Buxnamál

Geir Hinn Harði er ekki á kosningabuxunum.Það vitum við nú.Í hvaða buxum ætli málpípa Samfylkingarinnar Össur sé?Nærbuxunum ?.Ja maður skildi nú bara vona að svo sé allavega næst sér.Maður er farinn að halda að að"Sjallarir"séu á fullu að leita að einhversskonar buxum nú um stundir.Þvi þeir virðast vera buxnalausir.Allavega virðast þeir  komnir með allt niður um sig.Hræddur er ég um að G.H.H.verði að klæðast kosningabuxunum fyrr en hann órar.Allavega í kvöld.Og Steingrimur J á kominn í biðilsbuxur fyrir framan Framsókn.Svo allt getur gerst.Kært kvödd
mbl.is Ekki á kosningabuxunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Rússarnir koma"????

Þetta skildi þá aldrei verða örlög Moggans.Að Rússar keyptu hann..Engin veit sína ævi fyrr en öll er.Kært kvödd


mbl.is Gamall KGB-njósnari eignast The Evening Standard.
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kreppa í byrjun og í endan

Jæja maður kom í heiminn í kreppu.(1938)Og maður yfirgefur hann í kreppu.En maður fer ja ég veit ekki hvað mörgum miljónum skuldugri en maður kom.Og á hreinlega enga sök á því.Það þykir mér verst.Faðir minn og móðir voru smiðir að mínu lífi.En ég sjálfur að mínu líferni og hef orðið að bíta í hið súra epli gerða minna.

 

Það neyddi mig enginn til þess að lifa því lífi sem ég lifði.En þessum skuldum er neitt upp á mig af mönnum sem ég,allavega flesta aldrei hef séð.Og það finnst mér með endemum Það var líka hægara að fæðast inn í kreppuna sem ég fæddist í en fyrir barn sem fæðist á þessu landi í dag.Og því miður held ég að það eigi eftir að versna.

 

Nýfædda barnið á eftir að verða skuldugra eftir nokkra mánuði,miklu skuldugra.Og foráðamennirnir virðast vera að byrja á"afréttaranum"ef marka má nýjustu fréttir.Ég heyrði fyrir nokkrum dögum að de Code væri gjaldþrota.Nei nú fá þeir hvað,1,4 milljarð að láni.Gaman að vita hvaða veð eru sett.Ég hef nú alltaf verið hliðhollur þessu fyrirtæki og talið það vera að gera góða hluti.

 

En mér finnst að jafnt skuli yfir alla ganga.Er þarna um að ræða einn"vinargreiðan"enn? Ég bara spyr.En svona í framhjáhlaupi það verður gaman að vita hvaða dóm"kókosbolluþjófarnir"fá.Svo er ég eiginlega viss um að það verður farið að"þagga"niður í Indriða H Þorlákssyni.eða hvað hann heitir fv ríkisskattstjóri sem furðar sig á Jómfúareyja samningum og sennilega tilbúnum erlendum auðmönnum.Beitning var og er starf í sjávarútvegi og þá er yfirleitt beitt síld eða loðnu.Á bankahluthafaveiðum er beitt sh.... já ekki meir um það

Það má ekki styggja fínu bankaræningana.Þó ég sé andvígur ópum og öskrum og eggja og skyrkasti þá skil ég hreint ekki doða stjórnvalda.Geta þeir ekki skilið að þolinmæði fólksins er á þrotum.Ég óttast að eitthvað alvarleg eigi eftir að ske.Hver er þá ábyrgur?Hverjir eru upphafsmenn að öllu saman?Læt þetta nægja af krepputali í bili.Kært kvödd


mbl.is Búið að rýma Alþingisgarðinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 21. janúar 2009

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 537311

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband