Skrípaleikur !!!!

Ég tek undir orð Atla. Hræddur er ég um að flokksforingi hans myndi kalla þetta skrípaleik á hæsta stigi sem það virkilega er, væri hann í stjórnarandstöðu. Kært kvödd.


mbl.is Vill að AGS leggi spilin á borðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heilbrigð æska

Íslendingar geta verið stoltir af þessari ungu stúlku. Og það mikið stoltir.Og fjölmiðlar ættu að gefa henni meira pláss en gert er. Ég man þegar ég bjó í Sverige þá var sænsk stúlka mjög framarlega, að ég held í svokallaðri"sjöþraut".

 

 

Hún var mjög áberandi í fjölmiðlum þ.e.a.s þeir voru alltaf að tala um hana.  Mér finnst áhugi fjölmiðla hér ætti að beinast meir að Helgu Margréti  já og ungu heilbrigðu fólki í íþróttum.

 

En því miður er ég ekki sá áhugamaður um íþróttir sem ég ætti að vera samanber það að ég er áhugasamur um heilbrigða æsku. Enda fundið á eigin skinni hvernig hægt er að kasta einu stykki unglingsárum á glæ.

 

En smásaman er t.d áhugi minn á knattspyrnu að aukast þökk sé þeim Tómasi Inga og Magnúsi Gylfasyni í Pepsi-mörkunum á Stöð 2. Og ég get ekki annað en dáðst að þjálfara Eyjamanna í knattspyrnu Heimi Hallgrímssyni. Ég þekki manninn ekki neitt bara séð hann í sjónvarpinu og barði hann fyrst augum í dag  utan þess

Og ég get ekkert dæmt um hæfni hans sem þjálfara en mér finnst lífsgleðin einhvernveginn geisla af honum og hann hlítur að hrífa ungt fólk með sér. Þarna hugsa ég að sumir taki nú ekki undir þessi orð mín ef litið er á árangur liðsins í ár.

 

En hvað um það ég er viss um að þeir halda sæti sínu í"deildinni". En eitt er alvarlegt fyrir mig í þessum málum. Ég virðist vera með þeim ósköpum fæddur að ef ég horfi á knattspyrnuleik eða handbolta þá tapar alltaf liðið sem ég held með. Svo að það borgar sig fyrir IBV að ég haldi mig fjarri "vellinum" þegar þeir spila. Kært kvödd


mbl.is Helga Margrét með forystu eftir fyrri daginn á EM
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

N1

Það fór um mig skjálfti þegar ég las að miðinn hefði verið keyptur í N1. En svo kom dauðadómurinn N1 í hafnarfirði. Ekki í N1 í Vestmannaeyjaum  þar sem ég keypti minn.  Og nú get ég kannske sagt eins og maðurinn sem átti miða í Happdrætti Karlakórs Reykjavíkur hér í "den" Hans miði var á sama þúsundinu og vinningsmiðinn:"nú munaði litlu" Kært kvödd
mbl.is Vann 46 milljónir í Lottó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Himnafjöll

Hélt fyrst að einhver dani hefði sagt þetta. En þeir eru mjög svo sáttir við sitt Himmelbjerg. Kært kvödd


mbl.is Íslensku fjöllin lítil og sæt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það hlaut að vera.

Það kom upp svipað mál um daginn. Þá var það:

 

"Ástarbréf sem breskur karlmaður skrifaði spænskri unnustu sinni fyrir sextán árum er nú loks komið til skila. Bréfið týndist bakvið arinhillu en fannst þegar arinninn var tekinn niður vegna endurbóta" 

 

Nú fer maður  að skilja af hverju maður býr einn .Það skildi þó aldrei vera að ég ætti gamalt bréf milli þilja einhverstaðar. Hver veit. Allavega ekki ég .Kært kvödd 


mbl.is Ástin lenti á bið í 20 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aftur til fortíðar ???

Ja nú verðum við sennilega að snúa okkur að túputækjunum og japönsku mábílunum. Er okkur nokkur vorkun,. Nei og aftur nei. 

 

Við eigum nefnilega líka enn harðgerða sjómenn allavega fiskimenn þó að það sé verið að ganga af farmannastéttinni dauðri. 

 

Sem ásamt hruni bankana er hin mesta ógæfa fyrir íslenskt þjóðarbú. Hér á árum áður var alltaf talað um að Ísland hefði eiginlega öðlast sjálfstæði þegar við náðum siglingunum til og frá landinu í okkar hendur.

 

En sjómennirni koma til að rétta skútuna við aftur. Og ég tala nú ekki um ef okkur tekst að ná"siglingunum"aftur í okkar hendur. Kært kvödd.


mbl.is Icesave: Gæti stefnt í óefni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað hefðu þeir gert ???

Mér finnst þetta þinglið í dag vera hálfgerðir tindátar. Að örfáum undantekningum. Maður leiðir hugan að hvað hefðu þeir"gömlu" gert ? Hefðu þessir menn %C3%93lafur ThorsPBEmil J%C3%B3nsson1mynFinnurAj443px Brynj%C3%B3lfur Bjarnason látið neyða upp í sig allslags ósóma ???Treaty of Versailles  Og eða þessir:Einar olgeirssonmyndbb  Ég held að tækifærissinnarni í dag þoli ekki samanburð við þessa menn. Ég hef satt að segja oft dáðst að þeim báðum Jóhönnu Sig og Steingrími J. Jóhönnu fyrir oft eljulausa baráttu.og Steingrím fyrir ótrúlega hæfileika í að snúa út úr og snúa málum oft sér í hag. Og stundum einkennilegat"minnisleysi".

 

En Jóhanna er orðin þreytt og er faktíst búin að skila sínu. Og Steingrímir er jú Steingrímur. Bæði held ég að hafi tekið 1sta tækifæri til að losa sig við"leiðinda" mál og geta sag nú erum við búin að semja án þess að þau hreinlega hugsi málið til enda. Sleppa bara eins vel frá þessu og hægt er. Kært kvödd


mbl.is Fálmkenndar breytingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Síðasti ???

Það fer eftir hvernig maður túlkar orðið. Ég held nefnilega, án þess að gera lítið úr þessum alda fv hermanni að margir"skotgrafarhermenn" lifi góðu lífi. Kært kvödd
mbl.is Síðasti skotgrafahermaðurinn látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stuðningur ????

Mér finnst þetta með stuðning við ingöngu Íslands í EBE minni íllilega á þegar margar þjóðir ætluðu að styðja okkur í Öryggisráð Sþ. Sem betur fer náði ekki fram að ganga. Vonandi er um sama gervistuðning að ræða hér. Kært kvödd


mbl.is Ušackas heimsótti Alþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 25. júlí 2009

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband