Þetta sagði ´ann þá

21. nóv. 2005 sagði nv samgönguráðherra þetta í ræðu á Alþingi: 

"Þessi svakalega skattheimta ríkisins af flutningastarfsemi er náttúrlega með ólíkindum. Þegar verið er að flytja matvörur milli landshluta, í flestum tilvikum frá höfuðborgarsvæðinu og út á land, eða vörur á vegum fyrirtækja, hráefni til iðnaðarframleiðslu eða annars, eða fiskflutningar sem hafa heldur betur aukist milli landshluta til að halda uppi atvinnu á stöðunum, þá kemur þessi svakalega skattheimta ríkisins af allri flutningastarfsemi þannig að helmingur af flutningsgjöldum rennur beint í ríkissjóð, í ríkiskassann hjá hæstv. fjármálaráðherra Árna M. Mathiesen.

 

Á mannamáli: Ef vörur væru fluttar norður á Akureyri á einum flutningabíl og flutningsgjöldin af þeim farmi væru 200 þús. kr. rynnu 100 þús. kr. beint í ríkissjóð af þeim flutningi. Finnst hæstv. fjármálaráðherra þetta vera jafnrétti eða jafnræði? Þetta er í raun og veru eitthvert mesta óréttlæti sem viðgengst núna og engan veginn hægt að sætta sig við það. Það er heldur engan veginn hægt að sætta sig við að hæstv. byggðamálaráðherra sem talar á tyllidögum, í samkvæmisræðum og á framboðsfundum um að nauðsynlegt sé að niðurgreiða þetta gjald eða finna einhverja leið til að lækka það, kemur svo í tíma og ótíma hér í ræðustól Alþingis og segir að því miður verði bara ekkert gert. Allt bendir til þess að það sé vegna þess að Sjálfstæðisflokkurinn stoppi málið og vilji ekki fara þá leið. Því segi ég, virðulegi forseti, og mundi fagna því ef hæstv. fjármálaráðherra tæki undir:

 

 Ég held að við ættum að prófa það kerfi að setja fyrst í flutningabílana aksturskubbana sem sprotafyrirtæki á Íslandi er að þróa, og er ef til vill komið hvað lengst í í heiminum, og freista þess að lækka flutningsgjöld með því að leyfa þeim bílum að keyra á ákveðnum tímum á miklu lægra gjaldi til að byrja með. Mundum við þá ekki sjá hvort við gætum lækkað flutningsgjöldin hvað það varðar? Við þessa aðferð þurfum við ekkert leyfi frá ESA eða hvað þetta apparat heitir úti í Brussel sem hæstv. byggðamálaráðherra skýlir sér stundum á bak við.""

 

Svo mörg voru orðin fyrir 2 1/2 ári síðan.Hvað hefur breyst.Ef eitthvað þá hefur það farið framhjá mér.Nú á að fara að selja eina olíuflutningaskipið sem við eigum eða réttara sagt höfum séð hér við land og var einusinni undir íslenskum fána.Ætlar einhver að segja mér að flutningar á olíu færist ekki allavega eitthvað meir út á vegina.Þola vegirnir öllu meiri flutninga.Ég held að það sé nóg fyrir.þarna þarf Ríkið að fara að koma að áður en allt vegakerfið fer til helv.... eins og svo margt annað hér á landi"to day"

Maður er allur að vilja gerður að reyna að vera bjartsýnn á lífið og tilveruna en það gengur hálf ílla nú um stundir.Eftirfarandi las ég enhvertíma einhversstaðar:"Öll dýr jarðar að undanskilinni manneskjunni vita að tilgangur lífsins er að njóta þess"Og þetta orti Hjálmar Jónsson  núverandi Dómkirkjuprestur og fv.þingmaður til Davíðs Oddsonar þv forætisráðherra.En mér finnst þetta eiga við þann núverandi"Gáfur hefur guð þér lánað,/get ég svarið,/en eðlið hefur ekkert skánað/undanfarið"Ef einhver hefur haft nennu til að lesa þetta kveð ég þann sama kært


Nú til dags

 

Það er ýmislegt að ske í landsmálum sem gamall sauður eins og ég lætur fara í taugarnar á sér.Nú höfum við séð ýmsar afleiðingar af því að hlusta ekki á allar viðvörunarbjöllur sem hljómuðu í fyrra.Danir,bretar og fl vöruðu við fjármálahorfum á Íslandi.Ráðherra þessara mála hér brást reiður við.Sem og allir"sérfræðingar"hérlendist.

 

Sem töldu enga hættu á ferðum og spáðu "mjúkri"lendingu efnahagsmála. Það er eins og íslendingar geti aldrei séð að sér í peningamálum.Mér dettur stundum í hug að ég sé samnefnari fyrir hinn raunverulega íslending hvað sparnað í peninga málum varðar.Hef aldrei kunnað með peninga að fara Nú eru gefnar út bækur og haldin námskeið sem bera hin ýmsu nöfn:Eitt nafnið er eitthvað á þessa leið"Þú ert moldríkur"Þetta sé allt mjög auðvelt bara að borga niður höfuðstólinn.

 

Hljómar vel,en þarf ekki fólk að eiga fyrir afborgunum til að geta gert það?Einhvern vegin hefði ég talið það.En mér finnst ég skilja að vissu leiti ungt fólk í dag.Þegar ég var að alast upp höfðum við bara dagblöð og gömlu"Gufuna"Ég man að ég hvorki las eða hlustaði á auglýsinar.Manni leiddust auglýsingar allavega í útvarpi því þær gátu stytt "Óskalög sjómanna"og"Óskalög sjúklinga"eða" Lög unga fólksins"

 

En hvernig er þetta í dag það er eiginlega enginn stundlegur friður fyrir auglýsingum t.d. í sjónvarpi.Og ekki nóg með það.Eftir bílaauglýsingar og þessháttar koma svo kannske þættir eins og"Innlit útlit" eða "Hæðin"og hvað þeir heita nú allir þessir þættir.Og blöðin eru full af viðtölum við fólk sem virðist hafa nóg af peningum handa á milli.Ég veit að margt af þessu fólki vinnur mikið í þessu sjálft og því ber að hrósa.En gerir fólk sér grein fyrir hugsun 5-6 ára barns sem kannske býr með einstæðri móður sinni.Þegar það sér flott barnaherbergi fullt af leiktækjum-föngum.Og vil fá samsvarandi.Hve mörgum einstæðum foreldum skyldi hafa verið ýtt út í foræði skulda með öllu þessu auglýsingaflóði.T.d með merkjaflíkum og þessháttar.

 

Öll eigum við þá ósk að börnum okkar líði vel.En með svona stanslausum auglýsingaáróðri er vandlifað.Og svo í dag er svo hægt að fara á námskeið í öllum fjandanum.Sum ekkert annað en peningaplokk.Ég er að hugsa um að fara að halda námskeið í að sitja námskeið.Það væri margt vittlausara.En sum námskeið eru nauðsynleg t.d námskeið Slysavarnaskóla og 1stu hjálpar námskeið og fl.Það virðist ekkert að ske í landsmálum þó allar viðvörunarbjöllur hringi.Ríkisstjórnin heldur að sér höndum allavega enn.Það virðist allt látið reka á reyðanum.Hjúkrunarfræðingar voru við  ganga út.Ekkert gert þar í málum fyrr en í síðustu lög.

 

Framundan er,allavega eftir fréttum gjaldþrot hjá fjölda ungra fjölskyldra..Ríkið er búið að græða ca 1.3 milljarða á auknum skatti á bensíni eftir gengisbreytingum undanfarið.1,3 milljarðar fram yfir áætlanir fram yfir fjárlög.Þó er ekki hægt að lækka bensín.Og alltaf er verið hrósa tekjuafgangi af ríkisbúskapnum en allt virðist vera að fara til fjan.....Orð eins og "vonandi"og"allt bendir til"eru voða vinsæl nú um stundir hjá ráðamönnum þjóðarinnar.Það er umhugsunarvert að lesa grein eftir Ragnar Önundarson í Fréttablaðinu í dag.Og hvet ég fólk til að lesa hana.Greinin endar á þessum orðum.:"

"Frjálshyggjumenn telja sjálfum sér trú um að efnahagsvandinn sé ,,lausafjárkrísa“ og að nóg sé að prenta meiri peninga. Vandinn er miklu víðtækari og alvarlegri. Þegar verðbólur tóku að myndast á sama tíma víða um heim, 2003-4,nokkuð sem ekki hefur gerst síðan frjálshyggjan reið síðast húsum fyrir 1930, vöruðu menn við. Bókstafstrú á afskiptaleysi í hagstjórn varð til þess að ráðamenn skelltu við skollaeyrum.

Á næstu árum mun óhjákvæmilega koma til uppgjörs við frjálshyggjuna. Hún er ekki gallalaus frekar en aðrar stefnur. Þó að ,,moðið á miðjunni“sé leiðinlegt er líklega skásti kosturinn að rifja upp gamlar og þaulprófaðar hugmyndir um meðalveg hins blandaða hagkerfis. Hér á landi getum við ekki leyft okkur aðláta þá sem verða undir éta það sem úti frýs. Við eigum ekki að apa tísku í hagstjórn upp eftir stórþjóðum heldur láta mannúð og skynsemi ráða. Hagstjórn þarf að miða við velferð fjöldans.Er frjálshyggjan að bregðast?"

Ég læt þessu þusi lokið og kveð þá sem lesið hafa,kært.

 

 


Bloggfærslur 4. maí 2008

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.11.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 535908

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband