Bull

"Hann lýsti því yfir, að hann hefði aldrei hyglað einu eða neinu fyrirtæki og myndi ekki gera það í nútíð eða framtíð" Þetta segir maður sem þegið hefur fleiri milljónir í styrki frá fjársterkum aðilum. Til að kaupa sér atkvæði.

 

Hverjir aðrir en XD trúa því að auðjörfar gefi/styrkji mönnum/menn í áhrifastöðum án þess að þeir fái eitthvað í staðin. Ég kalla svonalöguð ummæli á hreinni íslensku BULL. Kært kvödd í bili


mbl.is Segir 40 aðila hafa styrkt sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mannkostir ???

Hvort eiga það að vera styrkir frá stórfyrirtækjum eða mannkostir  sem koma fólki á þing eða í bæjarmál.  Ég bara spyr ???  Er þetta lýðræðið í framkvæmd.  Verður ungt og áhugasamt fólk í framtíðinni að fá"goodwillmútur" frá stórfyritækjum til að geta tekið þátt í stjórnmálum.?


mbl.is Styrkirnir vegna tveggja prófkjara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áróður m.m

"Sjálfstæðisflokkurinn tapar miklu" þetta er fyrirsögn á Mbl.is. töpuðu 3 mönnum ef þetta gengur eftir. Nú hugsa ég að margt  XD sé mér sammála að lítið sé að marka þessar kannanir. Þ.e.a.s þegar þær eru þeim ekki í hag. XD fólk er náttúrlega á móti öllu sem er ekki eftir þeirra rituali.

 

 

Í morgun var bæklingur í póstkassanum hjá mér. Þessi bæklingur var frá Eyverjum ungu XD fóki hér í Eyjum. Út úr bæklingnum datt lítill plastpoki. Til að"pakka saman" í skilst mér. Ungt fólk veit sem er, að eftir fjármálastjórn XD undanfarinn ár er litlu að pakka saman hjá fólki. Lítill plastpoki dugar. Alveg rétt athugað hjá hinu unga fólki.

 

Svo við lestur á bæklingnum kemur svo í ljós sýn XD á lýðræðinu. Þeir sem ekki ætla að kjósa XD ættu að skammast sín. Þeir flokkar sem ekki eru samstíga XD og XB í kvótamálum ættu að skammast sín fyrir að opna kosningaskrifstofu hér í Eyjum.

 

Vestmannaeyingar eiga sem sagt ekki fá að eiga neitt val. Ungt fólk í Vestmannaeyjum á að kjósa XD og XB annað á ekki að vera í boði fyrir það. Þetta er lýðræði í lagi,. Kært kvödd í bili. En það kemur meir.


mbl.is Sjálfstæðisflokkur tapar miklu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikilvægi kosninga

Mér hefur alltaf fundist"næstu"kosningar þær mikilvægustu. Eins og mér finnst nú, næstu kosningarnar þær mikilvægustu hingað til. Erum við ekki í hverjum kosningum að kjósa yfir okkur konur/menn til að sjá um velferð okkar á komandi árum eftir þær.

 

Mér finnst það fólk sem"við" kusum yfir okkur síðast gersamlega hafa brugðist okkur. Þá á ég við "naflaskoðunarflokkinn" XD og"þöggunarflokkinn"XS. Eða þá flokka sem mynduðu stjórn eftir síðustu kosningar. Samfylkingin talar þannig að það er eins og þau hafi ekki komið að stjórninni.

 

Að ég tali nú ekki um XB. Mér finnst þau hafa jafnvel meiri ábyrgð á ástandinu en XS. .En Sigmundur Davíð hittir sennilega naglan á höfuðið . Ástandið hefur hreinlega aldrei verið verra á Íslandi frá stofnun lýðveldisins. Og Sigmundur Davíð ætti að vita manna best af hverju. Ekki satt ? Kært kvödd í bili


mbl.is Mikilvægustu kosningarnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 22. apríl 2009

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband