Um hvað ???

Ég næ því eiginlega ekki inn í minn gamla heimska haus um hvað á eiginlega, að kjósa. Eigum við að segja í fyrra skiftið. Ef maður hugsar til yngri ára þá leitaði maður eftir aðgangi á sumum sviðum, Nú ef aðgangur var óásættanlegur af einhverjum ástæðum hætti maður við

 

Svo einfald var það nú. Mér finnst satt að segja að 2 kosningar sé bara bruðl á peningum. Og ef sem ég held,að við fáum ekki aðgang næstu ár þá er þetta sjálfhætt. Þarf ekki verðbólgan að vera komin niður í c a 2 % til að við getum komist inn Kært kvödd


mbl.is Þjóðin hafi fyrsta og síðasta orðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Óskabarnið"

Um þessar mundir eru ca 50 ár,síðan að, m/s Selfoss II og m/s Brúarfoss II sem að mínu mati eru fallegustu skipin í íslenska kaupskipaflotanum fyrr og síðar, komu til landsins Þau voru smíðuð  hjá Aalborg Værft í Ålborg Danmörk. Teiknuð af snillingnum Viggó E Maack.(það minnir mig allavega) Selfoss II sem kom að mig minnir seint á árinu 1958 og Brúarfoss II kom seinnipart árs 1960.

 

En fyrirrennari hans hvað nafn varðar Brúarfoss I var fyrsta íslenska  fystiskipið sem sem var smíðað sérstaklega fyrir íslendinga. Selfoss þjónaði Eimskipafélaginu í 24 ár eða þar til 1982 að hann var seldur 1981 fær hann nafnið ELFO. (S-unum sleppt) Því nafni heldur hann þar til hann er rifin á  Gadani Beach 3.2.85

 

 

Brúarfoss þjónaði Eimskip akkúrat 20 ár Hann hélt sínu nafni þar tl 1984 Síðan nöfnin eftir það 84 HORIZON - 86 WILLEM REEFER - 87 TRITON TRADER - 89 GLOBAL TRADER - 90 TRITON TRADER. Hann var svo rifinn : Alang 18.8.90

Við skulum vona að félagið verði búið að rétta svo vel kútnum 2010 að hægt verði að halda upp á afmæli komu þessara glæsilegu skipa á sínum tíma,með glæsibrag Kært kvödd


mbl.is Skipulagsbreytingar hjá Eimskip
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Standa við stóru orðin !!!!

Þau eru nokkur erfiðu málin hjá VG nú um stundir.  Formaður efnahags- og skattanefndar fór mikinn fyrir nokkrum dögum við fv starfsfólk Spron. Og sagði eitthvað á þá leið að ef lögin leyfðu ekki að launin yrði borguð út, "þá breytum við bara lögunum" Svo kemur ráðherra viðskifta seinna í fréttir og segir eingan veg til að breyta þessu. Hvernig í andsk...... á maður að geta trúað á þetta fólk. Kært kvödd.
mbl.is Erfitt mál fyrir VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjá illa

Um daginn var þessi frétt í Mogganum Skildi Vodkin gera þeim lífið leitt. Það er allavega eitthvað bogið við öll þessi mistök.Kært kvödd

Skutu á þorp í misgripum Rússneski sjóherinn á æfingu.

Rússneski sjóherinn segir, að tundurspillir hafi gert stórskotaliðsárás á þorp í nágrenni St. Pétursborgar fyrir mistök.Sjóherinn segir að engan hafi sakað þegar tundurspillir í Eystraasaltsflotanum hafi skotið sprengjum á þorp í Vyborgarhéraði. Flotinn var á æfingu í Finnska flóa. Rússneski sjóherinn hefur lent í ýmsum óhöppum frá því Sovétríkin hrundu.  


mbl.is Rússar skutu niður eigin vélar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 10. júlí 2009

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband