Trygingastofnun

Nú finnst mér skörin farin að færa sig upp á bekkinn.Þegar Tryggingastofnun sem stjórnað er af Samfylkingarmanninum Karli Steinari Guðnasyni er farin að skamma lyfjafræðinga fyrir að benda sjúklingum á sinn löglega rétt,Hvurskonar stofnun er þetta orðið.Hvað skildi flokksystir Karls Steinars segja um þetta,Jóhanna Sigurðardóttir,hvers dóttir er,sem að mínu minni óbrengluðu átti stóran hlut í að stofna Tryggingastofnunina og stýrði henni í hennar frumbernsku.Sigurðar E.Ingimundarsonar.Illa er ég svikin og er þá líka farin að efast um meiningu í stefnu fv Alþýðuflokks ef þetta er eftir hugmyndum hans.En og aftur,hvenær eiga þessum barsmíðum stjórnvöldum á hinum sem minna mega sín í þjóðfélaginu að linna.Það er háðulegt í meira lagi að á sama tíma og þetta er að ske,að Tryggingarstofnun sé að reyna að fela sitt hlutverk,til þess að fólk fái ekki að vita um  þessar smánarbætur sem í boði er hjá henni,þá fjúka kosningavíxlarnir sem aldrei fyrr..Ja svei.Sendum þetta fólk í langt frí.Frelsum Tryggingarstofnum úr klóm þessa fólk.Sjáum til að fólk sem minna má sín fái réttláta leiðréttingu mála sinna.Að lokum hvað er Björn Bjarnason nú að bralla.Kært kvödd

Öryrkjar,gamla fólkið og ráðherrar

Enn og aftur eru stjórnarsinnar staðnir að  því að segja þjóðinni ósatt og hreinlega falskar upplýsingar til fólks.Kunna þessir menn ekki að skammast sín.Það er því miður svo held ég.Mér er minnistæður tveir trollaraskipstjórar frá gamalli tíð þegar togurunum var skift niður í 2 kódafélög.Aflinn sem hafði fengist á vissum tímum var gefin upp og sendur á dulmáli til kódafélagana..Annar þessara skipstjóra var nú engin sérstakur aflamaður en gaf mjög oft allfof mikið upp.Hann kallaði það að ljúga sig í stuð.Svo var hann mestalla heimleiðina frá t.d Grænlandi að leiðrétta uppgefinn afla svo að allt passaði við löndun.Hinum skipstjóranum var akkúrat öfugt farið.Ef hann lenti í fiskiríi þá laug hann alltaf til að fá ekki félagana til sín og þurfti svo að leiðrétta aflatölurnar á heimleiðinni.Báðir þessir menn notuðu lýgina sér í vil.Það var gert grín að þeim báðum.Mér hreinlega fallast hendur yfir því sem er að ske í áróðri stjórnarliðanna.Sérstaklega ráðherrum fjármála og heilbrigðis.Hvernig þeir birta falska útreikninga á kjörum öryrkja og eldri borgara.Hvernig í andsk...... voga þeir sér að bera þetta fyrir borð fyrir almenning.Allavega eftir tölum sem félag eldriborgara hefur sýnt fram á þá er þetta svívirðilegar falsanir.Mér kemur í hug á miðöldum þegar litið var á alþýðuna sem einhverja skrælinga og hún fyrirlitin af yfirvöldunum.Kölluð sauðsvartur almúginn.Mér segist svo hugur að margir af þessum gulldrengum/stelpum sem sitja þing og ráðherrastóla fyrir stjórnarliðið séu haldin þessari gömlu ásýnd.Að það sé sama hvaða andsk,,,,,,, lýgi þeir haldi fram,almenningur trúi þeim.Mér finnst satt að sega ligga svo mikil mannfyrilitning í áróðri og fölsunum þeirra að það nái engu tali.Mér finnst það hreinlega vera fyrir neðan virðingu ráðherra að setja svona falsanir fyrir fólk sem byggt hefur upp það þjóðfélagskerfi,með mikilli vinnu á sínum yngri árum sem við búum þó við í dag.Þetta er eins og köld vatnsgusa framan í þetta fólk,Ég vona bara að almenningur þessa lands sýni þessu liði að það sé meira en þeir halda milli eyrnana á fólki.Við skulum pína þá til að fara frá svo að við fáum leiðréttar tölurnar.Við skulum ekki lofa þeim oftar að ljúga sig í stuð.Við skulum muna eftir fölsununum,þann 12 maí.Gefum þessu ósanninda fólki og fölsurum frí sem allralengst.

Bloggfærslur 8. maí 2007

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband