Á hvaða tungumáli???

Hvaða tungumál er talað á Íslandi í dag.Ég er rúmlega 70 ára að vísu lítt menntaður og það sérstaklega ekki í íslenskri málfræði.En í stafsetningu hef ég verið allatíð nokkuð glúrinn,Og er ég nú að tala um íslensku eða það mál sem ég hef haldið að hér á landi væri talað.Þótt vafi sé mikill á greind minni þá held ég að hún sé ekki mjög langt fyrir neðan svona meðallag

 

 

Ég hlustaði á"Kastljós"í gærkveldi og skýringar Davíðs Oddsonar.Út úr þessu las ég að hann sem Seðlabankastjóri hefði varað við að hrun væri á næstu grösum.Og hann hefði komið á ríkisstjórnarfund þ 30 sept og varað við þessu margumtalaða hruni.Geir Harde telur í dag, sig ekki lesa neitt vantraut á sig sem forsetisráðherra eða á stjórnina sem sat,í orðum Davíð.

 

 

Þó vitnaði Davíð hvað eftir annað í samþykktir stórnar Seðlabankans þar sem varað við hruninu og þá í ranni stjórnmálamanna.Og hvað sagði hægri hönd Geirs og fv ráðherra menntamála eftir umræddan fund.Jú þetta:Menn verða að vita hvert þeirra hlutverk er hverju sinni og hlutverk seðlabankastjórnar er að huga að stuðla að fjármálalegum stöðuleika"Mönnum er tíðrætt um stjórnmálamanninn Davíð Oddsson og eða seðlabankastórnandan D.O.Nú hlýtur maður í ljósi þess að spyrja sig Hver talaði þarna stjórnmálakonan Þorgerður Katrín eða eiginkona bankamannsins Kristjáns Arasonar.

 

 

Á hvern áttu ráðherrar að hlusta ? Sinn æðsta mann í fjármálakerfi ríkisins eða algerlega siðblinda og veruleikafyrrta banksstjóra hinna almennu banka ? Mikið geta sjallarnir bitið sig í handabökin yfir að hafa ekki staðið að málum eins og menn.Látið þá menn/konur í ábyrgðarstöðum og voru sakaðir um vanrækslu í starfi axla hana.Hætta ölu bulli um"leit að sökudólgum"Láta þessa menn og konur sem einhver tengsl áttu við þetta hrun axla sína ábyrgð og láta það víkja sæti.

 

 

Allavega meðan á rannsókn málsins færi fram.Rannsókn þingsins hefði svo átt að sakfella og eða sýkna menn eftir því sem við átti.Þá hefðu þetta fólk tekið stöður sínar aftur.Þeir sem saklausir reyndust.Fv stjórnarflokkar hljóta báðir að vera sekir um  þessi mistök.Enn og aftur gerast ráðamenn þjóðarinnar sekir um að tala ekki sama tungumál.Enn og aftur erum við skilin eftir hér niðri á jörðinni í algeri óvissu um hvað er eiginlega að ske.Og nú tala V G um vönduð vinnubrögð á alþingi.

 

Ekki finnst mér vinnubrögðin vera vandraðri en þau voru fyrir mánuði síðan.Og enn og aftur sendir"sá gamli"í Dimmuborgum stjórnmálamönnum "fingurinn"Læt ykkur um að melta þetta eftir af hafa verið af mér kært kvödd


mbl.is Vill upplýsingar um fyrirgreiðslu til einkahlutafélaga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flokksmenn????

Er þetta bara ekki prófkjörsslagur af 1stu gráðu og af"sjallagerðinni"Eru þetta ekki aðallega flokkssystkini alþingismannsins.Hverju utan þess flokks er hagur í að Illugi nái einhverju visu sæti á lista flokksins ? Og kannske viðurkennir þingmaðurinn það sjálfur eftir vettvangnum sem hann birtir kvörtun sína í,Kært kvödd 
mbl.is „Þessu verður að linna“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 25. febrúar 2009

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 537312

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband