Curacao

 

Ég skildi við ykkur í höfninni "Port Royal Harbour".Við höfðum fengið fyrirmæli frá útgerðinni:"Siglið af stað:"Lands End for order""Eftir að hafa fengið"smá vatnsopa"Héldum við af stað.Vatnsopa sagði ég,en við vorum  satt að segja sjálfum nógir með vatn á löngum siglingum úti á opnu hafi.Skipið var búið svokölluðum"vatergenerator"þannig að við gátum bruggað vatn úr sjó.Þetta leiðir hugan að hrakningum fiskibátsins"Kristjáns" í febr/mars1940.Þegar báturinn hraktist fyrir sjó og vindi í 12 daga,En vélstjóri bátsins Kjartan Guðjónsson hefur sennilega bjargaði lífi sínu og  4 félaga sina vegna vitundar sinnar um brugg.Við gátum svona nokkurnveginn haldið í við vatnseyðsluna,nema helst í hitabeltinu.

 T.v Kingston t.h.skipið

En það var aldrei treyst 100% á þetta svo að við höfðum alltaf umframsopa ef tæknin skildi bregðast.En hvað um það við lögðum af stað"Lands Ends for order"Mér hafði tekist að rétta öll kort og bækur.Og gat nú óhræddur mætt "Portstate Control"hvar sem væri allavega á vesturlöndum,En þetta"Portstate Control"er orðið að hálfgerðu stríði á milli landa sumstaðar að mínu mati.Danir eru að taka"drulludalla"frá Rússlandi,Tyrklandi.Grikklandi og fl þjóðum með vafasamar reglur hvað sjófarendur varðar og kyrrsetja þau.Þegar dönsk skip koma svo til þessara landa eru þau"gegnumskrúfuð"í leit að einhverju til að stoppa þau.

 

Þessi hefði nú verið stoppaður í USA bara út af nafninu,að maður tali nú ekki um ryðið

 

Allt gert til að finna eitthvað til þess og jafnvel eitthvað fundið upp til að tefja fyrir losun/lestun skipsins.En ég veit að minn góði vinur Þór Kristjánsson brosir nú að þessu tauti.Þeir voru ánægðir með hann hjá H.Folmer.En Þór er yfirmaður"Portstate Control á Íslandi og góður vinur minn til margra ára.Það gekk sú saga á skipum félagsins að allir skipperar sem til Íslands kæmu og fengu"Portstate Control"um borð hefðu skipun um,frá æðstu stjórnendum að segja að ég hefði siglt með þeim.En ég veit að hafi eitthvað verið að um borð þá hefði Þór ekki látið vinskap við mig hafa áhrif á vinnu sína.

 

  Þessi heitir"Gulf Pride"hvers flóa prýði hann er veit ég ekki,En ekki prýðir ryðið

 

En þetta er nú bara sagt sem brandari,Og er nú útúrdúr.En höldum áfram.Dagur hjá stýrimanni á svona"Coastera" í hafi byrjar náttúrlega kl 0000 eins og öllum öðrum.Þá leysir hann skipstjórann af.Stendur svo(einn í brúnni)til kl 0600 að skipstjóri leysir hann af.Nú hefur stm frí til kl 1200 en í mínu tilfelli undir svona kringumstæðum kom ég alltaf um kl 0900 upp í brú.Ef skipstjórinn hafði eitthverju að sinna niður í vél(en hann var einnig yfirvélstjóri)fór hann þangað.Annars var það allskonar pappírsvinna sem hann gat leyst af hendi niðri hjá sér og ég var í að leiðrétta kort og bækur.Kl.1130 át stm hádegismat og leysti svo af sem vagthafandi kl 1200..stóð svo til kl 1800 að skipstj.leysti hann af aftur.Og hafði þá stm frívagt til kl 0000

 

 Gamall Libertydallur sennilega löngu sokkinn núna

Þetta gat verið strembið þegar maður var í stuttum siglingum t.d. þegar stutt var á milli hafna.Lítið um hvíld bæði vegna mikilla vinnu við lestun/losun.En stm varð að sjá um þær vegna anna skipstjóra við vélargæslu pappírsvinnu og annars sem viðkemur dvöl skipsins í viðkomandi höfn.Nú svo voru skipin misjöfn í sjó að legga eftir förmum í slæmum veðrum.En  þetta heyrir ekki undir öryggi skipsins ekki eftir þeim undanþágum sem fást fyrir mönnun skipa af þessari gerð allavega í Danmörk.Einn skípstjórinn spurði einn"Portstate Contrilgæjann"niður á Ítalíu eitt sinn eftir að PsC maðurinn hafið gert athugaemd við einn fastmálaðan krók."Viltu ekki vita hvenær ég svaf síðast" Nei það vildi ekki Portstate ekki vita.Það kom Portstate Control ekki við.

 

 Algeng sjón að mörgum af þessum"þægindafána"ryðhrúgum"Safety First.Safety hvurn andsk.....

Það hafði sem sagt ekkert með öryggi skipsins að gera hvort yfirmenn þess hefðu yfirhöfu nokkuð sofið undanfarna daga,En að einn fjan.... krókræfill sem halda átti hurð sem alltaf var opin það skifti öllu máli.Þessvegna voru svona langsiglingar vel þegnar svo maður sé laus við svona leppalú.. Fyrigefðu aftur Þór(nú býst ég við símtali áður en langt verður um liðið.En vonandi les vinum minn þetta ekki)Er nú von að maður hafi mikla trú á þessu fjand...  IMO kja..... öllu saman.(nú verð ég sennilega að skipta um símanúmer)En ég er mikill áhuga maður um öryggi sjómanna en reynsla mín af siglingum mínum á þessum svokölluðu"Coasterum"er ekki góð af þessum IMO reglugerða/undanþágufargani öllu saman.Það verða því miður stór sjóslys,eins og t,d "Scandinavian Star" (1990)" "Estonia "(1994)og strand"Borga" við Milford Haven(1995)

 

  Aðalstöðvar"IMO"í London

Þá virðist hlaupa hland fyrir hjartað á þeim hjá Imo og menn sem aldrei skip hafa séð(gæti maður haldið) setjast fyrir framan tölvur og búa til reglur/reglugerðir sem oft er engin leið er að fara eftir og stangast oft svo á hvor aðra að engu tali tekur.En við erum vel settir hér á Íslandi hvað þessi mál varðar með okkar Hilmar,Slysavarnarskólann og hans frábæru starfsmenn og svo Landhelgisgæsluna og hennar fræknu menn.Og að ónefndum björgunarsveita út um allt land Svo held ég að stéttarfélögin allavega undirmanna hafi staðið í sínu stykki..En þetta var nú einn leiðinlegur útúrdúrinn,Við skulum segja að eftir um viku siglingu,þá var það einn eftrimiðdaginn og við nálguðumst Bermuda,(við sigldum svokallaða stórbaugs siglingu)að við Gunnar(eða réttara sagt Gunnar með mitt áhorf) vorum að búa til Exel prógramm fyrir stefnu og vegal.

 

                         nullMunur á Rhumb line(mercatorkorts)siglingu og Great line (stórbaugs)siglingu 

Telexið var alltaf að glamra með allslags"report"frá Brasílíska Coast Guardinum.Svo kom eitt ekki alveg eins langt en við kveiktum ekki alveg stax á því.Svo kom að því að ég drulllaði mér að kortaborðinu til að athuga"statusinn"á málunum.Kom þá í ljós að þetta síðasta,var telex frá útgerðinni,þar sem þeir spyrja um vegalengd frá þáverandi stað skipsins til Willemstad á Curacau.Áður en við náðum að svara fengum við telex um að stoppa þar sem við værum og bíða fyrirmæla.Þetta gerðum við og sendum áætlaða vegalengd.

 T.v kort af"Netherlands Antilles.T.h frá  Willemstad 

Rétt á eftir kom svo telex um að fara til Willemstad.frekari fyrirmæli fengjum við síðar.Daginn eftir fengum svo fyrirmæli um að við værum komnir eða færum í"timecharter" hjá"Alcatel Sumbmarine Networks Marine" og ættum við að fara til Willemstad og lesta sæstreng úr kaballagningsskipinu"Heimdall"EX "Mercandian Admiral II".En skipið var eitt af systurskipum"Álafoss"og "Eyrarfoss"sem Eimskipafélagið keypti af Mercandian skipafélaginu á sínum tíma en hafði nú verið endurbyggt sem kapallagningsskip.Síðan áttum við að liggja í Willemstad þar til Alcatel ákvæði hvað gera skildi við kaplana.(en þetta voru að minsta kosti 4 mismunandi gildir kaplar")

 

Lengst t.v"Heimdal"kapalskipið og hinar myndirnar frá lestunnini á köplunum.

En"Heimdal"var að ljúka við að legga sæstreng milli Bermuda og Brasilíu og voru þetta einhverjir"afganga"sem þeir vissu ekki hvað ætti að gera við.Villemstad er höfuðborg Curacao sem er stærst af 3 svokölluðum"Netherlands Antilles" Stundum kallaðar ABC eyjarnar En hinar 2 eru Aruba(sem ég tel mig vita að bloggvinur minn Sævar Helgason  kannast vel við )og Bonaire Nema hvað við komum til Willemstad þ 10 sept.

 

 Lestunin

En Heimdal var ekki kominn og áttum við að bíða komu hans.Hann átti að fara beint í"dokk"þegar hann kæmi en á sama tíma átti að byrja að vinna við að byggja síló um borð hjá okkur í sömu"dokk".Þar sem að dýpi er svo mikið við ytrihöfnina í Willemshaven urðum við að láta reka og kippa svona einusinni á sólarhring.18 sept komum við svo að bryggju Willemstad.Strax var byrjað að byggja kabalsílóið.Síðan var kapallinn lestaður og tók það 2 sólarhringa að mig minnir.Meðan á því stóð var okkur boðið að borða um borð í Heimdal.Þeim munaði ekki um að taka okkur 6 í mat hjá sér kokkarnir þar.Og þar var ekkert "slor"á borðum.Ég man nú ekki lengur áhöfniná"Heimdal" taldi marga menn en svo voru hleðslumennirnir og allslags"stjórar"frá Alcatel um borð.Þeir sem sjá um hleðsluna voru 2 á hverri vagt sem stóð 8 tíma.Þ.a.e.a.s 6 menn og svo 5 eða 6"local" verkamenn.

 

null Frá  Willemstad 

null

Frá Villemstad

En þessir fyrrgreindu 6 ferðast um heiminn og eru bara í því að lesta kapla í skip bæði lagningsskipin og flutningaskip sem flytja þá út um allan heim.Ég hafði lent í að flytja sæstreng á öðru skipi félagsins fra Napóli til Seattle um Panamaskurð 9400.sml siglingu sem tók 45 daga.En það er allt önnur saga.Eftir lestunina á kaplinum í Willemstad tók við algert letilíf.Maður endurnýjaði kynni sín af rústhömrum og málningarpenslum.Þarna kynnumst við skipstjóra,hálfum dana og hálfum hollending.Pieter Ottosen að nafni.Hann átti og stjórnaði"Vlieland" 70 tonna 22,5 m löngum og 6,8 m br dráttarbát.

 

 "Vlieland"

Hann hafði aðalbækistöð í Willemstad en hann var búinn að"sullast"margar ferðir yfir "Atlanten"með allan fja.... í slefi.Ef einhver sem les þetta hefur fylgst með í danska blaðinu"Söfart"sem birtir flest sem skeður í dönskum siglingum,ætti sá hinn sami að kannast við nafnið.En Ottosen átti í löngu stríði við dönsk skattayfirvöld út af DIS reglugerðinni.Og hafði fullan sigur að lokum.Ottosen var með 2 dani með sér en réði 2-3 innfædda til hverrar ferðar fyrir sig.Hann virtist "vaða"í peningum og tók okkur öll með út "að borða"hvað eftir annað.Alltaf á 1sta flokks staði enda mikill matmaður eins og sönnum dana sæmir.

 

null Flugvöllurinn á Curacao 

 

Og umfangið eftir því.Hann átti svo vin þarna á Curacao sem rak"Diver´s shool"Og fengu strákarnir auk Gunnars fría kennslu hjá honum fyrir orð Ottosen.En ég lét mig hafa það að dunda mér við að þykast passa skipið og skrapa svolítið og mála.Auk þess að skreppa svo í land þegar.færi gafst.Þetta með að passa skipið er nú argasta lýgi því við lágum inna á lokuðu svæði hjá verftinu.Annars voru þessir 2 strákar sem við höfðum á dekkinu virkilega OK.Hvorugur drakk nokkuð að ráði og annar búinn að kynnast jafnöldru sinni (19-20)í USA á"Netinu"og sat flest öll kvöld(þegar hann var ekki að kafa)á internetkaffi í bænum og spjallaði við hana.

 nullT.v Hræddur er ég um að mann myndi kitla í nefið ef, já engan svona husunarhátt á mínu bloggi.T.h Frá  Willemstad 

Ottosen bauð mér oft sér með sér til að líta á"lífið".Ekki hafði ég áhuga á næturlífinu en það var víst með fjörugara móti þarna og hefur víst margt"skemmtilegt"uppá að bjóða.En það státar t.d.víst af stærsta vændishúsi í heimi.En eins og sönnum íslenskum sjómanni sem setur endurminningar á blað kom ég hvergi nálægt slíku og þvílíku.Sei sei nei.Ég held satt að segja að Pétur"Sömand"Pétursson sé sá eini sem játar slíkan ósóma upp á sig.Í endurminningum sínum"Einn í Ólgusjó"ritaðar af Sveini Sæmundssonar.En þetta var nú útúrdúr en sannleikurinn er sá að vegna aldurs og fyrri starfa (réttara sagt lífernis)hafði ég ekki tilheyrandi áhuga.En ég kýs helst að fara þegar ég kemst í land á dagtíma.Ég hafði komið nokkrum sinnum til Willemstad þegar ég var að þvælast í"Caribbean" á öðru skipi útgerðinnar(Danalight) og þá í"timecharter"hjá bandarísku fyrirtæki.

 

 

  null  T.v"Danalight"sem ég þvældist mikið á um"Caribbea".Sama skip að losa"ris"í Villemstad gæti verið sama skifti og ég týndi veskinu

 

En þá höfðum komið þangað með hrísgrjónafarma frá Súrinam.Mig langar til að segja ykkur smásögu af einni fyrri heimsókn minni til Willemstad. Við höfðum komið til Willemstad um hádegisbil með"ris"og áttum ekki að byrja að losa fyrr en morgunin eftir.Ég hafði fengið 600 US dollars hjá skippernum og ætlaði að versla í"The Harbor Duty Free Zone"sem er þarna í Willemstad.Það var um 3ja kortera gangur uppí Zóninn.En leiðin lá með fram mikilli bílaumferðargötu en fáfarinni af gangandi.Þegar ég svo kem á ákvörðunnarstað og ætla að borga verslunina þá var ekkert veski.Fyrsta sem mér datt í hug var að ég hefði hreinlega gleymt því um borð og flýtti mér þangað en ekkert veski þar.Þrátt fyrir að komið væri kolniðamyrkur fór ég samt eina"bunu"yfir gönguleiðina en án árangurs.Í hádeginu daginn eftir dreif ég mig eina ferð enn nú í björtu.

   T.v Danalightað losa"ris"í Villemstad t.h frá Villemstad

 

En án alls árangurs.Taldi ég nú veskið algerlega glatað.Við vorum nú nokkra daga að losa svo er það að mig minnir 3ju nóttina þá dreymir mig 2 góða kunninga mína þá Þór Elísson hinn dugmikla og dáða fv skipstjóra hjá Eimskipafélaginu sem var skipstjóri minn á "Stuðlafossi"og Jón Vigfússon ekki síðri dáðadreng og skipstjóra hjá sama fyrirtæki en sem lést fyrir nokkrum árum langt um aldur fram sárt saknað af öllum sem kynntust honum.En Jóni hafði ég kynnst fyrst eitthvað að ráði er við sátum saman í 1sta GMDSS námskeiðinu sem haldið var á Íslandi að mig minnir 1994.Þegar ég vaknaði kom það einhvern veginn yfir mig að fara nú eina ferð yfir svæðið.Því að dreyma þessa menn hlyti að vera fyrir góðu.

 Kapall lestaður í Shorehamn(England)til Thailands.(Marieanne Danica)

Og fékk fljótfengið frí til ferðarinnar.En eins og ég sagði var lítil umferð gangandi fólks þarna,En meðfram leiðinni voru svona trjábuskar.Allt í einu á leiðinni uppeftir mundi ég eftir því að á einum gatnamótunum hafði ég stoppa og dregið upp kort af borginni.Ég mundi eftir staðnum og viti menn þegar ég kem á hann liggur ekki veskið aðeins inn i einu trjábuskanum.Allir penigar i og allt Ok.Einhvern veginn hafi ég í fátinu ekki munað eftir þessu stansi fyrr en eftir að ég lagði þarna af stað.En eins og öll góð æfintýri endaði þetta vel.Ég læt þetta nægja í bili.Það má engin taka orð mín um "Imo"þannig að ég sé á móti öllu sem frá þeim kemur.En mér finnst sannast að segja allar þessar undaþágur sem"virðast"gefnar frá hinum ýmsu reglugerðum oft furðulegar.

"Stykkegods"(til olíuiðnaðar)lestað í Rotterdam til Tyrklands (Danica Red) 

Það voru menn frá"Söfartsstyrelsen"sem leystu af á skipunum hjá H.Folmer og vissu vel af vinnuskilyrðunum og hvernig hvíldartímareglurnar voru þverbrotnar,Vissu vel að skipstj og stm voru alltaf einir á vagt.Hásetar gengu alltaf dagvagt.Svo var alltaf verið að auka á fjan.... skriffinskuna um borð,Hvorki"Söfartsstyrelsen""Norsk Veritas"eða"Portstate control"tóku tilllit til vinnuálagsins á yfirmönnum á þessum skipum.Hugsið ykkur,kollegi minn á einu Folmerskipana sagði mér að eftir að skoðunarmaður frá Norsk Veritas hafði skoðað skipið hans hefi hann,skoðunarmaðurinn sagt"Dårlig dag,ingen bemærkinger,Þessi maður átti náttúrlega að sega góður dagur engar athugasemdir.

Álfarmur lestaður í Rotterdam til Grikklands (Danica Red) 

Maður upplifði þetta svo að þessi fyrrgreindu yfirvöld væru alltaf að reyna að hanka mann á einhverju.Svo þegar þeir birtust þá tóku þeir ekkert tilllit til hvað var að ske hvort annar hvor yfirmaðurinn var að reyna að ná sér í"kríu"efir erfiða nótt/dag.Menn voru rifnir út á rasssk..... hvernig sem á stóð.Mér finnst margt af þessu blessaða systemi vera komið út í svo miklar öfgar að það hálfa væri nóg.Og að maður sé hreinlega neyddur til að hætta(ljós puntur í ellinni.þeir eru ekki svo margir kannske fyrir)Það er orðið fjandi hart þegar fleiri eru farnir að slasast við allar þessar æfingar sem t.d.eru kannske fyrirvaralaust heimtaðar af af þessum yfirvöldum en við venjulega vinnu um borð.Þarna er ég kannske kominn í mótsögn við sjálfan mig þegar ég á hinn bóginn er að hvetja alla sjómenn að gæta vel að öryggi sínu.

 

Það hafa sennilega verið eitthvað fleiri á vagt í brúnni þarna en á"Folmerskipunum" 

En að öllu skal farið með gát.Það má enginn taka orð mín þannig að ég hafi á móti öllu sem kemur frá"IMO"langt frá því.En framgangur sumra manna sem starfa fyrir þá og eða önnur yfirvöld sem með þessi mál fara er oft einkennilegur.Það er eins og að það sem kostar yfirvöld og oft útgerðir einhverja peninga þá má gefa undanþágur út í það óendanlega en ef það kostar þessa hálv... sem enn þá eru á þessum skipum meiri vinnu þá verður að framfylgja því og það dyggilega.En nú er ég farinn að æsa mig svo upp yfir þesu að það er mál að linni.Þeir sem hingað hafa haft nennu til að lesa séu kært kvaddir


Minn lenti strax

Minn ísskápur fór á flug þegar ég flutti í sumar.En hann lenti nú strax svo þetta getur ekki verið hann.En eftir flugið fór rafmagnsreikningurinn minn uppí sömu upphæð og hjá 5 manna fjölskyldu.Hún var svo elskulega stúlkan hjá Hitaveitu Suðurnesja hér í Eyjum að hringja í mig í morgun og gera mér aðvart um þessa miklu aukningu á rafmagnseyðslu.Flugskápurinn var því"groundaður"forever í morgun og nýr fengin frá Geisla.Og þó veðurhæðin sé að fara upp í 40 sek m á Stórhöfða þá hreyfist ekkert hér í Himnaríki ég meinti Eyjahrauninu.Svo að nýji skápurinn er kominn til að vera


mbl.is Ísskápur á flugi í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 13. desember 2007

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 65
  • Frá upphafi: 537306

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband