29.5.2009 | 22:16
Föðurland óskast !!!
Mér er fjandans sama þótt tönglast sé á að ekki megi leita að einhverjum sökudólgum fyrir ástandinu sem er á þessu eylandi í dag. Og kjaftæðu eins og við tókum öll þátt í þessu tek ég lítið mark á. Við,ég og mínir líkir tókum engan þátt í veislunni.
En aldraðir öryrkjar og aðrir sem minna mega sín verða að axla stærstu byrgðarnar. Og mér finnst satt að sega nokkrir ónefndir menn ekki eiga það skilið að geta kallað þetta land sem föðurland. Og ég er reyndar steinhissa á að einhver af þessum mönnum sem þrátt fyrir allt virðast eiga næga peninga í hinum mörgu skattaskjólum sem sennilega aldrei finnast, skuli ekki vera búinn að kaupa eina af eyjunum í Carribbean og stofnað þar nýlendu fyrir úrelta fjármálamenn. Þá gætu þessir herrarflaggaðsér út og lifað áhyggulausu lífi í hinu nýja föðurlandi án þess að hægt væri að koma yfir þá sök ef hún reynist fyrir hendi. Sem margir segja að sé fyrir hendi. Því að enga framsalsamninga yrði um að ræða í þessu útflöggunarsamfélagi. En nóg af þessum gaurum .
International Monetary Fund skamstafað IMF sem stjórnar nú um stundir segir að botninum sé ekki náð. Og enn og aftur detta mér í hug orð séra Sigvalda í Manni og Konu er hann sagði eitthvað á þessa leið :ja nú held ég að maður verði að fara að biðja guð að hjálpa sér Hvernig í ósköpunum getur þessi hagfræði verið svona íllskiljanleg fólki eins og t.d. mér með,að ég held ekki mjög langt undir meðalgreind. Hvernig getur staðið á því að prófessorar í greininni við Háskóla á Íslandi eru algerlega á öndverðum meið við þennan f.g sjóð sem og maður sem margir hafa í mín eyru talið færastan í greininni hér á landi og að mig minnir vann hjá sjóðnum.
Hreint ótrúlegt en satt að vísu. Einar sem að mig minni að hefði verið kenndur við Mýnes afgreiddi hagfræðinga með þessum orðum í samtali við Stefán Jónsson fréttamann:hagfræðingar eru vitlausustu menn á Íslandi
Ég hnaut um eina fyrirsögn í Fréttablaðinu í dag.Verta hryllir við hærri áfengisskatti En þeim virðist ekki hrylla við því að nú þurfa ellilífeyrisþegar,ötyrkjar og fleiri minnimátta sem lítið eða ekkert gætu hreift sig án bíls og eiga einhverja druslu svo að það megi verða,þurfa nú að borga minnst 7000 kr á tankinn. Þessir menn sem að mínu mati fleyttu rjóman ef svo mætti segja af góðærinu.
Ef það er hægt að tala um góðæri sem allt byggðist upp á lánum. En einu er ég sammála vini mínum og fv skipsfélaga (einu þeim skemmtilegasta sem ég hef siglt með) Geira á Goldfinger að þetta kallar á meira smygl. Þetta vitum við Geiri kannske manna best. Einnig kallar þetta á eins og hann bendir líka réttilega á meira heimabrugg. Og maður spyr sig hvar endar þetta allt saman? Það er staðeind að afbrot aukast við svona ástand og nú skal skorið niður í löggæslunni.Læt þetta duga af"nuddi"í dag. Verið ávallt kært kvödd
![]() |
Bensínlítrinn í 181 krónu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Bloggfærslur 29. maí 2009
Um bloggið
Ólafur Ragnarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
kolbrunerin
-
gudruntora
-
gmaria
-
dala
-
nafar
-
valmundur
-
johannesgylfi
-
gudrunmagnea
-
rheidur
-
gretarmar
-
magnusthor
-
nilli
-
georg
-
lydurarnason
-
reykur
-
johanneliasson
-
helgigunnars
-
hector
- kerfi
-
kallimatt
-
jonsnae
-
jp
-
jaj
-
hva
-
valurstef
-
sigurjonth
-
einherji
-
fiski
-
jakobk
-
harhar33
-
rs1600
-
iceman
-
thorirniels
-
kjartan
-
oliskula
-
1kaldi
-
gretar-petur
-
jon-o-vilhjalmsson
-
skulablogg
-
floyde
-
ragnarb
-
meistarinn
-
palmig
-
aevark
-
morgunbladid
-
zumann
-
jensgud
-
gutti
-
gudni-is
-
saethorhelgi
-
geirfz
-
iceship
-
fuf
-
saemi7
-
ketilas08
-
kokkurinn
-
einarorneinars
-
xfakureyri
-
siggith
-
stormsker
-
valli57
-
markusth
-
luf
-
framtid
-
vefritid
-
jakob
-
postdoc
-
jenni-1001
-
mal214
-
partners
-
iceberg
-
valdivest
-
torfis
-
gattin
-
malacai
-
benz
-
gumson
-
hildurhelgas
-
minos
-
seinars
-
skinogskurir
-
krist
-
thjodarheidur
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 24
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 16
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar