Íslenskir Farmenn

 

Íslenskum Farmönnum er að blæða út.Þá meina ég sem stétt..Hverjum er um að kenna hvorki get ég eða vil dæma um.Hef verið of lengi frá landinu til að geta það af einhverju viti.En eitt er víst hverjum sem það er að kenna þá er virkilega illa komið fyrir þessari stétt.Þeirri stétt sem sigldu einhverjum fallegustu skipum sem prýddu höfin á þeim tíma.Þeirri stétt sem ekki síður flutti björg í bú íslendinga,en fiskimennirnir,með fullri virðingu fyrir þeim.

 

Akraborg 1957 

Skip sem ég sigldi á er það var nýtt.

Akraborg 03 Hér komin undir erlendan fána 

Mér hefur oft fundist farmenn ekki fengið þann sess í sögunni sem þeim ber.Mér minnist þess að við fiskimenn töluðum stundum um"tuskibelli"(þið fyrirgefið orðbragðið)innfjarðarsjóara o.sv.fr.En farmennska krafðist ekki síður mikillar sjómennsku en fiskimennska.Allaversta ísing sem ég lenti t.d. í var um borð í farskipi.Máttarvöldin greina ekki farmenn frá fiskimönnum.Þessi misskilningur stafaði kannske af að farmennirnir sáust kannske helst við að þvo og mála  í höfnum stundum hangandi í stillönsum einhverstaðar á skipinu.

 

EsjDísarfell Tungufoss 1Lagarfoss 01 Ýmis eldri skip sem byggð voru fyrir íslendinga.Esja 2,Dísarfell 1 Tungufoss 1 Lagarfoss 2

Þetta var misskilningur af sama toga og sagt var að við togarakallarnir værum alltaf fullir því að margir af okkur sáust ekki öðruvísi.Fólk sá ekki til okkar á sjó.Eins sá fólk ekki til farmanna að koma böndum á farm sem losnað hafði eða moka til í lestum og kolaboxum ef með þurfti eða þvíumlíku. Miskilningur er oft út af vankunnáttu um staðreyndir Það gæti líka hafa örlað á einhverskonar öfund það fengu færri en vildu pláss á þessum skipum.Ég komst nokkrum sinnum í farmannspláss en komst fljótlega að raun um að við félagarnir,ég og"Bakkus"áttum þangað lítið erindi.

Gullfoss 2 

Gullfoss stolt íslenska flotans á eftirstríðsárunum

Gullf

En maður verður hugsi yfir framtíð íslenskra siglinga ekki síður en fiskveiða.Hvar endar þetta.Ný og fullkomin skip fást ekki mönnuð íslendingum.Það getur varla verið langt í að útlendir hafnsögumenn verði ráðnir við hafnir landsins.Þó ég viti um eitt dæmi að ekkiskipstjórnarlærður hafnsögumaður hafi sinnt því starfi,og það gerði hann með svo miklum sóma að frægt var út um heim.Þá meina ég hinn mikla atorkumann Jón Sigurðsson kenndan við Látra í Vestmannaeyjum.Ég hef verið að gagnrýna það að fólk sækji ekki hátðiðarhöld Sjómannadagsins og sný ekki til baka með þær skoðanir mínar.En það eru aðrir vinklarsvo maður noti nútíma orðfæri,á því máli 

     Reykjafoss 2 

Dæmi um aðkeypt skip Tröllafoss tv Reykjafoss 2 th 

 

Í fyrsta lagi mætti kannske skoða tímasetningu dagsins Júní getur stundum verið kaldur og hryssingslegur.Ég get vel skilið margrabarna feður með hóp sinn á hátíðarhöldunum.Litlu greyin hafa lítinn áhuga á ræðum og þesshátar.Það er engin Baldur og Konni eða svoleiðis til lengur.Eða eitthvað þessháttar til að skjóta inní til að halda athyli þeirra.

Fjallfoss 2 hbrSkb 

Dæmi um farskip sem byggð voru fyrir íslendinga á eftirstrýðsárunum. Fjallfoss 2,Skjaldbreið og Herðubreið

Svo er kannske slagveðurs rigning og kalsaveður og smáfólkið vill  láta pabba halda á sér helst öll í einu af því að nú er pabbi heima.Þó komin séu einhver"tívolí"nær það skammt.Það skilur engin smábörn eftirlitslaust í þeim.Mér finnst satt að segja að það mætti endurskoða tímasetningu dagsins.Svo er 17 júní oft helgina á eftir.Dagsetningin var ákveðin á sínum tíma út frá útgerðarháttum.Vertíð lokið og síldveiðar ekki hafnar.Einnig var oft stop hjá togurunum eftir vertíð í þá daga.Að vísu er ég nú svo vanafastur að ég myndi samþykkja svona breitingu með seimingi. Ég bloggaði í gær um Reykjavíkurhöfn í kring um 1953.

 

 Stuðlafoss 1 1977 

Fleiri dæmi Stuðlafoss ex Hofsjökull

Og lífið við hana og talaði um að hugur margs ungs manns hefði mögulega  beinst að sjómennsku við að koma þangað.Kannske við að veiða kola við Verðbúðar eða Loftsbryggju.Hvar sjá unglingar nútímans eitthvað í líkingu við það sem við sáum.Hvergi.Bryggjur,sem allavega flutningaskip liggja við eru lokuð almenningi út ef einhverri hryðuverkahræðslu lands sem fremur flest hryðjuverkin sjálft.En ekki út í þá sálma.Gullaldarskeið íslenskrar farmennsku var ekki runnið upp 1953. Það áttu glæsileg.stór og falleg íslensk farskip eftir að prýða þessa höfn.

Selfoss 2 

Fegurstu"svanirnir"

Brúarfoss 2 Selfoss2 tv og Brúarfoss 2 th

Skip eins og"tvíburarnir" Selfoss og Brúarfoss sem komu 1958 og1960,.Skip sem að mínu mati eru fallegustu farskip sem prýtt hafa úthöfin.Ef mig brestur ekki minnið þá var Esja 4 1983 síðasta skipið sem byggt var sérstaklega fyrir íslendinga.Með einni undantekningu Brúarfoss?sem byggður var 1996.12 ár  1 skip og þar áður 13 ár síðan íslensku farskipi með íslenskan fána í skut hefur verið hleypt af stokkunum.

     Esja 1982 Esja ný og komin í hendur útlendinga  Esja 4

Br

 

 

 

 

Brúarfoss? síðasta farskip sem byggt var fyrir Íslendinga

Ég tel ekki ferjurnar Baldur og Herjólf eða hafrannsóknarskip með.Þetta er Ísland í dag.Hér á árum árum áttu sumir ráðamenn stóra drauma,allavega á Sjómannadag um að gera Ísland að stórveldi í siglingum.Já það er sælt að láta sig dreyma en sú von hefur nú misst vængi sína,Ekkert hefur verið gert til hagræðis íslenskri farmennskiu að mínu viti.Í þjóðvísu frá Álandseyjum segir m.a."vem kan ro utan årar"Já hver getur róið án ára.

 

Freyr   Mér finnst ekki hægt að tala um falleg skip öðruvísi en að tala um þessa 2.Freyr Re tv og Sigurður th og þeir áttu 2 bræður Víking og Maí.Sjáið þið línurnar þarna,eins og með Selfoss og Brúarfossdæmunum kunnu menn að teikna skip.

Íslensk stjórnvöld hafa ekki vilja í dag til að leggja til árarnar.Því miður.Ráðamönnum er oft tíðrætt um sjálfstæðið og siglingarnar á hátíðardegi sjómanna.Um hve þarft það sé sjálfstæðri eyþjóð að sjá um sínar siglingar.En þeir láta farmannastéttinni blæða út hægt og hægt.Þá er eins og blóðið sé frosið í þeirra eigin æðum.Það er aldrei of seint í rassinn gripið að reyna að hvetja menn til dáða.Ég hvet Íslenska sjómenn hvaða flokki sjómennsku þeir standa til að standa vörð um íslenskar siglingar hverju nafni þær nefnast.Látið ekki gamlan ríg standa í vegi fyrir því.Hingað lestnir skulu kvaddir með sumarkveðju.Í bloggi mínu í gær um höfnina féll af einhverjum ástæðum,niður smá kafli sem átti að vera þar.Hann kemur hér:"Mig langar til taka mér bessaleyfi til að breyti aðeins teksta Ása úr Bæ þegar hann yrkir um götuna sína.Breyta nafninu götu ú höfn þó það standist engin lögmál bragfræði:

Ó, gamla gatan mín, í

Ó, gamla höfnin mín,
ég glaður vitja þín,
og horfnar stundir heilsa mér.
Hér gekk ég gullin spor,
mín glöðu æskuvor
sem liðu burt í leik hjá þér.


Gleðilegt sumar!!!

Óska öllum mínum bloggvinum gleðilegs sumars með kærri þökk fyrir veturinn! Verið ávallt kært kvödd.

 

AguaVerdeSunrise002


Gamla góða höfnin

Við Reykjavíkurhöfn var í gamla daga mannlíf sem var blandað ys og þys og skáld ortu ljóð til hennar og lífsins við hana.Hugur margs ungs mannsins hefur ábyggilega leitað til fjarlægari landa við að ganga um hana.

oi9uGamla höfnin eins og hún var þegar ég kom fyrst til Reykjavíkur

Ég man vel eftir hinu heillandi lífi við Reykjavíkurhöfn,Allt iðaði af lífi.Við skulum láta hugan leita til baka og taka bryggjurúnt Byrja við Verðbúðarbryggjurnar.

Sko Skógarfoss RE Herm Hermóður ogAðalbjörg. 3 af fastagestum við Verðbúðarbryggjurnar.

Friðrik Þorvaldsson og hans menn að lesta Vesttfjarðar eða Vestmannaeyjaflutningabáta við Loftsbryggju,

sko f    SkaftfVestmannaeyjarbátarnir Skógarfoss VE t.v og Skaftfellingur t.h sem lestuðu við Loftsbryggju Skógarfoss  hjá afgreiðslu Laxfoss eins og hún hét þá og Skaftfellingur á vegum Ríkisskipa

 

 

 arm    KAN 001 111 2 1  SigrLengst tv Ármann svo Hugrún og síðast Særún ex Sigríður sem sinntu Vestfjarðarflutningum og afgreiðsla Laxfoss(Friðrik Þorvaldsson)sá um afgreiðslu á við Loftsbryggju.

Ríkisskip við Sprengisand Eldborg fyrir neðan Tollbúðina Gullfoss eða önnur „Eimskip"við Miðbakkan og Austurbakkan.

w9EUFY8U7 Skip Ríkisskipa við Sprengisand.Sæ Ma3 þekkt skip skip frá Reykjavíkurhöfn.Lengst t.v Jötunn þá v/s Sæbjörg síðan finnskt flutningaskip og svo gamli Magni

Eldborgin sem ég byrjaði á sem hjálparkokkur fyrir 55 árum og sem kom í staðin fyrir Laxfoss eftir að hann strandaði 1952.Hún sést faktíst í horninu sínu ef vel er gáð á myndinni af skipum Ríkisskipa sem liggja við Sprengisand

 Togararnir við Faxagarð og Varðskipin við Ingólfsgarð.Þetta var sannarlegur æfintýra heimur fyrir unga hrausta menn.Það hafði hver skipsflokkur sína eigin lykt.

 

Gfoss Gullfoss á sínum stað og Selfoss 1Gamli"Selurinn Bruarfoss 01

og gamli"Brúsi" 

Það lyktaða af tjöru, hampi, fiski, ávöxtum.Ég var tæplega 15 ára þegar ég kynntist og heillaðist af þessum heimi.Tómas Guðmundsson yrkir um"Hegran"eins og Kolakraninn var kallaður/hét:

"En hátt yfir umferð hafnar og bryggju   
og hátt yfir báta og skip,        
sfinxi líkur rís kolakraninn       
með kaldan musterissvip.      
Hann mokar kolum og mokar kolum     
frá morgni til sólarlags.          
Raust hans flytur um borg og bryggjur  
boðskap hins nýja dags"

Skúli Magg b/v Skúli Magnússon.Og b/v Hvalfell Hvalfell 4

.

Og svo um sjálfa höfnina segir skáldið:

"Hér streymir örast í æðum þér blóðið,

ó, unga, rísandi borg!

Héðan flæðir sá fagnandi hraði,

sem fyllir þín stræti og torg.

Sjá skröltandi vagna og bíla, sem bruna,

og blásandi skipa mergð.

Tjöruangan, asfalt og sólskin

og iðandi mannaferð."

 

 

untitled  Löndun úr togaraAegirÆgir og Þór  stærstu varðskip þess tíma.

 Einhvert af þessum skipum og bátum hefðum við geta barið augum á bryggjurúnti 1953.Ég sakna satt að segja þessa tíma.Því nú er  lyktin,ysin og þysinn horfinn  og skáldin þögnuð  Hingað lesnir kært kvaddir


Bloggfærslur 24. apríl 2008

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.11.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 535908

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband