"slökkt á...."

Það er  nú það. En nú hlýtur spurningin að vera hvenær og eða hvort Ögmundur slekkur á öndunarvélinni ??? Kært kvödd
mbl.is Hefur trú á að stjórnin lifi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nær skammt

Mér finnst þetta ný rýrt í roði. Ekki get ég notað þessa afsökunarbeiðni út á hafragrautinn minn. En undanrennan er alltaf að hækka. Kært kvödd
mbl.is Biður þjóðina afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guð á tali????

Annað hvort er Geir Haarde ekki bænheitur maður eða það hefur hreinlega verið á tali hjá Guði þegar hann (Geir) bað um guðsblessun.

Allavega hef ég ekki orðið var við annað en allt sé hér óblessað. Guð hefur sennilega verið á tali við Breta og Hollendinga þegar Geir bað fg bónar. Kært kvödd


mbl.is „Ætli maður lifi það ekki af“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er aldeilis

Holy moly. Hvernig geta Ástralar lifað svona hækkun af. Slapp íslenski seðlabankastjórinn nokkuð frá SJS í Tyrklandi??? Kært kvödd
mbl.is Stýrivextir hækkuðu í Ástralíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"í fyrra og"

Þetta var nú sagt í fyrra og hitteðfyrra. Og fyrrað þar áður ef svo mætti að orði komast. Ég er orðin 71 árs og man aldrei eftir öðru en þetta hafi staðið til á hverju ári.

 

Þ.e.a.s. að hreinsa til í kerfinu. En ég hald að vinavæðingin og spillingin í kerfinu sé alltaf að aukast. og hafi aldrei verið meir en akkúrat nú. Nú er þetta orðið svo mikið að það duga ekki  nútíma hreinsiefni. Grænsápu,vítissóda. og grjótharða bursta mætti reyna. En að fíflaskap slepptum.

 

Þá er þessi setning orðið að vana sérstaklega hjá stjórnarandstæðingum hverju sinni. En svo verður ekkert úr neinu þegar í stjórn er komið. Við höfum algerlega nýtt dæmi um þetta nú. Kært kvödd


mbl.is Þarf að hreinsa til í kerfinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Bloggfærslur 6. október 2009

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband