mbl.is Mesta kaupmáttarrýrnunin í 20 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fleiri gamlir kunningar

Maður er orðin algerlega kjaftstopp yfir öllu því óréttléti sem viðgengst í þessu þjóðfélagi nú um stundir. Fólk kemur hvert af öðru til presta og segist ekki getað sett börn sín í skóla.

Svo koma menn sem ekki kunna að skammast sín í sjónvarp brosandi ( glottandi ???) framan í alþjóð og segjast alsaklausir. Smáglæta í hörmungum dagsins í dag: Lítil telpa úr Reykjavík var um tíma hjá ömmu sinni hér í Eyjum um daginn.

 

ship being scrapped at alang s    503473070 ac48c4e7ee b Frá hinum alræmda skipakirkjugarði í Alang Indlandi Sem kemur við sögu í þessu bloggi

Á leiðinnni heim í höfuðborgarinnar sagðist sú stutta bara vilja eiga heima hjá ömmu í Vestmannaeyjum. "Þar er engin ríkisstjórn og engin  kreppa".Bragð er að ef barnið finnur var sagt í eina tíð.  Þessvegna hef ég valið að halda mig á rólegu nótunum í bili og dunda mér við að rifja upp "gamla kunninga" í farskipa sögu landsins.

 

Ég fór oft í gegn um Suezskurðinn. Þegar ég fór þarna síðast um á N.leið í Suez( þar safnast skipin saman til að fara N skurðinn. En í Port Said safnast þau saman sem fara S) blöstu við mér 2 skip sem ég kannaðist við. Og viti menn þarna var gamall vinur sem þá hét Maya Reeferimage 5  Maya Reefer og Captain Mohamed K Á þessu skipi hafði ég verið í rúm 2 ár með öðlingnum Þór Elíssyni. Skipið  hét  þá Stuðlafoss. Hitt skipið hét Captain Mohamed K image 9image 10image 7

Saga skipanna er þessi: Maya Reefer er smíðuð í Grangermouth Skotlandi 1964 fyrir Jökla h/f Reykjavík og fékk nafnið Hofsjökull Yard nr 533. 2361 ts .2860 DW, Loa 89.5 m. brd: 13,8. 1977 kaupir Eimskip skipið og skýrir Stuðlafoss. 1986 er skipið selt og fær eftirfarandi nöfn: 1986 Malu. 1989 Miss Xenia. 1993 Maya Reefer. Skipið var svo rifið í skipakirkjugarðinum í Alang Indlandi  í mars 2003. Vantaði 1 ár i að verða 40 ára,Ship+Photo+Maya+ReeferMaya Reefer Hitt skipið  Mohamed+K Captain Mohamed K.Var smíðað hjá Trondhjems í Trondheim Noregi 1971 sem Barok fyrir Fred Olsen. Smíðanr 646. 1516 ts, 2856 Dw Loa 87.0 m. brd 15,4Barok BarokBarok 1 Barok. 1983 kaupa Hafskip í Reykjavík skipið og skírir Rangá. Við gjaldþrot Hafskipa kaupa Eimskip skipið og skírir Írafoss. Eimskip selur það sama ár og fær það síðan eftirfarandi nöfnShip+Photo+Captain+Mohamed+K  1986 Marc Island, 1991 Venus. 1994 Hassnaa, 1997 Captain Mohamed  2002 Captain Mohamed K  Um endalok er ég ekki alveg viss en ég held að það hafi verið rifið 2005. Þó ekki viss. Þær myndir sem ég tók ekki sjálfur fann ég á Shipspotter og annarstaðar á netinu. Með von um að einhver hafi haft gaman að þessum hugleiðingum kveð ég kært , með von um að mér verði fyrirgefið"lánið" á þeim myndum sem ég á ekki sjálfur.


Bloggfærslur 23. ágúst 2009

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband