29.4.2009 | 23:20
Hættur
Ég hef ákveðið að hætta að hafa afskifti af starfsemi Frjálslyndaflokksins Þessi ákvörðun er tekin vegna þess að ég hreinlega skynja sömu andsk..... lætin vera í uppsiglingu um flokkinn og var í vetur.Það eru innadyra í flokknum komnir menn sem ég felli mig ekki við. Og aðrir eru þar fyrir sem falla undir sama hatt
Og ég gæti ekki treyst yfir þröskuld ef svo má að orði komast. Það er sagt að þegar"fíflunum"fer að fjölga í kring um mann ætti maður að skoða stöðu sjálfs síns. Ég gerði það og skoðun mín bar þann árangur að mér finnst ég vera fíflið, Ég virðist vera einn um álit mitt á þessum mönnum og þess vegna kveð ég nú.
Ég hef alltaf sagt meiningu mína og vil heldur hætta en að verða segja eitthvað annað til að halda friðinn, Ég vil taka það skýrt fram til að valda ekki miklum misskilningi að ef ég hefði haldið áfram þá hefði ég stutt formanninn Guðjón Arnar og vara formanninn Kolbrúnu Stefánsdóttir ásamt Helga Helgasyni fram í rauðan dauðan ef svo mætti að orði komast að ég tali ekki um hinn góða dreng Magnús Reyni og ég þakka þeim öllum kærlega samstarfið.
Já öllu því góða fólki sem ég kynntist í FF þakka ég góða viðkynningu og oftast ánægjulegt samskifti Ég á margar góðar minningar af því. Ég tek mér nú langt frí frá blogginu og kveð ykkur sem nennt að lesa síðurnar ásamt mínun mörgu bloggvinum ávallt kært.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
29.4.2009 | 17:30
Stórþjófnaður!!!! og fl klúður
Hverskonar"rumpulýður"byggir þetta land. Kona á besta aldri verður uppvís að stela frá"Ríkinu"og sem betur fer sáu dómarar um að hún var dæmd þungum dómi. Og heilar 24000 ísl kr koma vonandi í ríkissjóð ef konan borgar sektina. Nú ef konukindin heldur ekki skilorð og fer aftur að stela brennivíni það er eins gott að"réttvísin" sendi hana í stranga gæslu.
Fólki sem leyfir sér að stela miklum verðmætum eins og vodka og koníakspelum á helst að hýðast á almannafæri. Já það er eins gott að réttvísin sé vel á verði gegn"stórþjófum" En allt annað er ef nokkrir sómamenn komnir af velmenntuðu fólki"hirði"einhverja pappírssnepla sem kallast peningar. Þessir sómamenn komu því t.d.til leiðar að alkar og allslags misindisfólk eins og t.d. öryrkjar og aldraðir geta ekki látið eftir sér neinn munað.
Sumir kalla það munað að fá sér" í glas" t.d við kvefi eða til varnar svínaflensu, þó ég kalli það að fara á fyllerí. Og þá tala ég um mína eigin reynslu. Svo gera þeir harðsvírustu úr þessum flokkum sérstaklega þeim fyrstnefnda sig seka um stórþjófnaðu frá þjóðinni. Ja maður má ekki mæla af hneykslun. Það er munur að vera maður og míga standandi stendur einhverstaðar. Það er mikill munur á að vera klæddur listamannakuflinum og taka laun frá ríkinu heldur en að vera fv sjóari sem aldrei virðist virðist fá nóg þó svo að eftirlaunin hækki um heilar 10.000 kr á ári.
Er nú ekki munur fyrir okkur að fá reynda "Listamenn" með stóru elli í t.d stjórn alþingis. Áður fyrr var það yfirleitt listafólk með litlu elli. Fólk af llistum A,B. og C eða hvað þeir hétu nú þessir listar allir. En nú eru komnir vanir leikstjórar sem kunna til verks til að stjórna þessum ólátabelgjum við Austurvöll.
Nú þarf engan Hörð Torfason og aðra pottaberjendur til að lesa alþingismönnum pistilinn Þeir eru inni. Kosnir af einhverjum 0 flokki. Þessir vönu menn þurfa jú mannsæmandi laun. Hvern andsk.... eru svona ruglukollar eins og ég að rífa kja... Sem aldrei gerði annað er koma með hálfúldin og oftar en ekki maðkaðan fisk að landi.
Og síld loðnu og allslags skítalyktartilbúandi afurðir. Sem fer mjög ílla með hin miklu listamannanef. Sumir flýðu land. Einn þekktasti söngvari fyrri tíma sem líka þótti töluvert nefstór gerði það. Sennilega þó ekki skítalyktina en hún var víst"inn "þá. Slor og fjósalykt var inn á þeim tíma því að þeir asnar héldu þá að peningar kæmu í kjölfarið, Sanna listamenn sem sjálfkrafa fóru á laun hjá ríkinu var þá ekki búið að finna upp.
Allavega varð fg söngvari sem t.d. var fenginn til að synga á vegum Dana á heimsýningunni í París 1925 að sækja um styrk til alþingis 1937. Hvort hann fékk styrkinn veit ég ekki. Ja hvern andsk.... vill svona fv sjóaralýður að vera að rífa kja.. yfir að borga þessum miklu andans mönnum 2- 3 föld laun. Ég segi nú bara ekki annað. Og mikið megum við þessir fávísu ellibelgir vera þakklát fyrir Egil Helgason og allt það silfur sem hann lætur rigna yfir okkur. Læt þetta duga í bili
![]() |
Dæmd fyrir að stela vínflöskum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 29. apríl 2009
Um bloggið
Ólafur Ragnarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
kolbrunerin
-
gudruntora
-
gmaria
-
dala
-
nafar
-
valmundur
-
johannesgylfi
-
gudrunmagnea
-
rheidur
-
gretarmar
-
magnusthor
-
nilli
-
georg
-
lydurarnason
-
reykur
-
johanneliasson
-
helgigunnars
-
hector
- kerfi
-
kallimatt
-
jonsnae
-
jp
-
jaj
-
hva
-
valurstef
-
sigurjonth
-
einherji
-
fiski
-
jakobk
-
harhar33
-
rs1600
-
iceman
-
thorirniels
-
kjartan
-
oliskula
-
1kaldi
-
gretar-petur
-
jon-o-vilhjalmsson
-
skulablogg
-
floyde
-
ragnarb
-
meistarinn
-
palmig
-
aevark
-
morgunbladid
-
zumann
-
jensgud
-
gutti
-
gudni-is
-
saethorhelgi
-
geirfz
-
iceship
-
fuf
-
saemi7
-
ketilas08
-
kokkurinn
-
einarorneinars
-
xfakureyri
-
siggith
-
stormsker
-
valli57
-
markusth
-
luf
-
framtid
-
vefritid
-
jakob
-
postdoc
-
jenni-1001
-
mal214
-
partners
-
iceberg
-
valdivest
-
torfis
-
gattin
-
malacai
-
benz
-
gumson
-
hildurhelgas
-
minos
-
seinars
-
skinogskurir
-
krist
-
thjodarheidur
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 24
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 16
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar