"Allt í þessu fína"

Íslenski fjármálaráðherran er í betri"humör"en sá enski og óttast ekkert.:"Vélarnar eru í fullum gangi," er haft eftir Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra á vef breska blaðsins Telegraph. Telegraph segir raunar að hið sama eigi við um Steingrím J. Sigfússon sem hafi í síðustu viku komið á fót þremur nýjum bönkum í stað þeirra gömlu.

 

 

Hagkerfið sé að komast í eðlilegt horf að nýju. „Við munum komast betur út úr þessu en óttast var," er haft eftir Steingrími. „Við finnum fyrir virkni í hagkerfinu og að mörgu leyti má þakka genginu það," bætir hann við."

 

Og síðan segir:Telegraph segir að gengi krónunnar hafi fallið um helming gagnvart evru frá því að bankarnir þrír hrundu í október á síðasta ári og íslenska hagkerfið með. Ekkert sé ódýrt á Íslandi en verðlagið sé þó viðráðanlegt" tilvitnun í Vísir.is lýkur

 

Verðlagið viðráðanlegt. Ja stórt er nú af stað riðið. VERÐLAG VIÐRÁÐANLEGT kannske fyrir ráðherrann sjálfa en ekki fyrir ellilífeyrisþega og hina lægst launuðu. Það er á hreinu. Þeir hjá Telegraph hljóta að hafa þetta eftir ráðherranum sjálfum. Til hvers andsk..... vorum við að kjósa í vor. Til að fá aðra eins andsk..... bullukolla yfir okkur. Ég segi nú ekki annað allavega í bili en kveð ykkur samt kært.


mbl.is Darling varar við vaxtaokri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lengi getur vont versnað !!!

Ja nú fer skörin að færast upp á bekkinn og fjör að færast í leikinn. Var ekki til eitthvað sem hét/heitir;"FJÁRMÁlAEFTIRLIT" ??????? !!!!!!!! Og var ekki eitthvað til sem hét/heitir SEÐLABANKI  og sem á að vera eins og nafnið segir til um yfir seðlunum í landinu?????? !!!!!!.

 

Er nú von að svona  temmilega heiðarlegum alþýðumanni eins og mér sem hefur rétt rúmar 100.000 kr útborgað í lífeyri sé farið að blöskra. Vonandi eru öll vopn í slíkum búðum undir góðum læsingum Sala á rauðri málingu hlýtur að rjúka upp ég segji nú bara ekki annað.

 

Maður er orðin svo reiður að maður nær varla upp í nýviðgert nefið á sér yfir þessum ósköpum En samt kveð ég ykkur kært um leið og ég,en og aftur vitna í séra Sigvalda í Manni og Konu er hann sagði eitthvað á þessa leið:"ja nú held ég að maður þurfi að fara að biðja guð að hjálpa sér." 


mbl.is Skoða lánveitingar Landsbanka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjölskylduharmleikur

Ekki þekki ég neitt til þessa fólks. En eftir að hafa lesið viðtal við eiginkonu mannsins sem í hlut á hugsa ég að þarna sé á ferðinni viðkvæmt jölskyldu mál.

 

Deilur milli erfinga. Þetta er að mínu mati mjög algengar deilur og sem geta blossað upp í hvaða fjölskyldu sem er. En eitt er á hreinu vín og vopn eiga aldrei samleið. Frekar en vín og svo margt annað Kært kvödd.


mbl.is Vopnaður maður handtekinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grái fiðringurinn???

Hvern andsk.... eru svona gamlingar að eltast við sér miklu yngri konur ???. Ég þekkti 3 danska skipstj. sem allir fengu hjartaáföll í Thailandi. Við sem þekktum þá vorum allir vissir um ástæðuna. En það skal tekið fram að mitt hjartabrengl hafði ekkert með slíka hluti að gera. Kært kvödd
mbl.is Sarkozy útskrifaður á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gamlir kunningar !!!

Það er stundum sagt að við gamlingarnir eigum ekki að láta hlutina fara í taugarnar á okkur og taka bara lífinu með ró. Ég hef undanfarna daga verið að rífa kja.. yfir flestu sem mér finnst fara á verri veg en ég sjálfur vildi. En nú ætla ég mér að vera á rólegum nótum og rifja upp atburði sem skeði í árdaga minnar sjómennsku. 116img1bh   Aukning á kaupskipaflota USA á stríðsárunum. Margir eldri borgarar sem eitthvað fóru niður að höfninni hér í"den" muna sennilega eftir stórum flutningaskipum sem oftast lágu við svokallaðan Miðbakka. Flest þessara skipa tilheyrðu Bandarísku skipafélagi Moore - McCormack Lines. Samuel R  Aitken Eitt af skipum M Mc C lines   Þessi skip fluttu nauðsynjar til Varnarliðsins hér á landi. Þetta voru að þeirra tíma allavega í augum íslendinga stór skip Þau voru um og yfir 140 m löng og voru 10-11 þús. ts dwt. Mér er minnistæður dagur í  nóv 1954. Þá var ég hjálparkokkur á Eldborg frá Borgarnesi (sem var þá flóabátur í Faxaflóa) Mig minnir að það hafi verið búið að vera SV ruddaveður en var að lægja og var að snúast ti SA áttar. 1 af skipum McCormack á á ytri höfninni.Mormacpenn%201946%202   Moremacpenn Og nú var verið að taka það inn. Þegar það er í hafnarmynninu rekur á hvassa vindhviðu  og skipið rekst harkalega í nyrðri hafnargarðinn. Með þeim afleiðingum að hálfur garðshausinn hrundi og vitinn sem á honum var fór í sjóinn. Boxairc   Eitt af skipum M Mc C lines.  Ég man alltaf hve lóðsinn sem var um borð tók þetta nærri sér.Hann var mikill vinur okkar Eldborgarmanna. Hafði verið lóðs í 10-15 ár og aldrei neitt komið fyrir. En við sjórétt játaði hann að skipstjórinn á flutningaskipinu hefði varað sig við. MORMACPENN%20(US)(1946)(Moore McCormack)%208x10%20copyMormacpenn  Saga Mormacpenn er þessi:Byggt fyrir Moore- McCormack lines Inc, San Francisco 1946 í Ingalls Pascagoula USA, 7909 ts 11800 DWT og af svokallaðri C3-S-A5 gerð.L.overall 150.0 m. Breidd 21,2. Skipið var selt1970 :" Oswego Shipping Co., Inc. (Marine Transport Lines Inc.) og skírt Silver Lark. Það var höggvið niður í Kaohsiung 1972.Svo líða 2 á þá lendir annað stórt banda-ríkst flutningaskip í vandræðum í Reykjavíkurhöfn Og nú er það desember 1956 og flutningaskipið var Haiti Victory0913023801 Haiti Victory   Ég hef sennilega verið á m/s Jökulfelli þegar þetta skeði og við vorum í höfninni,(lauslega hugsað til baka,hvað skip sem ég var á varðar)allavega man ég eftir eftir þessum atburði þegar þetta stóra skip sem gnæfði eiginlega yfir öll skipin í höfninni slitnaði frá utanverðum Faxagarði.Það var óvenju hátt í, í SV rokiHaiti%20Victory 01Haiti Victory   Hafnsögumaðurinn Magnús Runólfsson sýndi mikið snarræði sem,eftir að hann komst upp í þetta stóra skip sem var að slitna upp lét höggva á þær landfestar er eftir voru. Bakkaði skipinu svo eiginlega alveg upp að gömlu Loftsbryggjunni og setti svo á fulla ferð og silgdi nötrandi skipinu út á fyllstu ferð í gegn um hafnarmynnið og image 2  Ca leið H.Victory  út  úr höfninni. Magnús lagði svo skipinu við Garðskaga, en sigldi því svo aftur inn í Reykjavíkurhöfn daginn eftir. Skipshöfnin á dráttarbátnum Magna stóð sig með ólikindum vel  við aðstoð við skipið. Skip sem voru við Ingólfsgarð voru um tíma í mikilli hættu. Einnig bátar við verðbúðarbryggjurnar. Meðal skipa við Ibgólfsgarð var m.a. varðakipið Ægir I og hollenska skipið Cornelia B cornelia b IICornelia B    Margir töluðu um"Kraftaverk" hjá Magnúsi að koma þessu stóra skipi út úr höfninn án þess að nokkrar skemmdir yrðu. Saga Haiti Victory var þessi: Það var byggt 1944 í Permanente,Richmond #1, Sem Haiti Victory fyrir U.S.War Sg Administration, San Francisco.

 

Tons:7607 ts dwt: 10750 lgd overall 138.0 m br 18.9 m Skipið var af svokallaðri: VC2-S-AP3 gerð. 1959 er skipið selt: U.S.Navy. Og fær nafnið Longview, Skipið var höggvið upp í Portland Ore. 1976. Læt þessari upprifjun lokið með kærri kveðju til ykkar allra


Brenndir ???

Eru nú stjórnarliðar farnir að brenna sig á hinni heitu2272767555 645150156d kartöflu.? Og farir að reyna að láta kalt vatnwash clothes with cold water renna á hendina til að minnka skaðan. Ég held við ættum að bíða eftir betri kartöflumbaked potato sem þjóðin sætti sig betur við og flestir gætu kyngt. Kærlega kvödd í bili
mbl.is Vill fresta umsóknarferli ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slæmt

Þetta var áfall ekki bara fyrir þessa efnilega stúlku heldu okkur öll. Það er virkilega slæmt að þetta hafi skeð. En svona er ískaldur veruleikin. Við skulum bara vona að stúlkan nái sér að fullu . Og hafa kannske í huga:"fall er fararheil" Kært kvödd
mbl.is Helga meiddist í Novi Sad
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 26. júlí 2009

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband