1.6.2008 | 20:11
Dagurinn í dag
Ég gerði mér lítið fyrir og fór ásamt góðum vini mínum í Sjómannamessu hér í Eyjum áðan.Þar var lítil"prinsessa"skírð.Þarna ég sat og horfði á skírnina og fylgdist með"litla krílinu"sem tók þessu öllu með stakri ró og lét það ei hagga ró sinni þó presturinn ysi yfir hana vatni.
Þetta kom mér,að verða sjötugum kallinum til að hugsa.Hvernig skyldi heimurinn líta út þegar þessi litla hnáta verður sjötug ef guð gefur henni svo langt líf?Það er satt að segja erfitt að hugsa sér það.Ég hugsa að fólk af minni kynslóð og þeim,sem nálægt henni er í tíma og rúmi hafi upplifað þá mestu breytingar sem nokkrar kynslóðir hafa lifað.Hreint á öllum sviðum.
Ég segi fyrir bara fyrir mig ég er steinhættur að segja:"nei nú lýgurðu" þegar mér eru sagðar fréttir af hverskonar nýjungum eins og maður sagði svo oft hér áður fyrr.En að Sjómannadeginum.Mér brá svolítið er ég sá skoðanakönnun á Vísir.is.Þar var spurt Heldur þú Sjómannadaginn hátíðlegan?Úrslitin þegar ég kaus voru :"71,9% sögðu nei".Hvað er eiginlega að Íslendingum.Erum við virkilega farin að skammast okkar fyrir upprunan.
Burtséð frá öllu"Víkingatali"þá voru frumbyggar þessa lands Sjómenn.Og Sjómenn,ásamt Bændum komu fótum undir þessa þjóð.Þessar tvær stéttir voru samtvinnaðar um aldir.Ég var svo vitlaus að halda að allir vissu það.Inná heimasíðu einni stendur þetta: All the fishermen of Iceland - and there are lots of them - take this June Sunday off as a holiday. Officially known as Sjomannadagur (Seafarers' Day).Þarna er eins og sjá má dálítill,ég segi dálítill misskilningur þvi farmönnum þessa lands er að blæða út.Þ.e.a.s.stéttinni.
Og það er hreinlega með með ólíkindum.Ég tala nú ekki um allar ræður og stóryrði á tyllidögum um að þegar við töpuðum stjórninni yfir siglingum til og frá landinu hefðum við tapað sjálfstæðinu.Ég vil minna sjómen á að það er sama hver fleytan er mennirnir á þeim heita Sjómenn.Sama hver fleytan er baráttan við náttúruöflin er sú sama.Og í stéttir sjómanna veljast bara úrvalsmenn.Við skulum á Sjómannadag gleyma öllum ríg sem mér hefur stundum funndist vera á milli far-og fiskimanna.En svo að öðru.
Í annað skifti á æfinni upplifði ég jarðskjálfta nú um daginn.Í fyrra skiftið var ég nemandi Stýrimannaskólanum og man að ég vaknaði seint um kvöld eða snemma nætur við einhvern óvenjulegan titring.En snéri mér svo á hina hliðina og hélt áfram að sofa.En nú um daginn var ég staddur á hafnarvoginni hér í Eyjum.Þegar jarðskjálfarnir urðu 2000.var ég staddur á skipin skammt S af Canaríeyjum Skjálftinn um daginn kom nú ekki mikið við mig enda stóð hann stutt yfir hér í Eyjunni.
En svo fóru að berast af slysum og skemmdum.Og mikið talað um"áfallahjálp"Ekki ætla ég mér að gera lítið úr henni eða viðbrögðum fólks.Og læknar og sálfræðingar tala um að eftirköst af svona atburðum geti jafnvel komið löngu seinna.Ég finn til með fólki sem varð fyrir skakkaföllum eignarlega eða slasaðist.En þetta leiddi hugann til Vestmannaeyjagossins.Þá var ekki,allavega svo ég viti neina áfallahjálp að fá
Og maður kemur til að hugsa um"eftirskjálftana"í því máli.Ég var ekki hér í Eyjum þegar þetta skeði.og get ómögulega sett mig í spor þeirra sem upplifðu það.Hefur nokkrum,af þessu fólki verið boðið einhver áfallahjálp þ.e.a.s þeim ef einhverjir eru sem vildu þyggja hana.Og ég vísa til þessara orða vísindamanna um seinni virkun svona hörmunga.Ég velti nú bara þessu upp.Ég óska öllum Sjómönnum og aðstandendum þeirra til hamingu með daginn og skora á alla landsmenn að fara að gefa þessum minningar og hátípðardegi meiri gaum.Verið ávallt kært kvödd.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
1.6.2008 | 18:09
Þó nú væri
![]() |
Sjómannadagurinn haldinn hátíðlegur á Akureyri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggfærslur 1. júní 2008
Um bloggið
Ólafur Ragnarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
kolbrunerin
-
gudruntora
-
gmaria
-
dala
-
nafar
-
valmundur
-
johannesgylfi
-
gudrunmagnea
-
rheidur
-
gretarmar
-
magnusthor
-
nilli
-
georg
-
lydurarnason
-
reykur
-
johanneliasson
-
helgigunnars
-
hector
- kerfi
-
kallimatt
-
jonsnae
-
jp
-
jaj
-
hva
-
valurstef
-
sigurjonth
-
einherji
-
fiski
-
jakobk
-
harhar33
-
rs1600
-
iceman
-
thorirniels
-
kjartan
-
oliskula
-
1kaldi
-
gretar-petur
-
jon-o-vilhjalmsson
-
skulablogg
-
floyde
-
ragnarb
-
meistarinn
-
palmig
-
aevark
-
morgunbladid
-
zumann
-
jensgud
-
gutti
-
gudni-is
-
saethorhelgi
-
geirfz
-
iceship
-
fuf
-
saemi7
-
ketilas08
-
kokkurinn
-
einarorneinars
-
xfakureyri
-
siggith
-
stormsker
-
valli57
-
markusth
-
luf
-
framtid
-
vefritid
-
jakob
-
postdoc
-
jenni-1001
-
mal214
-
partners
-
iceberg
-
valdivest
-
torfis
-
gattin
-
malacai
-
benz
-
gumson
-
hildurhelgas
-
minos
-
seinars
-
skinogskurir
-
krist
-
thjodarheidur
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.6.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 73
- Frá upphafi: 537303
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar