2.6.2009 | 18:54
Sjómannadagur
Á sunnudaginn verður sjómannadagurinn 71 árs. Ég leyfi mér að fullyrða að hann hafi aldrei verið haldin við erfiðari aðstæður í þjóðfélaginu en nú.Þegar sá 1sti var haldinn hátíðlegur hafði skollið á heimskreppa nokkrum árum áður,en menn voru farnir að sjá til lands hvað hana varðaði. Og á árdegi hans var jú önnur vá fyrir dyrum. Styrjöld yfirvofandi í Evrópu. Og hún byrjaði 3ja september 1939. Frá árdögum dagsins.
Þessi styrjöld kostaði mörg líf íslenskra sjómanna. (kring um 300) Einnig skapaði hún erfiðleika á að afla nauðsynja til landsins. En að henni lokinni ( styrjöldinni ) höfðum við Íslendingar heldur betur rétt úr kútnum. Og upphófst mesta blómaskeið sem íslendingar upplifað til þess. Og þarna skeði það sem átti eftir að koma okkur í koll æ síðan að mínu mati. Við eiginlega skutumst út úr moldarkofunum og kömrunum og inni hallir með vatnssalerni og öllum þv þægindum. Sennilega hefur engin þjóðgrætteins mikið á stríðinu en við Íslendingar. Og á hverju græddum við jú nokkur % af þjóðinni sem kallast sjómenn voru við að afla fiskjar sem þeir síðan sigldu með til Englands. Brutu hafnbann Þjóðverja og sigldu á einum af hættulegustu svæðunum í Orustunni um Atlantshaf. Bændurnir sáu okkur svo fyrir þeim nauðsynjum sem þeir sköpuðu. Já það lyktaði allt af slori og kúaskít. Og því miður fengu sumir þefinn af púðrinu líka. Grimmdin í styrjaldaraðilar hlýfðu engum. Árásir voru gerðar á óvopnuð íslensk fiski og farskip og þeim sökkt fyrirfaralaust- lítið.Úr blaði í sept.1939:
Þjóðin verður því að taka því sem að höndum ber,með skynsemi og stillingu,slaka á kröfum sínum, þótt fyllilega rétmættar séu meðan nýtilkomið styrjaldarástand helst. Þetta síðasta á ekki síst við sjómennina sem eiga óuppgerða reikninga við stjórn og þing í ríkara mæli en önnur stétt.En einmitt því fremur sýna sjómenn þegnskap sinn og drenglund með því að ganga ótrauðir fram fyrir skjöldu um afla og aðdrætti í þjóðarbúið á þrengingartímum. Sjómenn leggja líf og limi í hættu á friðartímum og fá minni þökk en skyldi.
En vera kynni að augum þeirra, sem kaldrifjaðastir eru í garð sjómannastéttarinnar islensku. opnist ekki í annan tíma, betur en nú fyrir því hvar þjóðin væri stödd ef atorku sjómanna nyti ekki við. Enn gæti svo tiltekist, að þeir sem sitja á hjassanum heima í inni sínu, meðan slysa- og lífshætta sjómanna margfaldast, skilji að hér á landi er risin upp stétt manna sem ber á herðum sér íslenska menningu og afkomu, frekar öðrum íslenskum stéttum
Svo mörg voru þau orð, skrifuð fyrir tæpum 70 árum. Það hefur mikið breyst á þessum 70 árum. En margt á hreinlega við daginn í dag. Talið er að um 300 íslenskir sjómenn hafi farist á stríðsárunum. Miðað við höfðatöluna frægu mun þetta vera svipað og Bandaríkjamenn misstu af mönnum í stríðinu. Margt og mikið hefur sem betur fer breyst í öryggismálum sjómanna til hins betra. Þökk sé ýmsum aðilum. Meiri menntun,stærri skip,fullkomnari tæki og fl og fl..
En enn og aftur verða það sjómenn sem að stórum hluta koma til með að koma okkur út úr þeirri kreppu sem nú stendur og þessari styrjöld sem geysar á alheimsfjármálamarkaðinum. En að núinu. Ég skora á sjómenn að láta heyra í sér á sjómannadaginn. Og hreinlega að banna fulltrúum stjórnvalda og útgerrðarmanna að koma í ræðustóla þennan dag. Þeir hafa hvort sem er ekkert fram að færa annað einhverja loðmollu um ágæti sjómanna.
Sem aldrei er á öðrum dögum er talað um. Nú eiga sjómenn að nota daginn um leið og þeir minnast fallina félaga og fagna úr greypum Ægis gripna til að krefjast ýmissa réttar bóta. Bera baráttu spjöld í skrúðgöngum. Sjómenn ég skora á ykkur að rísa upp áafturlappirnarog sýna þessu listaspýrudóti að það eruð þið sem eruð undirstaðan undir þessu nú hálfgjaldþrota þjóðarbúi. Fólk á listamannalaunum aflar sáralítils gjaldeyris á móts við ykkur. Þó þetta lið láti mynda sig í bak og fyrir við allslags mótmæli Íslenskir sjómenn munið að það voru þið sem komuð svokallaðri menningu á koppinn.
Það voruð þið sem öfluðu peninga svo hægt væri að borga svokölluð listamannalaun. Ég skora enn og aftur á ykkur að láta heyra í ykkur á Sjómannadaginn. Hafnið öllu leirburðsrugi sem vellur út um munnvikin á þessum svokölluðum stjórnendum þesa lands. Og hleypið engum frá þesum stórútgerðarblokkum í ræðustóla öðruvísi en að þeir lofi að hætta við að braska með kvótan.
Munið að það voru störf sem gáfu af sér slor og fjósalykt sem kom þessari þjóð á lappirnar. Og munið það íslenskir sjómenn að dagurinn ykkar heitir Sjómannadagur og hreint ekkert annað Öll önnur nöfn eru lagleysa. Ég óska ykkur til hamingu með daginn ykkar á sunnudaginn og velfarnaðar , vonandi slysalitlum komandi árum. Verið ávallt kært kvaddir
Bloggfærslur 2. júní 2009
Um bloggið
Ólafur Ragnarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
kolbrunerin
-
gudruntora
-
gmaria
-
dala
-
nafar
-
valmundur
-
johannesgylfi
-
gudrunmagnea
-
rheidur
-
gretarmar
-
magnusthor
-
nilli
-
georg
-
lydurarnason
-
reykur
-
johanneliasson
-
helgigunnars
-
hector
- kerfi
-
kallimatt
-
jonsnae
-
jp
-
jaj
-
hva
-
valurstef
-
sigurjonth
-
einherji
-
fiski
-
jakobk
-
harhar33
-
rs1600
-
iceman
-
thorirniels
-
kjartan
-
oliskula
-
1kaldi
-
gretar-petur
-
jon-o-vilhjalmsson
-
skulablogg
-
floyde
-
ragnarb
-
meistarinn
-
palmig
-
aevark
-
morgunbladid
-
zumann
-
jensgud
-
gutti
-
gudni-is
-
saethorhelgi
-
geirfz
-
iceship
-
fuf
-
saemi7
-
ketilas08
-
kokkurinn
-
einarorneinars
-
xfakureyri
-
siggith
-
stormsker
-
valli57
-
markusth
-
luf
-
framtid
-
vefritid
-
jakob
-
postdoc
-
jenni-1001
-
mal214
-
partners
-
iceberg
-
valdivest
-
torfis
-
gattin
-
malacai
-
benz
-
gumson
-
hildurhelgas
-
minos
-
seinars
-
skinogskurir
-
krist
-
thjodarheidur
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 24
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 16
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar