"Kominn af fjöllum"

Mikið var það nú gott að ráðherrann sé komin af fjöllum.En mín skoðun er sú að hann ætti að snúa þangað aftur.Og halda sér þar og til hlés.En umrædd Sigurbjörg hlýtur að þurfa að nafngreina þann ráðherra sem sendi henni þennan boðskap.Því svona fullyrðingar hafðar frammi á mótmælafundi hljóta að þurfa sönnunar við.

 

 

Annað er óhugsandi og þá bara vopn í höndunum á stjórnvöldum.Að mótmælin séu bara innantómt þvaður.Mótmælendur þurfa  að hafa sinn málstað á föstum grunni svo að ekki sé hægt að bera upp á þá að málflutningur þeirra sé bara bull og þvaður.Þó svo að ég trúi konunni frekar en ráðherra þá finst mér hún komin út á hálan ís.En svo má athuga það að senda fleiri ráðherra til fjalla.En það þarf að gera á raunsæjan hátt.Ekki með einhverjum orðum sem maður getur svo ekki staðið við.Læt þetta duga í bili.Kært kvödd


mbl.is Guðlaugur kemur af fjöllum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frjálslyndir funda í Vestmannaeyjum

Fundarboð

Mynd 0509625 Kolbrún     Mynd 0509623 (1) Grétar

Kolbrún Stefánsdóttir ritari Frjálslynda flokksins og Grétar Mar Jónsson alþingismaður Frjálslynda flokksins efna til fundar með Eyjamönnum og konum, n.k. fimmtudag, 15. janúar.  Fundurinn verður haldinn á Café Kró, Tangagötu 7 og hefst kl. 20:00.  Á dagskrá eru m.a: Samgöngur, fiskveiðistjórnun, hafrannsóknir og velferðarmál.

Fólk er hvatt til að mæta fá sér kaffisopa og heyra hvað Frjáslyndiflokkurinn er að aðhafast.Fjölmiðlar allavega ríkisfjölmiðlar hafa leitt flokkin algerlega hjá sér.Núna gefst Vestmannaeyingum tækifæri til að spyrja þingmannin og ritaran um það sem því liggur þyngst á hjarta:Sérstaklega eru öryrkjar og aldraðir og þeir sem minna mega sín í þjóðfélaginu og hlusta á hvað þau 2 hafa fram að færa


Bloggfærslur 13. janúar 2009

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband