5.7.2009 | 19:59
Miklir menn ?
"Miklir menn erum við Hrólfur minn og fallega pissar Brúnka",var einhverntíma sagt. Mikið eru þessir menn ánægðir með sjálfan sig. Og finnast sjálfir þeir vera algerlega ómissandi. Og sitja í embættum óhagganlegir þrátt fyrir algert vantraust allstaðar frá. Mig minnir að einhverntíman hafi verið talað um "þjóðholla" menn.
Mér finnst fyrrgreindir menn ekki sýna af sér mikla þjóðhollustu. Það er með ólíkindum þessi andsko.... fyrirlitning á réttu siðferði sem heltekur ráðamenn/konur þessa lands. Fyrir nokkru sagði danskur ráðherra af sér vegna þess vegna þess að eiginmaður hennar borgaði ekki af sófasetti sem hann hafði keypt. Hvað skyldi þurfa mörg sófasett til að íslenskur ráðamaður segti af sér. Íslenskur fv ráherra sat sem fastast á meðan makinn hreinlega stal af þjóðinni og það í ráðuneyti sem stjórnaði þeim málaflokk sem gjörningur makans svo sannarlega heyrði undir.
Annar fv ráðherra núverandi alþingismaður laug vísvitandi og sagði að hún og makinn hefðu tapað ævisparnaðinum í bankahruninu. En nú er annað komið í ljós. Og svo embættismaðurinn sem gleymdi skjölunum á borðinu hjá sér. Alveg óvart. Læt þetta duga í bili. Kært kvödd
![]() |
Frumvarp um sérstakan ríkissaksóknara fyrir þingið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.7.2009 | 18:38
Hvað með öryggið???
Ég veit ósköp vel um samgönguerfiðleika hvað Vestmannaeyjar varðar. Og ég veit ósköp vel um farþegafjöldan sem bíður hér í Eyjum eftir fari í land.
Og ég veit líka að kannske á maður ekki að nefna þetta til að fólk haldi ró sinni. En er ekki töluverð áhætta tekin að sigla skipinu aðeins á 1 vél ? Einhvernvegin hefur mér fundist vélarnar í skipinu ekki traustvekjandi. Tíðar bilanir undanfarið. En það er kannske bara þessi vél sem núna bilaði sem allaf er að bila. Og er þá ekki svolítið reynt að"pína"vélina sem í lagi er.
Ég er bara að velta fyrir mér hver fær"skellinn"ef illa fer. Ég segi við sjálfan mig hér sitjandi í góðum stól við tölvuna: "Ef ég væri skipstjóri myndi ég neita þessu" En ég veit líka um þrýstinginn á manninn og ef ég væri í hans sporum myndi ég sennilega gera alveg eins. Og hann metur þetta sennilega eftir veðurútliti m.m.
En það þarf líka sterkar taugar til að vera á annari vélinni með fullt skip af farþegum. En svoleiðis er aldrei fullþakkað. Góð er sagan af þegar Jón Reynir fv skipstjóri á skipinu tilkynnti farþegum sínum að því miður væri ófært inn til Þorlákshafnar og yrði skipið að fara til Reykjavíkur. Þá á að hafa komið fólk til hans og spurt:"Hvað með Selfoss er ekki fært þar". Kært kvödd
![]() |
Tafir vegna bilunar í Herjólfi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggfærslur 5. júlí 2009
Um bloggið
Ólafur Ragnarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
kolbrunerin
-
gudruntora
-
gmaria
-
dala
-
nafar
-
valmundur
-
johannesgylfi
-
gudrunmagnea
-
rheidur
-
gretarmar
-
magnusthor
-
nilli
-
georg
-
lydurarnason
-
reykur
-
johanneliasson
-
helgigunnars
-
hector
- kerfi
-
kallimatt
-
jonsnae
-
jp
-
jaj
-
hva
-
valurstef
-
sigurjonth
-
einherji
-
fiski
-
jakobk
-
harhar33
-
rs1600
-
iceman
-
thorirniels
-
kjartan
-
oliskula
-
1kaldi
-
gretar-petur
-
jon-o-vilhjalmsson
-
skulablogg
-
floyde
-
ragnarb
-
meistarinn
-
palmig
-
aevark
-
morgunbladid
-
zumann
-
jensgud
-
gutti
-
gudni-is
-
saethorhelgi
-
geirfz
-
iceship
-
fuf
-
saemi7
-
ketilas08
-
kokkurinn
-
einarorneinars
-
xfakureyri
-
siggith
-
stormsker
-
valli57
-
markusth
-
luf
-
framtid
-
vefritid
-
jakob
-
postdoc
-
jenni-1001
-
mal214
-
partners
-
iceberg
-
valdivest
-
torfis
-
gattin
-
malacai
-
benz
-
gumson
-
hildurhelgas
-
minos
-
seinars
-
skinogskurir
-
krist
-
thjodarheidur
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 24
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 16
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar