Laxveiðibankastjóri

 

Nú er komið þetta fína veður.Maður er að komast niður á jörðina aftur eftir hól gærdagsin.Sem sagt tilbúiin að rífa kj....Ég hef því miður ekki geta myndað mér mikla skoðun á deilu Sverris Hermannssonar og Finns Ingólfssonar vegna fjarveru minnar frá landinu.Samt hef ég staðið Sverris meginn ef maður getur orðað það svo.Finnur Ingólfsson hefur alla tíð farið í mínar fínustu taugar.Alveg frá því 1988 að mig minnir.Þá var ég að koma úr morgunsundspretti úr Laugardalslauginni og beið við biðskyldu á gatnamótum Reykjavegar og Sundlaugarvegar.Beið eftir bíl sem var að koma V Sundlaugaveg.Ryðst þá ekki jeppi framúr mér vinstrameginn yfir gangstéttina og út á Sundlaugaveg,Ég sá vel ökumanninn enda sá ég hann vera að koma út að jeppa sínum þegar ég var að bakka út úr stæði mínu.Ef mig misminnir ekki var hann þegar þetta skeði aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra.

 

Þessa yfirgengilega frekju fannst mér ég upplifa seinna í öllu fari hans og látbragði.Ég tók frekar upp hanskan fyrir Sverri Hermannsson í þessari deilu þeirra.Lagði á mig að lesa ævisögu hans eftir  Indriða G Þorsteinsson og svo bókina"Skuldaskil"eftir Pálma Jónsson.Eftir lestur seinni bókarinnar og svo séð brot úr þætti Sigmundar Ernis þar sem hann talar við Finn Ingólfsson,hélt ég að Sverrir segði sannleikan en svo rann þessi laugardagur upp bjartur og fagur allavega hér í Eyjum.Eftir að hafa fullvissað mig um að ölmusurnar frá Lífeyrissjóðnum og TR væru komnar á"kontóið"og að ég gæti bætt kjúklingavængjum á hafragrauts og undanrennumatseðilinn.Fór ég af stað að verða mér út um þá,Þá mætti ég hinni heillandi blaðburðarkonu sem kemur með Moggan(sem ég nú vegna lítilla tekna verð sennilega að segja upp),Svo að þegar ég kom aftur með mitt haframél,undanrennu og kjúklingavængi gat ég snúið mér að Mogganum.Leit yfir fyrirsagirnar.

 

Rak þá augun í þessa "Lygamál í Mannamáli".Eftir lestur þessarar greinar sem er eftir Halldór Guðbjarnarson sem aldrei hefur neitt látið hafa eftir sér í þessu deilumáli og er að margra mati einn af gegnheiðarlegustu bankamönnum landsins ,duttu mér allar dauðar lýs úr höfði.Og þarf nú töluvert til á svona góðviðrisdögum.Halldór skrifar t.d þetta:.

""Fram undir þetta hef ég ekki haft mörg orð um Landsbankamálin hin síðari í fjölmiðlum, hvorki til að skýra málið og forsögu þess né til að svara ásökunum og skítkasti sem ég fékk á mig í kjölfar þess, hvað þá að leiðrétta rangfærslur sem bankastjórinn Sverrir hefur viðhaft í tímanna rás um eitt og annað sem viðkemur málinu. Alla þá sögu á eftir að segja. Í viðtalsþættinum Mannamáli héldu rangfærslurnar áfram og ekki sagt frá hlutunum eins og eðlilegt hefði verið. Réttnefni á Sverris þætti Mannamáls hefði eins vel geta verið Lygimál svo illa fóru þeir saman sagnameistarinn og sannleikurinn""Seinna í greininni segir Halldór;

 

""  Í upphafi árs 1993 bað ég, af ýmsum ástæðum, innri endurskoðanda bankans að færa fyrir mig bókhald sem innihéldi rekstrarkostnað bankans vegna bankastjórnar og bankaráðs. Með þessum hætti fylgdist ég síðan með kostnaði þessara aðila öll mín ár í bankanum. Snemma árs 1993 sá ég háa kostnaðarfærslu vegna kaupa á veiðileyfum sem greidd voru í janúar. Ég kallaði endurskoðandann til mín og bað um að fá að sjá þennan reikning. Reyndist þar um að ræða kaup á veiðileyfum í Hrútafjarðará og var reikningurinn samþykktur af kollega okkar Sverris, Björgvini Vilmundarsyni. Mér brá við því fram að þessu hafði ég ekki hugmynd um að bankinn keypti veiðileyfi í þessari á. Næstu daga á eftir íhugaði ég hvernig ég ætti að taka á málinu. Mér var ljóst að svona gæti þetta ekki gengið og eftir nokkurn tíma ákvað ég að ræða málið við Björgvin. Hvað okkur fór á milli skal ósagt látið en fram kom, að Björgvin var mótfallinn þessum kaupum og varð niðurstaðan sú, að hann bað mig að ræða málið við Sverri sem ég svo gerði nokkrum dögum síðar. Þar benti ég honum á að svona viðskipti gengju ekki - að hann seldi bankanum veiðileyfi í á sem hann væri sjálfur með á leigu. Siðferðilega væri þetta ótækt - hann gæti keypt veiðileyfi í öllum öðrum ám landsins en ekki þessari!

Þetta samtal mitt við bankastjórann er mér ljóslifandi fyrir hugskotssjónum fyrir það eitt, að allan tímann sat hann þegjandi við skrifborð sitt, horfði á mig og hlustaði. Hann sagði ekki eitt einasta orð og á miðri leið minn út úr skrifstofunni stoppaði ég, sneri mér við og sagði að síðustu: „Ef þú ætlar áfram að bjóða Steingrími Hermannssyni (hann var ekki lengur forsætisráðherra þegar þarna var komið sögu) til veiða í ánni á kostnað bankans, þá skaltu sjálfur fara með honum. Ekki geri ég það." Fáeinum dögum síðar sagði ég Björgvini að ég hefði rætt málið við Sverri. Hann sagðist vita það því Sverrir hefði sagt sér frá því og bætti við, að hann hefði sagt sér „að það hefði verið bölvaður hundur í mér. Fleiri voru ferðir mínar ekki í Hrútafjarðará, enda þótt bankinn og dótturfélögin héldu áfram að kaupa veiðileyfi í ánni af leigutakanum í vaxandi mæli.

Í gegnum tíðina hefur bankastjórinn alltaf haldið því fram að enginn - enginn, hafi gert athugasemd við sig um þessi veiðileyfi fyrr en 1997 að ytri endurskoðandi bankans gerði það og þá í fyrsta sinn. Þá hafi hann hætt þessu. Þessa fullyrðingu endurtók hann eina ferðina enn í Mannamáli Sigmundar. Eins og að framan greinir er þessi fullyrðing hans röng. Strax og ég lauk tali mínu við Sverri hringdi ég til Steingríms og sagði honum hvers ég hefði orðið áskynja og hvað ég hefði tilkynnt Sverri. Ég gæti ekki sætt mig við þessi viðskipti bankastjórans og bankans. Ég ræddi líka við endurskoðanda bankans um málið og veit hann af þessu samtali okkar Sverris, svo og nokkrir aðrir starfsmenn bankans""

Svo endar Halldór greinina:"" Það varð því að finna annan til forystu fyrir ágústferðunum og tók Björn Líndal, aðstoðarbankastjóri, það að sér. Honum og ýmsum öðrum er vel kunnugt um þessa tillögu mína á árinu 1991 og þá afstöðu að koma þarna hvergi nærri. Mörgum árum síðar, eftir að skarst harkalega í odda á milli Landsbanka og Seðlabanka út af tilteknu máli sem mjög fór í taugarnar á Sverri, lagði hann til að við hættum þessum veiðiferðum! Auðvitað gat ég ekki setið á mér að stríða honum þá vegna þessara umskipta og sérstaklega þar sem þessum ferðum hafði aðeins verið haldið áfram hans vegna. Þar með lokaði hann á þessar veiðiferðir, eins og hann orðar það, enda var þá vinurinn úr hinum bankanum hættur störfum og ekki eins gaman að veiða og áður. Upplýsingar um veiðifélagann voru felldar úr „annarri útgáfu" skýrslu sem bankaráð Landsbankans lét einn núverandi hæstaréttardómara gera þegar Landsbankamál hin síðari stóðu sem hæst. Það er oft skammt á milli mannamáls og lygimála.""

 

Eftir lestur þessarar greinar leið mér eins og mér leið á Landsfundi FF í vor þegar dóttir þessa "dánumans" (Sverris) helti sér yfir Jón Magnússon alveg fokreið yfir að hafa tapað varaformanns kjörinu.Ef hefði örlað á einhverjum stuðningi við Margréti á sínum tíma hvarf hann eins og dögg fyrir sólu eftir ræðuna og ekki batnaði álit mitt á henni eftir yfirlýsinguna frægu þegar hún hældi sér af því að hafa 0 atkvæði á bak við sig við stofnun"Nýja meirihluta" í Borgarstjórn.

 

Sama má segja um Sverri ef það hefur örlað á að ég hefði trúað einhverju sem hann hefur sagt/skrifað hvarf það eins og dögg fyrir sólu í morgun og eina sem mér dettur í hug að FF megi bara vel við una að losna við þetta hy...Hræddur er ég um að sól þessara feðgina sé sest fyrir gott.Ég hafði alltaf litið á Sverrir sem einn orheppnasta og jafnvel einn af okkar orðheldnustu þingmönnum sem stóðu undir því sem töluðu.Nú lít ég á þennan mann sem útbrunnið gamalmenni sem á einhvern hátt reynir að bjarga sínu skinni.Vorkunarlegt gamalmenni sem er búinn að gera á sig en er að vona að enginn finni lyktina.Kominn út í horn og er að reyna að ljúga sig út úr því. Eftir"frumskógartrommunum"á dóttirinn að hafa gert sína síðustu tilraun til að halda í auð og völd með að reyna að láta dæma manninn sem hún er varamaður fyrir í Borgarstjórn úr leik læknisfræðilega.Og það er ekki víst að langt verði að bíða að sannleikurinn í því máli komi upp á borðið.Auminga Ómar hvað býður hans.Ég segi ekki annað en það.Kært kvödd

.

 

 

 


Ferðasaga

 

Nú er leiðinda veður og lítið að gerast til að æsa sig upp yfir.Svo er maður búinn að fá svo mikið hól á bloggsíðunni að maður verður að passa að það láta það ekki stíga sér til höfuðs.Þessvegna er ágætt að láta hugann reika til baka.Því langar mig að tala ykkur með í smáferð.Smáferð segi ég en hún tekur ca 4 mánuði.Það má segja að ferðin byrji  um hádegi þ 9 júni árið 2000.þegar starfsmannastýra H.Folmer & co í Kaupmannahöfn hringir í mig og biður mig að fara sem stm á M/S"Danica Red"Skipið væri á leið frá Pireus(Grikklandi)til Rio de Janeiro (Brasilíu) Janúaráin,eins og ég las einhverstaðar að nafnið þýddi.En það mun stafa af því að portúgalskur landkönnuðu"Gaspar de Lemos."kom í janúar 1502 til þessa landsvæðis.

 

Skipið.þarna erum við á leið til Derince Tyrklandi með"stykkegods"til olíuiðnaðar frá Rotterdam 

En hvað um það."Danica Red"var sem sagt á leið þangað með 10,20.feta gáma með vopnum.Þið getið ímyndað ykkur peningana sem liggur í þessu alheims vopnabraski.Aðeins10 gáma alla þessa leið eða um 5600 sjm leið.Þunganum er ég búinn að gleyma.Átti ég að fara um borð í  skipið á ytrihöfninni í Gíbraltar.En þar átti skipið að hafa viðkomu til"bunkeringar"(enskusletta yfir olíutöku)og áhafnar skiftingar.En skifta átti um skipstj og stm.Eldsnemma þ 14 júni lagði ég af stað  með leigubíl frá Staffanstorp þar sem ég bjó til Malmö þar sem ég tók lestina ti Kastrupflugvallar.Á flugvellinum hitti ég minn tilvonandi skipstjóra.Minn góða vin Gunnar Foged sem ég hafði siglt með áður á sama skipi.Með honum var kona hans sem ætlaði að vera með okkur um tíma.Gunnar er einn af þessum gömlu"coasterskipperum"sem kalla ekki allt ömmu sína og hafði marga fjöruna sopið.Siglt töluvert mikið til Íslands og var mikill Íslandsvinur.Hafði verið skipper og meðeigandi hjá"Juhl & Ehrhorn".útgerðinni í Esbjerg.Var um tíma t.d.með"Elisabeth Clipper"sem Samskip hafði um tíma á"timecharter"Gunnar,þetta mikla góðmenni hafði lent í því nokkrum árum áður sem skipper á einu af Clipperskipunu m að fá um borð laumufarþega.

 Undirritaður við kafibarinn.Myndin tekin í brúnni á D.Red.Eftir brælu í allt annari ferð.Barinn hálfsubbulegur eftir bræluna 

Stýrimaðurinn heljar beljaki sem allir voru hræddir við(og Gunnar líka enda alger andstæða að burðum og skapferli) tók sig til eina nóttina þegar Gunnar svaf og fleygði laumufarþeganum fyrir borð og þar þurfti ekki að spyrja að leikslokum.Út af þessu spunnust nátúrlega málarekstur og í fyrstu umferð var stýrsi dæmdur í 3ja mánaða  fangelsi.Þá varð allt vitlaust í Danmörk yfir dómnum sem gefur að skilja.Taka átti svo málið upp aftur,en þá fann stýrimaðurinn sér góðan spotta og sterkan krók já og svo fór sem fór.

 Um borð í D.Red í ferðinni 

Gunnar misti réttindin og hlaut einhverja sekt.Svona er nú sjólögin hörð hvað ábyrgð skipstjóran varðar.Þó svo að það sé alltaf verið að"mjatla"valdið yfir á skrifstofurnar sem fyrirskipa hitt og þetta en bera svo enga ábyrgð ef ílla fer.Ég lenti í að vera stm á því skipi sem hann kom fyrst á eftir þetta allt saman en það var einmitt D.Red.En hann gat ekki hugsað sér að halda áfram hjá sinni fv útgerð svo hann seldi sitt í henni og kom yfir til H.Folmer.En þetta var nú útúrdúr.Við flugum svo með þotu Svissair til Zürich.Skiftum þar um vél og flugum svo með lítilli vél til Malaga.Þegar þangað kom í ljós að það vantaði allan farangur frúarinnar.Og fannst hann hvergi.Daginn eftir fékk hún aðra töskuna,litla tösku skifti eiginlega engu máli skifti.Efti einhverjar tafir á flugvellinum vegna þess arna fórum við svo í leigubíl til Gíbraltar.ferð sem tók að mig minnir um 2 eða 3 tíma.

   Europa Point ogYtri höfnin í Gíbraltar

 

Skipið hafði tafist og kom ekki fyrr en aðfaranótt 16 júni svo frúin fékk tíma til að kaupa sér föt.Nú svo var farið frá Gíbraltar um hádegi 16.júni.Hin taskan fannst svo en flufélagið neitaði að senda hana til S-Ameríku svo að hana sá frúin ekki fyrr en löngu seinna eða eftir að hún kom heim.Ferðin gekk sæmilega vel.En um 4200 mílur eru milli Gíbraltar og Río.27 juní fórum við yfir Miðbaug á 26°W.Þar kom Neptúnus konungur í heimsókn og við þessir óskírðu aumingar fengum skírn með viðeigandi hætti.Ég hafði fengið heimsókn sendimanns kóngsa um nóttina.Hann hafði með miklu þjósti spurt mig hvern fjand.. ég,sem meira segja væri ættaður norðan undan heimskautsbaug væri að"lufsast"á þessum slóðum og það óskírður.Ég skildi sko fá fyrir ferðina deginum eftir.Svo vildi til að 2 af 6 persónum um borð höfðu fengið skírn áður.Skipperinn og kokkurinn.

    Til vinstri sjálfur Neptúnus(sá sem kom um borð til okkar var nú líkari skipper Gunnari og meira klæddur)Th stytta af guðinum í Berlín.Myndir af netinu.

Eitthvað fannst mér nú þessi mjög svo ókurteisi sendimaður minna mig á kokkinn.Svo var það um kl14 þann 27 að fasmikill"Neptúnus"ruddist inn í brúnna stoppaði skipið og skipaði mér að "drulla" mér út á brúarvæng og bíða þar örlaga minna,meðan hann færi yfir pappíra mína.Hvort mér væri yfir höfuð heimilt að sigla þarna.Hann hefði frétt að ég hefði jafnvel"krossað"Heimskautsbaug án hans leyfis óskírður með öllu.Ég reyndi að malda í móinn og sagðist vera með heimild og vottorð frá hreppstjóranum í Grímsey um þá "krossningu"en hún væri bara heima.Hann sagðist ekkert kannast við þennan svokallaða hreppstjóra og því síður hefði hann leyfi frá sér til að gefa óskírðum apaköttum eins og mér þannig leyfi.Stuttu seinna kom hann með miklu handapati veifandi einhverjum pappírum sem við athugun var íslenska skipstjóraskírteini mitt.

  Skírnarvottorðið 

Hvurskonar"bananalýðveldis"skeinipappírar þetta séu og á hverskonar fjand... apakattamáli þeir séu.Ég reyndi að róa hann en hann ætlaði ekki að taka neinum sönsum.Skipaði hann nú aðstoðarmanninum sínum(þessum með"kokkseinkennin")að taka mig og halda mér meðan hann gæfi mér réttu meðulin til að hreinsa mig af þessum"norðurheimsrembingi"Eftir meðalatökuna  barði Neptúnus mig í hausinn(mjög nett)og helti yfir mig illa lyktandi háffgerði sósu.Síðan kvaðst hann skýra mig"Sværdfisken uden d"Sem sagt "sværfisken og geta þeir sem þekkja mig,vel skilið  þá nafngift.Nú svo var skipstjórafrúin tekin og ausið yfir hana skömmum og hún spurð"hvern fja.... hún væri að þvælast þarna hálfnakin óskírð og í algeru leyfisleysi inní heimi karlmennskunnar.Síðan fékk hún yfirhalningu frá guðinum og aðstoðar manni hans.Síðan kom svo röðin að hinum 2 undanvillingunum.

 Eftir skírnarathöfnina stungu menn sér í sjóinn 

Allir fengu skírn og vottorð upp á það að"cerimuníunni"lokinni Eftir þetta stungu flestir sér í sjóinn og svo var grillað og kvöldverður etinn út á dekki.Síðan var ferðinni haldið áfram eins og ekkert hefði ískorist.Til Río komum við svo að kvöldi 4 júlí kl 2330 að bryggju.Það tók ekki langan tíma að losa gámana 10 en um 100 manna herflokkur sá um hana.Því ver var skýjað svo að hin fræga stytta af Kristi"Christ the Redeemer"á Corcovado fjallinu sást illa.

                Hin fallega höfn í Ríó.Myndir af netinu

 En svona var skyggnið er við komum þangað

Við fórum svo frá Ríó kl 0330 þ 5 júlí.Skipið hafði verið"sluttet"með farm af hrájárni(pigiron) frá Vitoría(Brasilíu) til Mantranzas sem liggur við Rio Orinoco(Venezuela).Við komuna til Vitoria um hádegi þ 7 júlí eftir 280 mílna siglingu og lögðumst við akkeri á ytri höfninni.Meðan vil láum þar um nóttina dundu á manni köll á VHF ch 16 (neyðarbylga)og maður beðinn að koma á hinar og þessar rásir.Þetta voru hinir og aðrir næturklúbbar þar sem manni voru lofaðir,kannske ekki gulli og grænum skógum.En að losa sig við gull og fá kannske að rjála við einskonar rjóður.Jam svona er lífið á suðrænum sólskinsströndum.

  Þennan Gullmarkríl fengum við á leiðinni

Ekki komst maður upp með neitt rjál í þetta skifti því um kvöldið vorum við teknir að bryggju og strax byrjað að lesta þessi tæpu 1000 tonn sem við áttum að taka.Ég hef aldrei verið við auðveldari lestun.Þeir spurðu mig hvernig legu ég vildi hafa á skipinu.þ.e.a.s stafnhalla.Svo færðu þeir lestunargræjurnar fram og til baka uns lestun var lokið með réttri djúpristu.Lestunin tók um 3 tíma og svo var bara að kvittera pappíra og koma sér af stað.

 Á ytri höfninni í Vitoría 

Ég læt þetta nægja í bili en.Menn undra sig kannske á hve dag og tímasetningar eru nákvæmar en það stafar ekki af góðu minni(fjarri því)heldur hélt ég einskonar dagbók á almanaksspjöldum frá Hempels sem margir sjómenn kannast kannske við.

 Það var allskonar"varningur"sem við fluttum hjá H.Folmer.Hér erum við að lesta"smásnekkju"á dekkið á Danica White í Pireus til Osló.í lestinni"Bentónit"í bulk frá Milos(Grikklandi)til Karmö.

Því miður týndi ég 2 spjöldum og missti þannig úr 2 árum eiginlega.Því miður finn ég hvergi myndir af sjálfri"skírnarathöfninni)nema þessar 2 af sjóbaðinu.Og fleiri myndum hef ég týnt því miður.Einnig gerði ég teikningar af allflestum förmum sem ég var með að lesta og skrifaði hjá mér athugasemdir viðvíkandi þeim og skrifaði og teiknaði þetta í litlar"kompur"sem ég er því miður er búinn að týna nema einni og vill svo til að síðasta opnan í henni er frá farmi úr D Red rúmu ári áður.Ég læt þessar teikningar fylga með að gamni.En bókana óg myndana er sárt saknað.Þegar maður flytur eins oft og ég hef þurft að gera síðustu ár vill ýmisleg fara óvart í ruslið.Þá sem hafa haft nennu að lesa hingað kveð ég kært

                     Myndir úr"kompunni"sem er eftir Farmur í apríl 1999 Frá Swinoujscei(Póllandi)til Pasajes(Spáni)Þarna var hún töluvert"stíf"blessunin


Bloggfærslur 1. desember 2007

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 65
  • Frá upphafi: 537306

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband