19.4.2009 | 21:26
Smyglarar
Fyrir 2 árum eða 04-04-2007 bloggaði ég eftirfarandi: "Nýtt og stórt varðskip er mjög gott mál sem ég held að allir séu sammála um það.En er það nóg?
Hvað um eiturlyfjabarónana sem sitja um landið? Hvað með allar eyðivíkurnar/firðina á Austfjörðum?Ég hef því heyrt því fleygt að þær hafi verið notaðar hér á árum áður og þá fyrir guðaveigar. Menn eru ekki lengi að skjótast á góðum hraðbát yfir hafið til þeirra og landsetja slatta af eiturlyfjum þar í ró og næði.
Það hefur enginn eftirlit með þessu í dag. Er ekki alltaf verið að skera niður peninga til hinnar almennu löggæslu. Ég er hlynntur tindátunum hans Björns. Þeir eiga líka að vera dreyfðir um landbyggðina og þeir eiga að hafa til umráða kraftmikla hraðbáta. Og geta farið á sjó með litlum fyrirvara".
Þetta skrifaði ég þá og hlaut ónot fyrir. Ég sæi andsk.... í öllum hornum. Þegar ég sigldi hér á ströndinni sá maður oft margar skútur á siglingu við Austfirðina. Ég var alveg viss um að ekki voru þær allar í löglegum erindum og hafði oft orð á því. En menn hristu höfuðið og töldu þetta vitleysu í mér. En þetta er nú að koma í ljós betur og betur.
Muna menn ekki eftir bátnum sem"týndist"fyrir nokkrum árum. Þóttist ætla til Grundarfjarðar en kom ekki inn hjá Tilkynningarskyldunni en fannst svo í Vestmannaeyjum. Í korti um borð var stór kross í korti á stað hér eitthvað S í hafi. Hvað skildi hann hafa átt að sækja ?. Læt þetta duga í bili.Kært kvödd
![]() |
Í þriggja vikna gæsluvarðhald |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.4.2009 | 19:59
Bull
![]() |
Óvænt fé í íslenskum banka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.4.2009 | 18:51
Grjónasúpa
Framsókn er söm við sig. Einusinni var það grjónagrautur sem svo var skírður eftir formanni framsóknar og kallaðu"Steingrímur" Nú er það kjötsúpa.
Sem í gamla daga ásamt kindakjöti var stundum kölluð Eyvindur og Halla. Skyldi kindakjöt og kjötsúpan nú verða uppnefnd "Sigmundur og Eygló" Kært kvödd í bili.
![]() |
Kosningakjötsúpa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.4.2009 | 14:27
Ný stjórn
Jóhanna vill stýra næstu stjórn. En mikið er ég hræddur um að hún verði hreinlega ekki spurð. Það verði VG og Sjallarnir sem í henni verði. Með Steingrím J sem forsætisráðherra. Þá er óskastjórn D.O komin á. XD róa nú lífróður að ná aftur völdum. Og þeir selja sig ódýrt til þess.
Þeir vilja forðast það eins og heitan eldin á láta 2 vinstri flokka grafa í óhæfusulli undanfarinna ára. Bankahruninu, Sölunni á fasteignunum á Keflavíkurflugvelli. Kvótamálin og fl og fl. Forsætisráðherrastóllinn er eftirsóttur og ekki amalegt fyrir S.J.S að enda sinn feril í honum. Þessar hugleiðingar eru mínar prívat og hafa ekkert með þann stjórnmálaflokk sem ég styð að gera.Kært kvödd í bili
![]() |
Reiðubúin að leiða næstu stjórn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.4.2009 | 13:49
Kannanir
Skelfing fer það fyrir brjóstið á andstæðingum FF ef jákvæðar fréttir berast af flokknum. Frjálslyndir létu gera skoðanakönnun fyrir sig í NV-kjördæmi. Capacent Gallup gerði þessa könnun. C.G hefur gert kannanir undanfarið fyrir Moggan og RUV sem flestir hafa tekið einhvert mark á. En nú víkur svo við að ekkert er að marka þessa könnun þessa fyrirtækis.
Einn XD vitringurinn jafnar könnun C.G við verklag Göbbels í Þýskalandi á sínum tíma. Þeir hjá C.G eru honum sennilega mjög þakklátir fyrir samlíkinguna. Annað gáfnaljós segir þetta stangast á við skoðanakönnun á heimasíðu sinni þar sem ónefndur flokkur sigrar með miklum meirihluta á landsvísu. Annar telur svarhlutfall lélegt og þar fram eftir götunum.
Ég sjálfur er ekki trúaður á skoðanakannanir hvorki þær sem eru okkur í FF í vil eður ei. Ég tek mest mark á kosningaúrslitum sjálfum Ég held að skoðanakannanir geti komið sér ílla fyrir flokka. Ég held að ef flokkur fer að koma með góð úrslit úr þeim fari menn hreinlega að slá af í baráttunni.
Það er mín skoðun svo ég tek því lítið mark á þessum könnunum En í sambandi við þessa án þess þó að vita meir um það mál gæti þá ekki verið að aldur svarenda hafi verið eitthvað rýmkaður í þessari. Ég skil það þannig að í flestum könnunum sé hámarkið á aldri svarenda miðað við 65 ár. Og hún hafi kannske gerð um helgi þegar sjómenn eru oftar heima hjá sér en ella.
Án þess þó að ég hafi vit á þessu, En ég hef gaman af að rifja upp þegar ég bjó utanlands og FF buðu fram í 1sta sinn. Þá mældust þeir rétt fyrir kosningar með um 2 % í skoðanakönnunum. Mikill vinur minn en sem er á öndverðum meið við mig í stiórmmálum var alltaf að gera grín að tveggja % flokknum mínum. Ekki man ég % töluna sem flokkurinn fékk en 2 menn fengu þeir þó 1 væri uppbótarmaður.
En er ekki allt hey í harðindum. .Við skulum spyrja að leikslokum og ef við náum ekki inn þá er það sjálfum okkur að kenna. Þá hefur okkur misstekist að koma boðskapnum til fólksins. Við reynum eins og við getum og látum ekki deigan síga hvað sem skoðanakannanir segja. Og það er nátturlega gaman að sjá % stíga í könnunum en mest finnst mér gaman að sjá hræðslu andstæðingana við okkur. Þeir eru drulluhræddir við okkur. Og við skoðanabræður/systur mína segi ég bara"lofum mey að morgni" Kært kvædd í bili
![]() |
Frjálslyndir með 9,3% í NV |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 19. apríl 2009
Um bloggið
Ólafur Ragnarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
kolbrunerin
-
gudruntora
-
gmaria
-
dala
-
nafar
-
valmundur
-
johannesgylfi
-
gudrunmagnea
-
rheidur
-
gretarmar
-
magnusthor
-
nilli
-
georg
-
lydurarnason
-
reykur
-
johanneliasson
-
helgigunnars
-
hector
- kerfi
-
kallimatt
-
jonsnae
-
jp
-
jaj
-
hva
-
valurstef
-
sigurjonth
-
einherji
-
fiski
-
jakobk
-
harhar33
-
rs1600
-
iceman
-
thorirniels
-
kjartan
-
oliskula
-
1kaldi
-
gretar-petur
-
jon-o-vilhjalmsson
-
skulablogg
-
floyde
-
ragnarb
-
meistarinn
-
palmig
-
aevark
-
morgunbladid
-
zumann
-
jensgud
-
gutti
-
gudni-is
-
saethorhelgi
-
geirfz
-
iceship
-
fuf
-
saemi7
-
ketilas08
-
kokkurinn
-
einarorneinars
-
xfakureyri
-
siggith
-
stormsker
-
valli57
-
markusth
-
luf
-
framtid
-
vefritid
-
jakob
-
postdoc
-
jenni-1001
-
mal214
-
partners
-
iceberg
-
valdivest
-
torfis
-
gattin
-
malacai
-
benz
-
gumson
-
hildurhelgas
-
minos
-
seinars
-
skinogskurir
-
krist
-
thjodarheidur
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 24
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 16
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar