15.4.2009 | 22:06
Sjóræningar
Enn og aftur hafa sjóræningar við Sómalíu látið til sín taka. Maður er eiginlega hættur að skilja í þessu öllusaman. Ég er hreinlega farinn að halda að bak við þetta alltsaman standi einhver alþjóða glæpasamtök t.d al-Qaida Liberty Sun Skip sem komst undan sjóræningum í morgun. Enginn má líta svo á að ég sé að gefa mig út sem einhvern expert í sjóránum. Það er ég allsekki,langt þar í frá. En eins og ég hef sagt frá fyrr lenti ég í að sigla um hættusvæði vegna sjórána. Og kynntist því af eigin raun hvernig reynt var að varast þau. Ég nenni ekki að lýsa því hér einusinni enn. En ég undrast stórlega hvernig t.d einu af stærstu olíuskipum heims var rænt í vetur
Sirius Star einu af stærstu olíuskipum heims sem rænt var í vetur.Ef þið stækkið myndina sjáið þið kannske mann í fallhlíf stökkva um borð úr lítilli flugvél með lausnargjaldið 3 milljónir US dollars.
Ég er virkilega farinn spyr mig hvernig geta örfáir menn á ekki stærri kænum en þetta tekið svona stórt skip. Ég er farinn að halda að það sé einhverstaðar maðkar í mysunni.
Og nú vísa ég til eigin reynslu. Ég hef litla trú á að þessir menn sem ég held (mín persónulega skoðun eins og allt í þessari færslu) að séu ólæsir og óskrifandi fv fiskimenn að sögn fjölmiðla geti skipulagt sig svona vel. Og hafa fengið yfir 200 milljóna dollara síðan í fyrra í lausnargjöld. Ég er helst farinn að halda að allavega í sumum tilfellum séu einhverjir umborðverandi blandaðir í málið. Hér eru nokkrar myndir af þessum frægu sjóræningum os aðstæðum þeirra
Ég trúi því hreinlega ekki eftir atburði síðustu daga að þetta sé eðlilegt ef svo asnalega má taka til orða. Ég er alveg viss um að einhverjir fjölþjóða glæpamenn standa á bak við þetta allt. Ekki þessir fv fiskimenn með allri virðingu fyrir fiskimönnum hvers staðar er í heiminum.
Þessu skipi Faine var rænt í vetur.Hér er það að koma til Mobasa 12 febrúar eftir að greitt hafði verið 3,2 milljón dollars í lausnargjald.Enda var þetta farmurinn:
Tekið á millidekki Faine Sjóræningarnir virtust hreinlega hafa getað"lallað"í rólegheitum um borð
Aðstæðurna við Faine. Myndirnar að vísu teknar eftir að skipið var lagst við akker.En ég bara spyr hvernig í and........ komust þeir óséðir um borð í svona borðhátt skip. Það hreinlega skil ég ekki. Áhafnir margra þessara skipa sem tekin hafa verið eru á"lúsalaunum"og hvað gerir maður ekki fyrir peninga.
Sjóræningar sem hafa náðst.Í fréttatíma Stöðvar 2 um daginn var sagt að sjóræningarnir færu vel með fanga sína. Það stangast illilega á við hvað Níelssen skipstj. á Danica White sagði mér af reynslu sinni. Hvaðan Stöðin hafði sína frétt veit ég ekki en það hlýtur að vera hafa verið haft eftir einhverjum fangana. Ég næ þessu ekki alveg inn í minn gamla haus. Og þessvegna læt ég staðar numið með sjórán í bili.En hérna eru nokkrar fleiri myndir
Eitt af skipinu sem slapp undan árás sjóræningana í morgun. Hálf umkomulausir eru ræningarnir allavega á myndum og ekki líkir mönnum sem eru að velta 200 milljónum dollara á ári Ég eftirlæt ykkur að reikna um leið og ég kveð ykkur kært
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
15.4.2009 | 12:23
Hústökufólk
Er þetta fólk ekki með fulla fimm. Þetta er eldgamallt timburhús. Hverjum yrði kennt um ef þarna brytist út eldur og einhverjir létu lífið. Þá er ég hræddur um að lögreglan fengi að finna til tevatnsins. Hryllilegur atburður varð í Póllandi um páskana.
Er gamallt hús fuðraði upp á:"no time". Ég hef ekkert á móti skipulögðum mótmælum. En það verður að vera vit í þeim. Í þessu dæmi finnst mér vanta vit í gjörninginn. Kært kvödd.
![]() |
Sextán handteknir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bloggfærslur 15. apríl 2009
Um bloggið
Ólafur Ragnarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
kolbrunerin
-
gudruntora
-
gmaria
-
dala
-
nafar
-
valmundur
-
johannesgylfi
-
gudrunmagnea
-
rheidur
-
gretarmar
-
magnusthor
-
nilli
-
georg
-
lydurarnason
-
reykur
-
johanneliasson
-
helgigunnars
-
hector
- kerfi
-
kallimatt
-
jonsnae
-
jp
-
jaj
-
hva
-
valurstef
-
sigurjonth
-
einherji
-
fiski
-
jakobk
-
harhar33
-
rs1600
-
iceman
-
thorirniels
-
kjartan
-
oliskula
-
1kaldi
-
gretar-petur
-
jon-o-vilhjalmsson
-
skulablogg
-
floyde
-
ragnarb
-
meistarinn
-
palmig
-
aevark
-
morgunbladid
-
zumann
-
jensgud
-
gutti
-
gudni-is
-
saethorhelgi
-
geirfz
-
iceship
-
fuf
-
saemi7
-
ketilas08
-
kokkurinn
-
einarorneinars
-
xfakureyri
-
siggith
-
stormsker
-
valli57
-
markusth
-
luf
-
framtid
-
vefritid
-
jakob
-
postdoc
-
jenni-1001
-
mal214
-
partners
-
iceberg
-
valdivest
-
torfis
-
gattin
-
malacai
-
benz
-
gumson
-
hildurhelgas
-
minos
-
seinars
-
skinogskurir
-
krist
-
thjodarheidur
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 24
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 16
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar