Fyrirsætur

Gleðilegt sumar.Það virðist vera að það þurfi að hafa nógu myndarlegt fólk og þá sem koma vel fyrir í sjónvarpi á framboðslistum svo að árangur eigi að nást.Ég held ungt fólk í dag hugsi allt öðruvísi um stjórnmál,ef það gerir það þá yfirhöhuð,en fólk af minni kynslóð.Og sem kannske er að sumu leiti gott og að  sumu leiti frábært.Á mínum uppeldisárum voru eiginlega einu tegslin við stjórnmálamenn í gegn um blöðin og Ríkisútvarpið.Eldhúsdagsumræður voru eiginlega eina beina sambandið við Alþingi.Nema að sjálfsögöu fréttirnar þar sem sagt var frá stærstu málunum.Útvarpið var þá eiginlega eini fjölmiðillinn sem(átti allavega að vera það)var hlutlaus.Skildi ekki margur á mínum aldri hafa heyrt sagt við sig"þegiðu strákur/stelpa það eru fréttir.Nú svo voru það framboðsfundirnir í gömlu kjördæmunum sem að,eftir að maður komst á þann aldur að einhver af hópnum var"bílandi"elti.Þessir fundir voru oft hin mesta skemmtun og kærkomnir í fátæklegri  dægrastyttingu þess tíma.Svo var það sjálfur kjördagurinn já það er best að tala ekki svo mikið um hann svona eftir að fermingaraldri var vel náð.Svo voru það flokksblöðin.Mogginn,Tíminn,Þjóðviljinn og Alþýðublaðið.Skoðanamyndanir flestra unglinga á þessum tíma fór held,ég töluvert í byrjun eftir hvaða blað var keypt á heimilinu og hvaða skoðun heimilisfaðirinn hafði á málinu til að byrja með,sem svo síðar átti kannske eftir að breytast hjá mörgum.Þetta er orðið alltöðruvísi í dag,Ég var að tala við konu sem komin er vel á fertugsaldurinn um daginn.Hún vildi meina að Davíð Oddson væri forsætisráðherra og"sæti strákurinn í Reykjavík" væri ábyggilega einhver ráðherra.Þar átti hún sennilega við Björn Inga.Að líta vel út í auglýsingum blaða og sjónvarps er víst það sem gildir í dag.Ég tek undir með manninum sem líkti Framsóknarflokknum við Coke Cola.Báðir væru snillingar í að auglýsa sig.Ég er með þessum orðum ekki að gera lítið úr ungu fólki í dag.Langur vegur þar frá,Við eigum miklu  frjálsara og opnara  æskufólk í dag en þegar ég var að alast upp.Ég man að ég las einusinni klausu sem mér fannst eiga við það sem eldra fólk sagði um okkur á mínum táningsárum.Það kom svo í ljós að þarna var að mig minnir grískur fræðimaður að lýsa unglingum mörgum árum fyrir Krist.Kært kvödd

Bloggfærslur 20. apríl 2007

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband