Sjórán

Það setti hroll að mér þegar hringt var í mig áðan og mér sagt að skipi sem ég sigldi töluvert lengi á hefði verið rænt út af strönd Somalíu.Maður er illilega minntur á veruleikan út í hinum stóra heimi.Ég var um daginn oft að blogga um hinn harða heim sem við erum blessunarlega lausir við að mestu  leiti.Ég hef verið sakaður um hræðsluáróður og ekkert slíkt gæti hent okkur.Ég geri nú ekki ráð fyrir að sjóræningar ræni íslenskum skipum.En óneitanlega fer um mann þegar svona skeður fyrir skip frá frændþjóð okkar.Skipsrán eru tíð á nokkrum hafssvæðum.En þessa er mjög sjaldan getið hér í fjölmiðlum.Ég minnist skeyti frá útgerð sem ég sigldi hjá þar sem sagði að skipstjórinn á einu skipanna hefði vaknað með hníf við hálsin og hann neyddur til að afhenda öll verðmæti.Þetta skeði um nótt í Singapoorsundinu eða Strait of Malacca.Maður á bágt með að ýminda sér hvernig áhöfninni líður ef þeir eru þá á lífi.Þetta setur skugga á sjómannadaginn hjá mér.Að vísu veit ég ekki enn hvort einhver af áhöfninni sem ég sigldi með er um borð,en þetta eru danskir sjómenn

Fragtskibet Danica White kapret ud for Somalia

02. jun. 2007 23.40 Udland

Direktør Jørgen Folmer fra rederiet H. Folmer Co. bekræftede i aftes over for Ritzau, at rederiets fragtskib Danica White, med fem danske besætningsmedlemmer, er blevet kapret af ukendte gerningsmænd ud for Afrikas Horn på den østafrikanske kyst.Danica White var på vej til Mombasa i Kenya med en last af entreprenør-materiel, og det var fredag aften 240 sømil fra kysten.Et fransk krigsskib i området har været i kontakt med Danica White, og det fik at vide at skibet havde kurs mod Somalias hovedstad, Mogadishu. Desuden havde det tre små både på slæb, og det var franskmændenes indtryk, at der var bevæbnede folk om bord.Det har ikke været muligt for H. Folmer Co. at få kontakt med Danica White. Rederiet har bedt det franske krigsskib om at standse Danica White, men det har fået besked på at det ikke må følge Danica White ind i somalisk territorialfarvand. Danica White


Kótinn og Mogginn

Batnandi manni er best að lifa datt mér í hug er ég las forustugrein Moggans í dag.Þar stóð m.a

.......Þótt færa megi margvísleg rök fyrir kvótakerfinu að öðru leyti er ljóst að markmiðið með því var ekki að það skildi eftir sig sviðna jörð um land allt. En það er kvótakerfið að gera. Ef kvóti Vinnslustöðvarinnar hverfur frá Vestmannaeyjum má búast við að stór hluti íbúanna flytjist á brott. Viljum við það? Er það markmið sjávarútvegsstefnunnar að leggja Vestmannaeyjar í eyði? Er það markmið sjávarútvegsstefnunnar að byggðin leggist af á Flateyri við Önundarfjörð? Það má færa rök fyrir því að Bolvíkingar hafi náð sér á strik á trillubátum eftir að kvótinn hvarf frá Bolungarvík en hvaða sjómenn geta rekið fiskveiðar með því að leigja kvótann á 200 krónur kílóið og selja fiskinn aftur á innan við 300 krónur kílóið? Við Íslendingar viljum ekki að sjávarþorpin leggist í eyði. Við viljum ekki að þorri sjómanna verði leiguliðar hjá fáum, stórum kvótaeigendum. Við lítum ekki svo á að þetta hafi verið markmiðið með kvótakerfinu. Þess vegna er nú óhjákvæmilegt að taka þetta kerfi til endurskoðunar á nýjan leik. Það gengur ekki að örfáir einstaklingar geti lagt heilu byggðirnar í rúst með því að kaupa upp þann kvóta sem þar er að finna. Hvort sem Einari K. Guðfinnssyni sjávarútvegsráðherra líkar betur eða verr verður hann að taka þetta mál allt upp til endurskoðunar. Og það þýða engin vettlingatök. Ekki er það betri kostur fyrir sjávarútvegsráðherra að Vestmannaeyingar og Flateyringar fjölmenni til Reykjavíkur og stormi borgarhliðin að sjávarútvegsráðuneytinu. Þolinmæði íbúanna í sjávarplássunum er augljóslega þrotin. Ráðherrarnir í ríkisstjórn Íslands eiga ekki að bíða eftir því að sú þolinmæði springi framan í þá með ógnarkrafti......

Skildi það loksins vera farið að síast inn í menn hvaða ógagn er að þessu kótakerfi fyrir landsbyggðina.Það skildi þó ekki fara svo að Morgunblaði yrði helsta málgagn þeirra sem vilja breytingar á þessu kerfi.Það verður alltaf meira spennandi að hlusta á Sjávarútvegsráðherra halda sína ræðu á morgun.Ef við skoðum sviðið í hans ranni í dag.Fégráðugir braskarar fara eins og stormsveipir yfir landið í leit að kóta til að braska með.Ógn vofir yfir sjávarbyggðum þessa lands ef ekkert verður að gert.Hvað gera t.d. erfingar þeirra manna sem í dag reyna að halda sínum kæru heimabyggðum í byggð þegar þeir síðarnefndu falla frá.Fiskiskipum fækkar og þar af leiðandi störfum sjómanna.Ef trúa má orðum formanns stéttarfélags þeirra á Akureyri þá er þrælahald aftur komið á suma íslenska togara allavega í eigu eins ónefnds manns.Og slysum fer fjölgandi í framhaldi af því.Farmannastéttinni að blæða út.Hafró með enn  eina af sínum svörtu skýrslum.Byggðri á einhverju arfavitlausu togararali sem enginn,sem vit hefur á veiðiskap dettur í hug að taka mark á,Mér skilds á mönnum sem hafa tekið þátt í þessari vitleysu sem Togararall heitir að það sé bara togað á sömu svæðum með útbúnað sem er síðan á árdögum skuttogara Maður hugsar með hryllingi til framtíðar ef þessi nefndur ráðherra lætur fljóta sofandi að feigðarósi.Við skulum bara vona að Mogginn komi vitinu fyrir þennan ráðherra sem stjórnar þessum,allavega fv undirstöðuatvinnuvegi okkar og taka undir með Steini Steinari er hann kveður:

.....Og eitt sinn skulu draumar vorir rætast

um þjóðfélag hins frjálsa,sterka manns,

sem engin ránshönd,drápshönd vofir yfir

og slegið fær.......

Það var slæmt að ekki skildi vera hreinsað út í margnefndu ráðuneyti og þessari samkundu sem kennir sig við Hafrannsóknir í leiðinni 

 


Bloggfærslur 2. júní 2007

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband