20.1.2008 | 22:19
1959
Á þessari vertíðinni 1959 skeði margt sem átti eftir að hafa mikil áhrif á líf mitt í framhaldinu.Ég talaði um að ég hefði kynnst"sætustu"stelpunni á böllunum.Nokkrum árum seinna átti ég eftir að giftast henni og vera það til allmargra ára.Þarna í Eyjum eignaðist ég góðra vini og að þeim vinskap bý ég enn þann dag í dag.Vesmannaeyingar tóku á móti mér með útbreiddum armi sem ég einnig bý að enn í dag.Góðvild og hjálpsemi sem er þeirra aðalsmerki.
Til v Léttir báturinn sem fleytti mér síðasta spölinn í land í jan 1959,Og svo hinar fallegu Vestmannaeyjum
En þessi vetrarvertíð 1959 var mikil ógæftavertíð allavega jan og febrúar.Örfáir róðrar farnir þessa mánuði.Og mannskaðar urðu miklir.Stax 2 jan tekur mann úf af togaranum Sólborg.
Hið nýja og glæsilega Grænlandsfar sem fórst í jómfrúarferðinni í jan 1959
30 janúar ferst danska Grænlandsfarið Hans Hedtoft í ofviðri í sinni fyrstu ferð.Það var sagt fyrir Jómfrúarferðina að skipið gæti ekki sokkið.Það sama og var sagt um Titanic 1912 þegar það skip fórst einnig í jómfrúarferð og með því 1500 manns.Með Hans Hedtoft fórust 95 manns.Snemma í febrúar fær skip Eimskipafélagsins Tungufoss á sig brotsjó milli Færeyja og kastaðist á hliðina.Áhöfninni tókst með þrautseigju að færa farminnn til í skipinu og með því og dælingum mili balasttanka tókst að rétta skipið.Og komst það klakklaust til hafnar
Tungufoss skip Eimskip sem fékk á sig brot.En komst hjálparlaust til hafnar.
Síðan koma fréttir af þeirri hættu sem b/v Þorkell Máni lenti í á heimleið af Nýfundnalandsmiðum.En með ótrúlegu atgerfi og sjómennskuhæfileikum tókst skipstjórnendum að vinna baráttuna við storm og ísingu.Hæst bar þó að það slys þegar togarinn Júlí frá Hafnatfirði fórst við Nýfundnaland með 30 manna áhöfn 9 febrúar.Sá yngsti 16 ára en elsti 48 ára.
Lengst til v hinn harðduglegi skipstjóri á Þorkeli Mána Marteinn Jónasson í brúarglugganum á skipi sínu.En Marteinn ásamt skipshöfn sinni bjargaði skipinu þar sem m.a. yfirvélstjórinn brenndi af davíður bjargbátanna svo þeir yfirísaðir losnuðu frá skipinu.Það m.a. átti sinn þátt í að þeir sluppu lifandi frá hildarleiknum.Í miðju Þorkell Máni í höfn"rúinn"bjargbátanna,Lengst til h skipið sjálft
Togarinn Austfirðingur kom aðeins við í Reykjavík eftir viðkomuna í Eyjum þar sem ég fór af og hélt síðan á Nýfundnalandsmið og lenti í sama veðri.Menn sem um borð voru hafa sagt í mín eyru að afburða sjómannshæfileikar Guðmundar skipstjóra hefði bjargað lífi þeirra.
T.v b/v Júlí sem fórst við Nýfundnaland og b/v Austfirðingur sem slapp úr hildarleiknum
En ég slapp sem betur fer við þennan hildarleik.15 febr ferst sjómaður af slysförum um borð í b/v Þorsteini Ingólfssyni.
Til v v/s Hermóður sem fórst út af Stafnesi í febr.1959.T.h Ísaður togari kemur í höfn
Aðfara nótt 18 febrúar Vitaskipið Hermóður ferst við Stafnnes og með því 12 menn.Út af þessum sjóslysum (Júlí og Hermóðs) sagði Jón Pálmason þv forseti Sameinaðs Alþingi m.a:""Helfregnir berast nú dag eftir dag/dauðans er mikilsvirk hönd,/úthafið syngur sitt útfararlag/öldurnar grenja við strönd/Íslenska þjóðin er harminum háð,/hrópar í neyðinni á guðlega náð/.
T.v Langanes NK30 t.h Goðaborg NK1 sem undir stjórn Hauks Ólafssonar bjargaði áhöfn Langaness
21 febrúar sekkur vélbáturinn Langanes NK30 18 sjm NV af Eyjum.m/b Goðaborg NK skipstjóri Haukur Ólafsson bjargar áhöfninni 6 mönnum.28 febrúar drukknar sjómaður í Reykjavíkurhöfn.15 mars er farið að leita lítils báts frá Eyjum með 3 Ungverjum.Þeir bjargast með ólíkindum í land undan bænum Fornusöndum í V-Eyjafjallahreppi.
Til v Gulltoppur VE177 á leið til hafnar í Eyjum og svo á Þykkvabæjarfjöru
16 mars strandar vélbáturinn Gulltoppur Ve 177 í Þykkvabænum.Báturinn hafði fengið í skrúfuna og rak í átt til lands.M/b Sindri undir stjórn Júlíusar Sigurðssonar(kenndur við Skjaldbreið)tókst að koma vír í bátinn 4 sinnum en hann slitnaði alltaf Skutu svo Gulltoppsmenn út gúmmibát og komust allir í hann nema stýrimaðurinn,Gúmmíbáturinn var svo dreginn að Sindra og mönnunum bjargað um borð í hann.Júlli renndi svo Sindra upp að Gulltoppi og gat stýrimaðurinn sem,ef mig misminnir ekki þess meir var hinn,seinna fengsæli og nú,látni skipstjóri á Gullbergi,Guðjón Pálsson,stokkið um borð í Sindra..Ég vona að ég verði leiðréttur,ef ég fer hér með rangt mál.
Sindri VE203 sem hinn ötulli sjósóknari Júlli á Skjaldbreið var með er hann bjargaði áhöfn Gulltopps
Af Gulltoppi er það að segja að hann náðist út.11 árum seinna var ég stm á þessum bát þegar hann 5 maí 1970 sökk undan Portlandi og Einir SU bjargaði okkur.Skipstjóri á Einir var Ríkharður Sighvatsson(Rikki í Ási)Báturinn hét þá Norðri.Svo var það 8 apríl(1959) að skáldið og aðalskakarinn Ási í Bæ fellur fyrir borð á bát sínum Hersteini.En Óskar Þórarinsson(frekar þekktur sem Skari á Háeyri nú kunnur skipstj og útgerðarmaður í Eyjum)kastar sér eftir honum og bjargar
Sjómenn spila á fína strengi fiðlu dauðans stundum slitnar strengurinn og sjómaðurinn gistir hina votu gröf.Þó að þessir 2 mánuðir jan og febr.1959 hafi kostað 45 íslenska sjómenn og kannske ekki sambærilegir vegna 2ja stórslysa gefur þetta samt svolitla innsýn í sjómannslífið á þessum tíma.Og munið það ungu menn að hætturnar eru allstaðar þó þið séuð komnir á stærri og fulkomnari skip.Ein er sú hætta sem bæst hefur við þær sem sjómenn þess tíma bjuggu kannske alveg eins mikið við.En það er eldurinn.Hann hefur alltaf verið fyrir hendi en gerfiefni nútímans gera hann ennþá hættulegri.
Sjómenn berjast við einn versta óvininn ísinguna
Menn geta ekki rifjað upp eina vetrarvertíð hér á árum áður en að komast út í slysahornið.Þetta er bara sagan.Þegar maður gamall maður rifjar þetta upp þá minnist maður þessara manna sem hlutu hina votu gröf.Þetta voru kannske góðkunningar manns fv skipsfélagar og kammeratar.Og þið sjáið það af þessum endurminningum að það er sama hvaða tegund sjómennsku menn stunda.Hvort það heitir far eða fiskimennska þá eru menn að fást við sömu hætturnar.Og munið að Sjómannadagurinn er til að minnast þessara manna enginn annar dagur tekur yfir hans verksvið.Munið það ráðherrar og forustumenn sjómanna að minningardagur um baráttu sjómanna við storm eld og ís heitir "Sjómannadagur"og hann á að halda fyrsta sunnudag í júní, annað er lögbrot.Og þið sem skammist ykkar fyrir að taka þátt í hátíðarhöldum sjómanna í tilefni þess dags.Hundskist bara til að vera heima hjá ykkur.Lesið ykkar atómljóð afturábak og áfram og skammist ykkar fyrir lítillæti gangvart þessum degi.Degi þar sem sigrum er fagnað og ósigrar eru harmaðir.Hingað lesnir séu kært kvaddir
20.1.2008 | 00:48
Á vetravertíð fyrir 49 árum.
Svona gamlir kallar eins og ég ættu ekki að liggja mikið í að vera að rífast út í allt og alla og vera alltaf með eitthvað fjandans röfl um allt sem honum finnst fara afvega í þjóðfélaginu.Þetta getur orðið til að menn lifa bara á neikvæðum nótum.Vera þar af leiðandi alltaf í fýlu.Mér leiðist faktíst að vera í fýlu.Og fýlipokar fara í taugarnar á mér.Svo að ég ætla nú ekki að vera að agnúast út í neitt allavega ekki í byrjun.Hvort ég espa mig upp í lokin veit ég ekki enn
.En mig langar til að segja ykkur frá fyrstu vertíð í Vestmannaeyjum.Árið er 1959.Ég var netamaður(gilsari flest störf á dekki síðitogaranna höfðu nöfn og var gilsarastarfið eitt af æðri störfunum)á b/v Austfirðing SU 3.Skipstjóri var hinn ágæti skipstjóri Guðmundur Guðlaugsson frá Vestmannaeyjum(ávallt kallaður Gvendur Eyja).Sem í mínum huga er sá alklárasti togaramaður hvað verklægni snertir sem ég hef siglt með.Við höfðum selt aflann í Bremenhaven þ 20 jan.Seldum 118 ts fyrir 110,300 DM.Komum svo við í Færeyjum til að ná í sjómenn þaðan til starfa á skipum útgerðarinnar sem einnig gerði út togarann Vött SU 103
Stutt stans var haft á Eskifirði sem var heimahöfn.skipsins Var svo ferðinni heitið til Reykjavíkur með viðkomu í Vestmannaeyjum.En frændi Guðmundar skipstjóra Ólafur Sveinbjörnsson(Ávallt kallaður"Óli múrari".Vel þekktur Eyjamaður sem látinn er langt um aldur fram fyrir nokkrum árum) var með okkur og hafði hann gert samkomulag við Guðmund frænda sinn um að honum(Óla)yrði skutlað í land í Eyjum.Svo vorum við 2 eða 3 aðrir sem ætluðum á"vertíð"og fórum um borð í Léttir hinn fræga hafnsögubát á "Víkinni".
Mikið var maður nú vígalegur og til í allt.Í hvítum lokubuxum og svartri Viktoríupeysu með"sixpensarann"á hausnum.Sem sagt búinn algerum einkennisbúningi togarasjómanna þess tíma.Og sem"gilsari"var maður ekki alveg búinn að þvo af sér smursvertuna sem fylgdi starfinu.Það er ekki meining mín að gera lítið úr einum eða neinum í þessu minnigarbroti mínu og mun ég þess vegna breyta nöfnum á sumum mönnum sem við sögu koma.Svo að ekki sé neinni rýrð kastað á minningu eins eða neins.Fyrsti maður sem ég hitti eftir að hafa "tjékkað"inn hjá Inga hótelstjóra á hóteli H.Ben. var kunningi minn nú til margra ára Svenni Dalla.
Svenni var í þeim hóp semog Guðmundur skipstjóri og fl sem ég leit ofboðslega upp til sem togaramanna.En Svenni hafði verið með okkur 1 eða 2 túra um sumarið.En var nú kominn á vertíð á Víði Su 175.Þarna var ég sem sagt komin í land í Eyjum.Vopnaður 2 eða 3 kössum af Lövenbrau bjór 4-5 flöskum af"gaddavír"(Vodka 75% )og einhverju pökkum af Camel.Það er enginn ber sem hafði Svenna Dalla að baki.Maður gat rifið kjaft við alla ef svo bar undir,Svenni sá um restina.Nú svo kom að því Lövenbrauin og gaddavírinn komst í þrot.
Og hvítbuxninn í svörtu peysunni þurfti að fara líta eftir einhverju öðru en að spóka sig í trollaragallanum innan um saklausar vertíðarstúlkur.Óli Sveinbjörns reyndist vinur í raun og kom mér í pláss á einum af alminnstu bátunum á vertíðinni.Þetta var svona tæplega 700 tonna fall hvað skipsstærð varðaði fyrir hinn hvítbuxnaklædda gilsara.Skipstjórinn var ættaður frá Verstmannaeyjum.En hafði lítið nálægt línu eða netaveiðum komið.Eigandi bátsins var einn af stæstu útgerðarmönnum Eyjanna.Ég var strax munstraður og komst strax á"tryggingu".
Og nú tóku við dagar"víns og rósa".Maður fékk alltaf útborgað trygginguna vikulega að mig minnir.Þá varð maður nú heldur betur maður með mönnum.Búin að kynnast einni af sætustu stelpunni á böllunum.Alltaf með aura um helgar og lífið blasti við hinum fv gilsara sem nú titlaði sig sem stýrimann.Þó engin prófin hefði hann og báturinn það lítill að engan stýrimann þurfti.En þetta fór vel í þá sem ekki vissu betur:Þegar ég "munstraði"á bátinn var hann uppí slipp.Þegar slippvinnunni var lokið neitaði slippeigandinn að hleypa honum niður fyrr en útgerðarmaðurinn gerði upp sínar skuldir við hann.Í þessu "þrasi"stóð svo í um það bil mánuð.
En maður var alltaf á vegum Bakkusar um helgar,búinn að koma sé upp "kröfukerfi"En í því kerfi botna sennilega fáir sem ekki upplifðu það í Vestmannaeyjum og á öðrum stöðum sem ÁTVR hafði ekki útsölu.En svo kom að alvörunni í málinu.Útgerðarmaðurin gat borgað skuldir sínar og alvaran tók við,Fyrst var haldið til línuveiða.Við vorum 4 á sjónum .Við getum kallað skipstjórann Björn,1sta vélstjóra Magga 2nnan vélstjóra Gunnar og ég.Lítið var nú að hafa og ef línan slitnaði fannst ekki mikið af henni aftur.En nokkra róða fórum við á línu en svo var skift yfir á net.Steinaðar voru niður 3 trossur.
Og nú var áhöfnin fullskipuð.Björn skipstjóri Maggi 1sti vélstj.Gunni 2nnar vélstjóri og hásetarnir Óli "Borgarn.."Siggi"Smokkur"og Addi"Andskoti"Þetta held ég að hafi verið sú skrautlegasta áhöfn hvað viðurnefni varða sem ég hef siglt með.Í þessari upptalningu breiti ég öllum nöfnum nema mínu en viðurnefnin eru látin halda sér.Netin voru svo lögð en aldrei dregin af okkur.Við fundum aldrei neina af baujunum.Magnús Grímsson( sem ég held að sé ávallt kallaður Mangi á Felli)var skipstjóri á Andvara VE 101 þessa vertíð hann fann svo seinna 1 trossuna alla í flækju og"snörlaði"hana inn og fengum við að greiða hana á Nautshamrinum.Svokallaðir"útfarar"höfðu verið setti á öfugan enda.
Jæja nú var haldið á handfæri skipshöfnin eiginlega hin sama nema nú höfðum við fengið danskan"förste mester"Hann hafði verið vélstjóri á dönsku flutningaskipi sem hafði komið til eyjanna með salt en hafði legið í þar einhvern tíma vegna bilunar.En vélstjóranum hafði litist svo vel á sig í Eyjunni að hann kom fljótlega til baka.Og ég veit ekki annað en að hann hafi sest að um nokkuð langan tíma í Eyjum.Þegar þetta var var Ási í Bæ á Hersteini(en Hersteinn var svipaður að stærð og sá bátur sem ég var á)aðalaflamaðurinn á færunum.Nú tók Björn skipstjóri upp á því að elta Ása út um allan sjó.Hersteinn var búinn 60 ha Tuxham vél en í bátnum sem ég var á var 150 ha GM vél.Báturinn var því miklu gang meiri en Hersteinn.
Björn skipstjóri hafði þann háttinn á að koma keyrandi að Hersteini alveg á fullri ferð og bakka svo á fullu er komið var að honum.Ekki líkaði hinni öldnu einfættu sjóhetju og skáldi Ása í Bæ þessi vinnubrögð og kom hann einu sinni ábúðarfullur um borð til okkar í landi eftir mikinn"svingdag"og hellti sig yfir Björn.Sagði að maður ætti helst að sigla löturhægt um sjávarins öldur og hafa helst ekki augun af dýptarmælinum og ef hann sýndi lóðningar ætti maður helst að vera á flókaskóm er maður væri búinn að stoppa fleyið og læðast um dekkið að færunum.Eftir það laumuðumst við eftir sjónum í leit að lóðningum.En lítill var árangurinn.Þetta endaði svo með því að"Gemsinn"sagði stopp og neitaði að taka þátt í svona laumuspili.Mér skildis seinna að það hefði jafnvel verið höfuðorsök vélarbilunarinnar hve hægt við fórum með ströndum.
En ég var svo spurður hvort ég gæti tekið að mér kokksstarf á einum af Austfjarðarbátunum sem réru þessa vertíð frá Eyjum.Þessu játti ég og endaði"gilsarinn"ungi sem kokkur og segir ekkert af þeirri eldamennsku en skal skýrt tekið fram að enginn dó af matareitrun.Og eins og segir í vísunni:"allir komu þeir aftur og enginn þeirra dó"Ég vil að lokum endurtaka það,að það er á engan hátt ætlun mín að gera lítið úr neinum eða neinum.Mér ferst það ekki og alls ekki frá þessum tíma og seinna þar sem ég varð mér sjálfur til skammar vegna mikils samneitis við Bakkus.En ég get nú ekki annað en brosað að þessum bernskubrekum sjómennsku minnar.Og vona að einhver sé sama sinnis.Þeim sem hingað hafa haft nennu til að lesa kveð ég kært að sinni.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Bloggfærslur 20. janúar 2008
Um bloggið
Ólafur Ragnarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
kolbrunerin
-
gudruntora
-
gmaria
-
dala
-
nafar
-
valmundur
-
johannesgylfi
-
gudrunmagnea
-
rheidur
-
gretarmar
-
magnusthor
-
nilli
-
georg
-
lydurarnason
-
reykur
-
johanneliasson
-
helgigunnars
-
hector
- kerfi
-
kallimatt
-
jonsnae
-
jp
-
jaj
-
hva
-
valurstef
-
sigurjonth
-
einherji
-
fiski
-
jakobk
-
harhar33
-
rs1600
-
iceman
-
thorirniels
-
kjartan
-
oliskula
-
1kaldi
-
gretar-petur
-
jon-o-vilhjalmsson
-
skulablogg
-
floyde
-
ragnarb
-
meistarinn
-
palmig
-
aevark
-
morgunbladid
-
zumann
-
jensgud
-
gutti
-
gudni-is
-
saethorhelgi
-
geirfz
-
iceship
-
fuf
-
saemi7
-
ketilas08
-
kokkurinn
-
einarorneinars
-
xfakureyri
-
siggith
-
stormsker
-
valli57
-
markusth
-
luf
-
framtid
-
vefritid
-
jakob
-
postdoc
-
jenni-1001
-
mal214
-
partners
-
iceberg
-
valdivest
-
torfis
-
gattin
-
malacai
-
benz
-
gumson
-
hildurhelgas
-
minos
-
seinars
-
skinogskurir
-
krist
-
thjodarheidur
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 64
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 23
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar