Beiðavíkurbörn á einkaheimilum

 

Eins og hundur fell ég flatur/fyrir því á hverjum degi/.Svona hljóðaði seinnipartur vísu um brennivín.Skelfing er það orðið þreytandi að vera orðin svona gamall veiklaður.Þurfa liggja flatur fyri hverri flensuóværunni á fætur annari.Er að rísa upp úr enn einni óværunni(ekkert með brennivín að gera).Ég var að bögglast til að blogga um daginn um ástina.En ég hefði það átt að minnast orða Voltaire,þegar hann sagði.""Ástin deyr með árunum,en sjálfselskan endist út lífið""Nú er enginn til að segja"dru..... þér á lappir það er ekkert að þér"og ef maður finnur einhvern sting einhvernstaðar snýr maður sér til veggjar og hugsar"auminga ég komin aftur með flensu"og sofnar aftur.Og enginn hreyfir mótmælum(sumir fegnir,fá þá kannske ekki yfir sig margra mínútna fyrirlestur hvernig ekki eigi að stjórna málum.)Það er enginn vafi á að maður getur legið í sig einshversskonar sjálfselskukraftleysi.

 

En svo að allt öðru.Nú íhugar ríkisstjórnin bótagreiðslur til þolenda ofbeldist á þessu,nú  fræga drengjaheimili"Breiðuvík".Þetta hýtur að vekja upp fleiri spurningar en við nokkurntíma fáum svör við.Ég ætla mér ekki að gera lítið úr því sem þarna virðist hafa viðgengist.langt frá því.En agi var alltöðruvísi framkvæmdur hér á árum áður.Og ekki alltaf notuð þau meðul sem þekkjast í dag.Eru peningar smyrsl á öll sár?Voru það bara drengir er urðu fyrir ofbeldi líku því sem nú er að upplýsast að skeði á Breiðuvík í uppeldi sínu?Hvað með börn er sett voru t.d.til"vandaðs fólks"eftir aðgerðir Barnaverndarnefnda á hinum ýmsu stöðum?.T.d. í kjölfar hernámsins á sínum tíma?

 

 

Mörg börn lenda í"vondum málum"vegna skilnaðar og eru óspart notuð sem verkfæri til að hefna sín á fv maka.Ég veit t.d af eigin reynslu hvernig er að"taka við annaramannabörnum".Stanslaus afbrýðissemi,ásakanir um stolið sæti o.sv.fr.Getur verið að ég hafi einhverntíma orðið"bótaskyldur"gagnvart barni sem ég kom illa fram við.Og ég hef líka reynslu af að vera annarar "konu sonur".Ég þekki sögu manns sem móðir setti frá sér þegar hann var 2ja ára.Hún fór með hann í fóstur til frændfólki úti á landi,sem hann hafði aldrei séð.Þessi maður man enn í dag,þann dag sem mamma hans fór frá honum og skildi hann eftir þótt komin séu nokkuð margir tugir ára síðan.

 

Að mínu áliti geta fáar konur tekið að sér hlutverk hinnar réttu móður(af einhverjum ástæðum sem ég skil ekki sjálfur tala ég alltaf um móðir í þessu sambandi) ef viðkomandi barn hefur þekkt eitthvað til hennar.Þarna eru sennilega margir ósammála mér.5 árum seinna var þessi maður svo tekin frá þessu frændfólki sínu til nýgifts föður síns sem hann hafði aldrei séð.Föðurs sem lítið sem ekkert skifti sér af honum sérstaklega,ekki á þeim tíma er hann þurfti hans sérstaklega á að halda vegna gerbreyttra aðstæðna.

 

Ég sá eitt sinn mynd frá rannsóknum sem gerða voru á einni tegund af öpum.Dæmin voru tekin af 2 ungum annar alin upp á eðlilegan hátt hinum var komið fyrir í búri hjá gerfiapaynju.(hvernig hún var útbúinn er ég búin að gleyma)En ég gleymi aldrei þegar litli móðurlausi anginn var að reyna að hjúfra sig af öllum mætti upp að gerfimömmunni til að fá einhverja ástúð og vernd.Síðan var sýnt hvernig þessi litli aumingi var titrandi af ótta við allt sem hreyfðist í átt til hans og reyndi að fá þá vernd sem honum eiginlega bar en fékk enga. 

 

En hver hlýtur að tala út frá sinni reynslu og eða viðhorfi og sannfæringu..33 af þessum svokölluðum Breiðavíkurdrengum eru látnir.og 11 hafa ekki tjáð sig.Hvernig á að fara með þeirra mál.Um hvað er fólk eiginlega að hugsa þegar það heldur að ör eftir sár sem sett eru á litla barnssál séu bætt með peningum tugum árum seinna.Nokkurskonar lýtalækningar???.Mér finnst áhugavert að hlusta á orð Bárðar R. Jónssonar.Og mér finnst hann eiginlega hitta naglan á höfuðið þegar hann segir "að sennilega gætu velflestir farið fram á bætur bara fyrir að vera til""Mér hefur alltaf fundist Bárður vera sjálfum sér samkvæmur í öllum hans frásögnum og athugasemdum um þetta mál. Ég hef ekkert á móti að reynt sé að koma á móti þessum mönnum á einhvern hátt.

 

En hvað þá með önnur mál ef upp komast frá öðrum samsvarandi heimilum.Ég er viss um að þetta"Breiðavíkurmál"hefur hrært í miklu fleiri sálum en almenningur gerir sér ljóst.Ég er hræddur um að það hafi mörg dæmi hliðstæð þessu máli hafi skeð inn á"góðum"heimilum.Það séu  margir sem hafi upplifað svipað en vegna þess að margir eru kannske "komnir yfir það" og líka til að forðast sárindi við gamallt fólk sem taldi sig vera að gera góða hluti láti kyrrt liggja.Hræddur er ég um að Ríkissjóður verði seint  þess megnugur að bæta allan þann skaða og sársauka sem börn hlutu,og hljóta enn ef eitthvað bregst í frumbernsku.Hverju sem um sé að kenna.En látum þetta verða okkur víti til varnaðar.Með von um"flensulausa"framtíð séu þið sem hingað hafa lesið,kært kvödd


Bloggfærslur 23. febrúar 2008

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband