Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

"Nei svona pjat verður"

Nei svona pjat verður að bíða.Þetta andsk..... sníkjulið verður að bíða. Það liggur meira á að koma kaupaukunum til duglegra fjármálamanna í gagnið. Braskararnir verða að ganga fyrir. Verið ávallt kært kvödd
mbl.is Dráttur gæti orðið á lækkun gjaldanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Skelfing væri gott "

Skelfing væri gott að fá plástur sem drægi úr umtöluðu hjá sumum svokölluðum "stjórnmálamönnum" Sérstaklega einum forustumanni  stjórnarandstöðunnar sem aldrei þreytist á að vera á móti öllum sköpuðum hlut sem fram er borið af nv stjórnvöldum Sem hafði fjögur ár til að laga hlutina en datt þá ekkert í hug til þess að gera það. En ekki dygði venjulegur plástur á þverrifuna á ´onum Verið ávallt kært kvödd
mbl.is Plástur sem eykur sjálfstraustið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Í hinni virkilegu kreppu 1929"

Í hinni virkilegu kreppu 1929-1939 slitu margir núlifandi íslendingar sér út til að  koma þessu þjóðfélagi í þann sess sem það hangir í í dag. En þetta fólk fær trekk í trekk kaldar vatnsgusur frá samfélaginu og fjármálaveldinu. Unga fólkið sem ræður í mörgum bæjarfélögum og flestöllum fjármálafyrirtækjum  hafa engan áhuga á þessum gamlingum. Þeir síðarnefndu sennilega meira upptekið at að fá kaupauka en af því að þessum árgöngum fólks líði vel í ellinni Verið ávallt kært kvödd
mbl.is Þurfa að reiða fram milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Hull yrðu bikarmeistarar."

Gaman væri ef Hull yrðu bikarmeistarar. Þetta er í fyrsta skifti sem ég tek afstöðu með ensku knattspyrnuliði. Maður á góðar (þó misgóðar að vísu) minningar frá Hull. Verið ávallt kært kvödd
mbl.is Hull í úrslitin í fyrsta sinn í sögu félagsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"hvernig þessi mál eru komin"

Það er með hreinum ólíkindum hvernig þessi mál eru komin í þann hnút sem þau eru í  Í guðanabænum alþingismenn hristið af ykkur doðan, hættið að jagast um hverjum þetta er að kenna og gerið eitthvað af viti í málinu Hættið öllu þessu andsk..... svara og andsvara fíflagangi og farið að vinna vinnuna ykkar. Þið voruð ekki kosinn í einhverjar skotgrafir. Öllum til ama og leiðinda.

 

Þið voruð kosin til þess að reyna að bæta líf hins almenna borgara þessa lands en þið virðist því miður engan áhuga hafa á því. Og í guðanabænum hættið þessari fja..... uppgerðar kurteisi "háttvirtur"og "hæstvirtur" Því það eru um níutíu % af þjóðinni búin að missa alla virðingu fyrir ykkur. Það er bara ennþá meiri sýnarmennska svona titlatog innandyra hjá ykkur. Þeir sem eiga það skilið séu kært kvaddir


mbl.is „Næsti lausi tími er 8. maí“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Hann ætti að drulla sér heim"

Hann ætti að drulla sér heim og fara að gera eitthvað jákvætt  í útrýmingu fátæktar. Já það er munur að vera maður og míga standandi Og ráðherra á ráðstefnum erlendis,berja sér þar á brjóst og fara mikin um um þetta mál. En koma svo heim og halda þar áfram að gera ekkert í málinu Verið ávallt kært kvödd
mbl.is Markmiðið er útrýming fátæktar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Það mætti senda "

Það mætti senda þetta lið í eilífðarfrí. Hvað liggur svosem eftir það þetta árið. Ekkert Verið ávallt kært kvödd
mbl.is Páskafrí Alþingis til 28. apríl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Þetta er nú að verða "

Þetta er nú að verða einhvert Lilju Móses-dæmi. Rýkur upp í skoðanakönnunum en verður svo ekki að neinu. Ekki það mér fannst verst að flokkur Lilju skyldi deyja út. Hún þorði þó Verið ávallt kært kvödd

                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                               


mbl.is Nýr flokkur nyti 20% stuðnings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Það væri gaman að fá að vita fyrir hvað"

Það væri gaman að fá að vita fyrir hvað í hverju þessi svokallaði "kaupauki" felst Verða þeir kannske verðlaunaðir sem ná mestum árangri í að hafa það af fólki sem það jafnvel ætti kröfu á með ýmisskona útursnúningum á lögum. Ég þekkti sænskan mann sem vann við þarlent tryggingarfyrirtæki. Þessi maður var góðmenni og hreinlega þoldi ekki hvernig fyrir hann var lagt að reyna að ganga eins ein langt og hægt var að "snuða" fólkið um bætur. Hann gafst upp og snéri sér aðöðrum störfum. Verið ávallt kært kvödd
mbl.is Sjóvá hyggst taka upp kaupaukakerfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"To be, or not to be, that is the question""

Eins og: To be, or not to be, that is the question" var fyrir Hamlet hér í den Gæti "'You Ain't Seen Nothing Yet',“ verið spurningin fyrir Bjarna Ben í dag. Moggamenn hafa verið hljóðir um þær sögur sem ganga um stofnum nýs hægri flokks.

 

Kíkjum á Vísir í dag þar sem skrifað er m.a,"Benedikt Jóhannesson ritstjóri Vísbendingar gaf orðrómi um stofnun nýs stjórnmálaafls byr undir báða vængi í ræðu sinni á samstöðufundinum á Austurvelli í dag" og Benedikt sagði í ræðu sinni: "Það er því óheppilegt að borið hefur á því að við séum sjálfir að búa okkur til skilyrði og mála skrattann á vegginn og þar með veikja okkar eigin samningsstöðu er við mætum með sjálfsskapaða annmarka til viðræðna við Evrópusambandið. Við megum síst af öllu ganga að þessu viðfangsefni með þrá um forna innilokun og einokun alteknir af ótta og kjarkleysi. Við verðum að sýna reisn og styrk og forðast einangurnarþörf og minnimáttarkennd.

 

Til slíkra viðræðna hljótum við að ganga sannfærðir um það að reyna að ná fram hinu besta, en jafnframt tilbúnir til að hverfa frá leiðinni, ef niðurstaðan er ekki þolaleg.Höfum þessi orð Davíðs Oddssonar í huga þegar við höldum heim. Flykkjum okkur undir merki gamla foringjans. Þau gætu orðið einkunnarorð nýrrar stjórnmálahreyfingar." Tilvitnun lýkur, Verið ávallt kært kvödd


mbl.is Bjarni Ben: „Skattar munu lækka frekar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband