Vangaveltur dagsins í dag

 

Mér finnst það með eindæmum hvernig Fréttastofa  Sjónvarps"allra landsmanna"gengur fram í að reyna að gera sem minnst úr Frjálslynda flokknum.Í fréttum í kvöld var ekki annað að skilja en stjórnarandstaðan samanstæði bara af 2 flokkum.Katrín Jakobssdóttir bjargaði þó í horn með að láta svo lítið að minna á,að Frálslyndi flokkurinn ætti menn á þingi.

 

Maður hlýtur að spyrja sig hverra erinda gengur Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir.Hún hefur hvað eftir annað sýnt hlutdrægni þegar Frjálslyndiflokkurinn á í hlut.En hana vantaði ekki á landsfund flokksins þegar kjörið var til varaformennsku í honum.Hún lét sig hafa það,þá að vera í dágóðan tíma á fundarstað.þó hún láti nú við setningu Alþingis eins og flokkurinn sé ekki til,Voru úrslitin þá kannske henni ekki að skapi?Tapaði kannske vinkona hennar í þeirri kosningu ?Spyr sá sem ekki veit.Það finnst fleirum en mér þessi fréttakona sýna Frjálslynda flokknum virkilega ókurteisi með sínum vinnubrögðum,á fréttastofu sem kennir sig oft við alla landsmenn.

 

En nóg um það svo eru það svörtu sauðirnir.Ég meina í orðsins fyllstu merkingu.Ég hef aldrei heyrt þetta með litinn og bragðið.á sviðunum.Er ég þó að hluta alin upp í þorpi þar þjónusta við bændur var mikil(Borgarnesi)Og var byrjaður að hræra í blóðinu 9 ára gamall í einu af 3 sláturhúsum staðarins.En þetta getur vel verið.En hitt er annað mál og það er með lúðuna og kolan.Mér hefur allatíð þótt þeir fiskar betri á hvítu hliðinni og ég fer ekki af af því.En maður á kannske ekki að ræða svona mál nú á tímum svo maður fái ekki á sig "rassistastimpil".

 

Svo er það stakkals ráðherra dómsmála.Hvaða ósvinna er eiginlega í gangi með hann blessaðan kallinn.Þetta hljóta að vera brögð í tafli.Hvaða heilvita íslending dettur í hug að svara svona í könnunum.Ég var svo dolfallin yfir þessum"brögðum"að ég var hérumbil búinn að missa af boðskap ráðherra fjármála.Þar verða sko ekki nein brögð í tafli.Og skulu nú menn fá að vita það strax,hvoru megin sem þeim finnst sviðin og fiskurinn betri,að það skuli  sko ekki leyfður neinn "Byrgis-Grímseyjarferjuaustur"á peningum,Sauðsvörtum eða sauðhvítum verkalýðnum skal  ekki lýðast neitt röfl.Þeir skulu sko halda áfram á súpa sinn svipaðan sk.. úr skel hvernig sem hún  er litinn.Ekki gram af 30 milljarða hagnaði af  rekstri ríkisins skal sko ekki í þeirra vasa.

 

Það skal sko horft til Lundúna eða þangað sem máttarstólparnir halda sig.Þeir geta étið sínar kartöflur á Eskifirði og grænu baunir á Bíldudal.Og Vestmanneyingar sín söl.Og afgangurinn já,engan dónaskap.Þetta skal þessi misliti almenni verkamaður hafa á hreinu.Ekkert bruðl frekar en verið hefur á fjármálum ríkisins.Og hundskist svo til að éta sviðin,hvort eru svört eða hvít.Kært kvödd


Bloggfærslur 1. október 2007

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband