Langanes

 

Það hefur verið að veltast fyrir mér þessi flakbútur sem fannst um daginn N af Langanesi.Menn voru að velta fyrir sér Kingston Peridod og St Romanus.En það er fleirum til að dreifa t.d togaranum Lady Love LO 167 sem hvarf að ég held út af Austfjörðum 30 ágúst 1941

 Lady Love LO 167

Álitið að skipinu hafi verið sökkt af kafbátnum U 202.Skipið var smíðað 1910 sem OPHIR H725 hjá Cook, Welton & Gemmell Ltd.Fyrir Pickering & Haldane's Steam Trawling Co Ltd, Hull.Það var 230 ts að stærð.Skipiðhafði verið notað í fyrri Heimstyrjöldinni frá 1915 - 1919 sem tundurduflaslæðarinn FY335.Gekk síðan kaupum og sölum og hét síðan Star of Moray;  Ophir GY 1220 og Ophir II A 232 og síðast frá1934 í eigu Hewett Fishing Co Ltd, London og hét Lady Love LO 167.

 

Princess Marie Jose FD 12

Næsta skip sem gæti komið til greina er Princess Marie Jose FD 12 Skipið var smíðað hjá  Cook, Welton & Gemmell Ltd í Beverly fyrir Armitage Steam Trawling Co Ltd, Hull og hét PRINCESS MARIE JOSE H 242.Skipið var 274 ts að stærð.Það var tekið í þjónustu Royal Navy 1915-1919 sem tundurduflaslæðarinn FY 1770. 1920 Selt til Sun Steam Trawling Co Ltd, Fleetwood  (FD12).Selt1934 til Robertson & Wood, Aberdeen og skýrt FEUGHSIDE (A114).6 okt.1939 Selt til Loch Fishing Co Ltd, Hull og skýrt LOCH HOPE H220.1940 tekur Royal Navy  skipið aftur í sína þjónustu sem" auxiliary patrol vessel" no FY 497.1945 Skipinu skilað aftur10 ág.1945 skipið selt til A & M Smith, Hull 11 júni1947 sekkur skipið út af austfjörðum eftir að tundurdufl sem kom í vörpu þess sprakk Einn skipverji.týndi lífi en 17 skipverjum bjargað af  togaranum URKA FD289 .Þeir voru settir í land á Seyðisfirði.

 Þetta er Lord Lloyd sem var smíðaður í Selby og var Daniel Quare

sömu gerðar.

Næsta skip sem kemur til greina er Daniel Quare Þetta skip var 440 ts að stærð byggt 1936 hjá Cochrane & Sons Ltd Selby  sem Ocean Monarch H327.Eigandi Ocean Steam Fishing Co Ltd Hull síðan Charlson-Smith Trawlers Hull. 1938 kaupir Charlson-Smith Trawlers Hull skipið sem skýrir það STELLA CARINA alltaf sömu einkennisstafir.ÍJúni1946  kaupir Kopanes Steam Fishing Co Ltd Grimsby skipið og skýrir það Kópanes GY 279.Það sökk 7 mílur WNW af Langanesi 09 sept.1955

En það er af Lord Lloyd að segja að 14 sept kom leki að skipinu er það var að veiðum út 30 m út af Austfjörðu og byrjaði það að sökkva í slæmu veðri.Skipverjar fóru í 2 gúmmíbjörgunarbáta.Þeim var bjargað af belgískum togara.En daginn eftir og veðri slotaði var sá"gamli"enn á floti.

 Wyre Mariner

Tók nú togarinn Wyre Mariner skipið í tog og dró hann til Seyðisfjarðar.Tók það um 11 tíma.Þegar til Seyðisfjarðar kom var skipstjóri Wyre Mariner Percy Bedford tekinn fastur fyrir landhelgisbrot.En hann hafði verið staðinn að veiðum áður innan 12 mílnana.Lord Lloyd komst svo aftur til Fleetwood.Það kom í ljós að botnskykki við dýptarmælirinn hafði gefið sig.Llord Lloyd var síðasti kolakynti togarinn sem gerður var út frá Fleetwood.Ég hef grúskað þetta blogg af "nettinu og myndirnar eru þaðan.Aðallega frá Float-Trawlwers-Lancahire float-trawlers.Ég vil óska öllum árs og friðar.Kært kvödd

 

 

 


Bloggfærslur 30. desember 2007

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 65
  • Frá upphafi: 537306

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband