4.12.2007 | 14:01
Herjólfur
![]() |
Fyrri ferð Herjólfs frestað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.12.2007 | 04:17
Ferðasaga 2
Mig langar til að halda áfram ferðinni sem við hófum um daginn.Ég skildi við ykkur í höfninni í Vitoría Brasilíu þ 9 júlí.Við höfðum lestað þar tæp 1000 ts af"pigiron"(hrájárn)til Mantanzas smábæjar(eiginlega bara bryggja með losunarútbúnað til allslags bulkfarma m.a,)sem stendur við Orinoco fljótið í Venezuela.Vegalengdin var ca 3000 sml.Við fengum sæmilegt veður og komum við að fljótsmynninu um miðnætti 23/24 júlí.Lóðsinn var ungur innfæddur náungi,léttur og skemmtilegur.
T.v loftmynd af Orinoco fljótinu.T,h, kort af hluta fljótsins("Netið")Fljótið er að ég held 15-1700 landmílur
Í byrjun fannst mér hann stundum full kærulaus en það vandist.Ég hugsa að svona smá "Coasterar"séu frekar sjaldséðir þarna og hann bara naut þess að stýra sjálfur og spjalla.Og ég átti eftir að sakna hans heldur betur á útleiðinni.Siglingin upp fljótið var einstök lífreynsla.Á fljótsbakkanum búa frumbyggjar "Yanomamimenn/konur"(jafnréttið haft í heiðri)einn af ættbálkum indíána að ég held.Þeir eru eru veiðimenn og búa í hreysum niður við fljótsbakkan,Við hvert hreysi er tóm olíutunna sem búið var að helminga.Sennilega notað til að grilla mat.Og svo var það hengikoja og yfirleitt mannvera í henni."Húsbóndinn"sagði lóðsinn.Hann er höfuð heimilisins og er í því að afla matarins.Þ.e.a.s.hann veiðir dýrin í skóginum.En konan fæðir og elur upp börnin,eldar og fiskar,Það er fyrir neðan virðingu"húsbóndans"að veiða fisk.
T.v. eitt af reysulegri híbýlum Yanomafólksins.T.h kona af ættbálknum.(netið)
Á fljótinu var krökkt af svokölluðum"Kanónum".Í þeim voru bara konur og/eða börn.Kolbrún Halldórsdóttir eða aðrar femínistakonur ættu að fara þarna og eiga orðastað við húsbænduna á þessum slóðum.Svona undir 4 augu.Ekki það að ég sé ekki meðmæltur jafnrétti og styðji konur í þeirra virkilegu baráttu fyrir t.d.launamismun.En t.d þetta með bleikt eða blátt á vöggustofum og svoleiðis mál,það finnst mér að aðeins of langt gengið.En það heyrir sennilega undir bölvaða karlrembu hjá mér.
T.v.Yanomamimenn.Th hluti af Orinoco flótinu sé úr lofti (netið)
Það var mikið kallað,veifað til okkar og mikið hlegið.Fólkið var algerlega óhrætt á þessum smábyttum.Við köstuðum stundum sælgæti og gömlum fötum til þeirra sem lóðsinn sagði að væru vel þeginn.Hálf var ég "nervös"við þessa miklu umferð þessara kanóna en það vandist af mér fljótt.Lóðsinn sagði mér að mikill meirihluti af þessu fólki hefði sennilega aldrei komið til neinnar borgar eða þorps.Aldrei séð bíl eða neitt af slíku tagi.En það vantaði ekki glaðværðina.Engar áhyggjur af vöxtum,gengi gjaldmiðilsins "Venezuelan bolívar".Ekkert sjónvarp ekkert útvarp.Nokkur hreysin voru með bárujárns þaki.Sennilega"kvótakóngar"svæðisins.
Svipmyndir af Orinoco fljótinu (netið)
En hvað um það við komum til Mantanzas um kl 1030(tíminn nákvæmlega færður á Hempels spjaldið!!!) þ 25 júlí.Losað var með einhverslags segultrommu.Seglinum slakað án straums niður í hauginn í lestinni svo straumur settur á"hele klabbið"og híft upp.Svo er straumur tekin af þegar hífið er komið yfir járnbrautarvagninn og járnið hrynur niður í vagninn.
T.v.Rétt ókomnir til Mantanzas.T,h losun þar.
Losunin gekk vel unnið var fram að miðnætti og byrjað aftur 0600,Um kl 2000 um kvöldið var henni lokið og kl 2215 - landfestar hef ég skrifað á Hempelspjaldið.(eiginlega þýsk nákvæmni á hlutunum!!!!)En nú var stór breiting á ferðalaginu.Gamall hundfúll lóðs sem ekki tók annað í mál en að fá mann að stýri.Þar sem skipið var búið góðum"autopilot"höfðum við ekki beitt okkur mikið í því að kenna þessum 2 strákum sem við höfðum á dekki að stýra.Svo kom eitthvað vandamál upp með kælinguna á aðalvélinni svo að skipperinn sem var jafnfram yfirvélstjóri skútunnar varð að vera tímunum sama niðri í vél.
Ég hef nú Gunnar vin minn grunaðan um að leiðast lóðsinn svo að hann hafi haldið sig lengur í vélarrúminu en þörf krafði.Ég er með þeim ósköpum gerður ef ég reiðist þá segi þeim sem ég reiðist við,meiningu mína og það yfirleitt á"hreinni"íslensku,en bara íslensku.Ég get aldrei orðið eins reiður á öðrum tungumálum eins og á íslensku.Ég lærði því fljótlega eftir að ég fór að"sigla"að tempra reiði mína.Ef ég reiddist t.d. við danina þá hreinlega skildu þeir mig ekki.Og til hvers að ausa úr skálum reiði sinnar yfir fólk sem ekki skilur mann.Það er ílla farið með góða íslenska reiði.Maður kann nú kannske að segja"fu.. you"in english.En svoleiðis segir maður ekki nema að vel athuguðu máli.Og maður athugar oft ekki mál vel þegar maður er reiður.
T.v Skip að lesta/losa á fljótinu.T.h VLAANDEREN XVIII.Hollenskt dýpkunarskipað störfum á Orinoco fljótinu þessi mynd af netinu en ég man að ég sá þetta skip
Meira segja vandist ég á að segja"holy moly"í staðinn fyrir andsk.... eða djöf..... hér áður fyrr.En þetta var nú úturdúr.En þarna varð ég að"dúsa"við stýrið lungan úr ferðinni niður fljótið.Ég gat nú kóplað"autopilotinum" inn öðru hvoru og stýrt með honum og stundum nokkuð lengi án þess að lóðsinn yrði þess var.Kaffi var mér fært (og náttúrlega lóðsinum líka)af skipstjórafrúnni.Og Gunnar leysti mig af í mat."Fandens idiot" var orð sem hann notaði mikið um lóðsinn.En ég reyndi að halda ró minni á ensku.Sem betur fer gekk ferðin niður fljótið skemur fyrir sig en upp.Og slepptum við lóðsinum 1740 þ 27 júlí.Skipið hafði verið"sluttet"(þ.e.a.s það var búið er að semja um næsta farm.Þetta kalla danirnir að "stutte"skipið)með farm af "profile"stáli frá Port Lisas (Trinidad)til Kingstone(Jamaica)Til P.Lisas komum við(eftir Hempelsspjaldinu)1600 þ 3 ágúst.
T.v.kort af Trinidad,Tobago.T.h skrautleg Trinidadstúlka(netið)
Byrjuðum að lesta um morgunnin þ. 4.Og fórum frá P.Lisas 0230 þ 6 ágúst.Ég ætla að láta þetta nægja núna.Því miður er ég búinn að týna flestum þeim myndum (skil það nú ekki alveg) sem ég tók á leiðinni uppeftir fjótinu.En þá hafði maður nægan tíma er bjart var að taka myndir.En ég hef fundið myndir og fengið þær "lánaðar"af Internetinu svona til að skreyta frásögnina.Þær eru merktar(netið).Ég vona bara að einhver hafi haft nennu til að lesa þessar tilbaka hugsanir gamals sjóara sem hefur lítið sem ekkert annað að dunda sér við að koma þeim á blað á milli þess sem hann rífur kja.. um allt og alla og þykist vita allan fja.....Og að sá hinn sami þ.e.a.s. lesandinn hafi haft einhvert gaman af þessu.Allavega myndunum.Verið ávallt kært kvödd.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Bloggfærslur 4. desember 2007
Um bloggið
Ólafur Ragnarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
kolbrunerin
-
gudruntora
-
gmaria
-
dala
-
nafar
-
valmundur
-
johannesgylfi
-
gudrunmagnea
-
rheidur
-
gretarmar
-
magnusthor
-
nilli
-
georg
-
lydurarnason
-
reykur
-
johanneliasson
-
helgigunnars
-
hector
- kerfi
-
kallimatt
-
jonsnae
-
jp
-
jaj
-
hva
-
valurstef
-
sigurjonth
-
einherji
-
fiski
-
jakobk
-
harhar33
-
rs1600
-
iceman
-
thorirniels
-
kjartan
-
oliskula
-
1kaldi
-
gretar-petur
-
jon-o-vilhjalmsson
-
skulablogg
-
floyde
-
ragnarb
-
meistarinn
-
palmig
-
aevark
-
morgunbladid
-
zumann
-
jensgud
-
gutti
-
gudni-is
-
saethorhelgi
-
geirfz
-
iceship
-
fuf
-
saemi7
-
ketilas08
-
kokkurinn
-
einarorneinars
-
xfakureyri
-
siggith
-
stormsker
-
valli57
-
markusth
-
luf
-
framtid
-
vefritid
-
jakob
-
postdoc
-
jenni-1001
-
mal214
-
partners
-
iceberg
-
valdivest
-
torfis
-
gattin
-
malacai
-
benz
-
gumson
-
hildurhelgas
-
minos
-
seinars
-
skinogskurir
-
krist
-
thjodarheidur
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 65
- Frá upphafi: 537306
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 24
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar