Grasrótarmaður

Það er mikið talað um grasrót hinna ýmsu flokka. Eða réttara sagt talað um að sumt fólk komi úr grasrótinni. Hálf finnst mér nú það broslegt þegar sumir af þessu 101 liði kenna sig við grasrótina.

 

Eina sambandið sem það hefur haft við hana er að flatmaga á Austurvelli og þá þegar dagur er hvað lengstur sól hátt á lofti og hitastigið ekki undir 15°.Þetta fólk lítur svo niður á þá sem ekki kunna skil á Strindberg,Goethe og Schiller eða hvað þeir heita þessir gömlu svokallaðir snillingar.Að maður tali nú ekki um Ludwig van Beethoven,Mozart,Haydn og Bachs.

 

 

Alla þá hávaðaseggi. Í augum þessa fólks erum við sem aldir erum upp við að vinna fyrir okkur"Slordónar" eða"Sveitalubbar" Hve oft hefur maður ekki heyrt þessi orð. Það fer ekkert eins mikið í mínar fínustu taugar en fólk sem vegna menntunnar sinnar lítur niður á okkur hérna niðri á jörðinni. Þykist vera yfir okkur hafið og hreinlega skammast sín fyrir uppruna sinn. Af hverju er ég að býsnast þetta yfir þessum andsk..... snobburum jú af því að fyrir kosningar byrjar sumt af þessu liði að kenna sig við gras og rætur.

 

 

Það er oft með endemum hve fólk leggur sig lágt í skriðdýrshætti sínum fyrir kosningar. En til eru menn og konur sem eru hérna niður á jörðinni og kemur til dyranna eins og það er klætt. Og það á við um félaga minn og vin Georg Eið Arnarson trillukarl eins og hann kallar sig, hér í Eyjum. Sem nú skipar annað sætið á lista FF hér í Suðurkjördæmi.

 

 

Ég kynntist Georg ekki fyrr en í síðustu kosningum er leiðir okkar lágu saman eftir að ég féllst á að sitja á kosningaskrifstofu Frjálslynda flokksins hér í Eyjum  og hella á könnuna. Ég dáðist strax að eldmóði hann og dugnaði. Hann var eiginlega allt í öllu. Og þá er ég ekkert að gera lítið úr störfum Hönnu Birnu núverandi ritara FF. Sem líka vann af eldmóði fyrir framboðinu hér. Mér þótti mér stundum ofaukið enda lítið skift mér af pólitík.

 

 

Að vísu smávegis unnið á kosningaskrifstofu Borgaraflokksins sáluga í Reykjavík fyrir þær frægu kosningar 1987. En ef hægt er að tala um að maður komi úr "grasrótinni" það er það Georg Eiður. Mér er minnistætt þegar kjördæmaráð  flokksins hafði skipað hann í 2 sætið. Þá hringdi góður vinur minn sem var á fundinum og sagði mér frá því.

 

 

Ég sem hélt að frambjóðandinn nýji væri líka á fundinum fyrir sunnan hringdi í GSM síman ´ans til að óska honum til hamingu með sætið. Ég spurði hann svo hvenær hann kæmi til Eyja. Ja ég á svona 15 mín í hafnargarðana svaraði hann þá. Vinurinn var bara að koma af sjó og lét sig litlu varða um kosninguna um sætin á listanum.

 

Georg Eiður er kannske ekki sprenglærður á bókina en hann er sprenglærður í einum af  aðalatvinnuvegi landsins. Sjávarútvegi. Ég vona að sjómenn hér í Eyjum muni þetta nú í komandi kosningum. Nái Grétar Mar endurkosningu verður Georg Eiður varamaður hans.En ég læt fólk dæma sjálft dæma um skrif Georgs með að láta slóðina á bloggið hans fylgja hér með.

http://georg.blog.is/blog/georg/

Kært kvödd


Kosningaskrifstofa í Vestmannaeyjum

              Kosningaskrifstofa            

 Frjálslyndaflokksins

      Verður opnuð í Valhöll Strandgötu 43 A

                  Föstudaginn 27 mars kl 1600

Boðið verður upp á veitingar.Grillað,ef veður leyfir Frambjóðendurnir:Grétar Mar,Georg Arnar sitja fyrir svörum yfir léttum veitingum.Allir velkomnir

Mynd 0509623 (1) Grétar picture 011 135856 Georg

null Kaffibruggarinn

                


Hafró oc co

Það er alveg með ólíkindum að upplifa"vertíðarstemminguna"hér í Eyjum í dag. Hver báturinn siglir inn með fullar lestar af fiski.Netabátar draga 2-3 trossur til að fá fullfermi.

 

S2300042S2300047hér að ofan eru þeir að koma til hafnar í dag með fullfermi Brynjólfur t.v og Gandí t.h 

Ég heyrði í dag að þeir væru farnir að hafa það eins og á línuveiðum. Byrja fljótlega að draga eftir lagningu. Það er mikil umferð um höfnina og mikið líf..Skip af öllum stærðum og gerðum. Mér dettur í hug er Tómas orti um aðra höfn:" Hér heilsast fánar framandi þjóða / Hér mæla skipin sér mót, /sævarins fákar,sem sæina klufu / og sigruðu úthafsins rót./

 

S2300029S2300032

S2300037S2300013S2300011Stóru uppsjávarskipin liggja aðgerðarlaus 

Og höfnin tekur þeim opnum örmum / og örugg vísar þeim leið./ Því skipið er gestur í á hverri höfn / þess heimkynni djúpin breið./ Og byrjun á næsta erindi;" Hér streymir örast í æðum þér blóðið./ Það má segja um gamlan sjóara sem kannast við allsskonar sjómennsku.

S2300005 Wilson Heron var að losa salt í gær og fyrradag

S2300027 Damsterdijk losaði salt í morgun

 

WILSON+HERON Wilsson HeronDAMSTERDIJK Damsterdijk Vegna lélegrar kunnáttu minnar á myndavél fékk ég "lánaðar" mydir af þessum fallegu skipum skipum á http://www.shipspotting.com/modules/myalbum/

 

En eitt veldur manni hugarangri. Það fiskifræði sú  er stunduð er á Skúlagötu 4. Ég hef heyrt mikið talað um máttleysi vegna loðnuleitar. Margir halda því fram að þessi,nú sennilegasta óvinsælasta stofnum ríkisins síðan hin var rudd með lögum,hafi ekki staðið sig sem skildi í þeim málum. Nóg sé í hafinu af loðnu en hún hafi bara haft vistaskifti.

 

LonesomeMouse Kakan er til en enginn má ét´ana. Vinnubrögð Hafró í hnotskurn 

Hana sé að finna fyrir utan hefðbundnar loðnuslóðir. Ekki veit ég. En þrátt fyrir hraksspár Hafró er nægur fiskur um allan sjó.Sama um hvaða verstöð er að ræða. Hvað ætli sumum  takist að hafa mikla fjármuni af fólkinu í landinu áður en staðurinn verður ruddur.Það er komið fordæmi að henda mönnum út með lögum.ef þeir eru með einhverjar.Læt þetta nægja að sinni.Kært kvödd  


mbl.is Vertíðarstemmning í Eyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 26. mars 2009

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 537313

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband