Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

"tröllamjöli dreift"

Þatta minnir mann á kartöflurækt sem maður var neyddir í sem barn. Þá var Tröllamjöli dreift í götunrnar þangað sem mest af arfanun sóttu og hann drepinn þannig.

En svo þurfti að handplokka þetta andsko.... illgresi úr beðunum. Mér finnst eins og við séum búin að  hreinsa göturnar hvað þetta fólk varðar. En ennþá er illgresi inni á beðunum sem hreinsa þarf út.

En leiðin er nýhreinsuð og greið og menn ættu að skammast sín og axla sína ábyrgð. Áður en það verður um seinan Annars hlökklast þeir út með sköm að lokum. Kært kvaddir sem eiga það skilið


mbl.is Steinunn Valdís segir af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"skuggahliðin"

Þarna er skuggahliðin á "Strandveiðakerfinu" Vitaskuld geta öll skip fengið á sig brotsjó en ég held að í þessu f.g "kerfi" sé hver fleyta sem flýtur nokkurnvegin hjálparlaust komin á koppinn.

 

Aðaláhyggju efnið hlýtur því að vera fjársveltið sem LHGÍ er sett í. Ég segi fjársvelti því nógir peningar virðast vera til í ýmiss gæluverkefni ráðherrana.

Að þurfa að leigja frá sér öryggistækin eins og gert er er alveg glórulaust. Kært kvaddir sem það eiga skilið


mbl.is Bátur fékk á sig brotsjó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"ef sjóliðinn hefði"

Hvaða dóm hefði maðurinn fengið ef sjóliðinn hefði verið franskur. Því ég held að "danskur sjóliði" sé ekki hátt skrifaður hjá "heldra fólki" þessa lands. Kært kvaddir sem það eiga skilið
mbl.is Sló sjóliða í höfuðið með glasi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"dagur að kveldi komin"

Nú er ég hræddur um að "dagur" sé að kveldi kominn hjá Samfó í Reykjavík, Nú sýna þeir sitt rétta andlit Og þetta er meira vatn á myllu Jóns Gnarr Þetta er með helberum endemum. Kært kvaddir sem það eiga skilð
mbl.is Skoða ekki styrki Steinunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"enn eitt dæmið"

Hver stjórnar þessu. 1 varðskip og hvað  3 þyrlur. Hvar enda þessi ósköp. Ja nú verður kátt í höllinni hjá nágrönnum okkar að "skreppa" innfyrir með allt slökkt.

 

Enn eitt dæmið um vanhæfni þessarar"tæru vinstri stjórnar" Hvað eru mennirnir/konurnar að hugsa. Vonandi verður þessi stjórnmálamannalýður "rassskeltur" rækilega í kosningunum á sunnudag.

 

 

Þótt þetta lið sem þarf að losna við hverfi ekki við þær þá fær það vonandi bara þá áminnningu sem ýtir við því. En ég held bara að það sé svo tornæmt og sannfært um eigið ágæti að það þýði ekki að sýna því gula spjaldið,

 

Það verði rauða spjaldið í næstu þingkosningum sem blívur. Þá þarf líka skellurinn að vera af þeirri stærðargráðu að þetta hyski hypji sig allt heim og láti aldrei sjá sig á pólitísku sviði aftur. En þá komum við því miður að gullfiskaminni Íslendinga. Kært kvaddir sem það eiga skilið.


mbl.is SIF mun svífa yfir Grikklandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"hvína í þeim"

"þá má auðvitað hvína í þeim á sínum fundum,“ Þetta segir 1sta fiðlan í stjónarhljómsveitinni. Takið eftir þessu verkamenn og sjómenn.

 

Hann er að tala um ykkar forustufólk. Þó svo að sú forusta sé hlandónýt að einum eða 2 mönnum undanskildum þá er þetta sú forusta sem blívur í dag.

Hvenær í ósköpunum hefði forustumaður í vinstri flokki tekið svona til orða um verkalýðsleiðtoga hvursu lélegir þeir hafa verið. Kært kvaddir sem það eiga skilið


mbl.is Gefa veiðileyfi á stjórnvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"ekki á óvart"

Þetta kemur ekki á óvart, hjá þessari tæru vinstri stjórn."Hún segir verkefnið ærið og að verkefnið sé að verja velferðarkerfið fyrir þessum niðurskurði"

 

 Þetta er haft eftir nv forsætisráðherra. Menn spyrja hvaða velferðarkerfið er hún að tala um . Margir sem aðgerðir þessarar tæru vinstri stjórnar hafa bitnað sem verst á,verða ekki varir við neitt "velferðarkerfi" Kært kvaddir þeir sem það eiga skilið.


mbl.is Skattar munu hækka eitthvað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"hvar eru þessir menn"???

Maður hlýtur að spyrja sig hvar eru þessir menn núna. Er búið að ganga svo frá málum að hægt sé að ná í þá ef þörf krefur. Er það regla að "grunaðir" fjárglæframenn fái að valsa um heimin og fela slóð sína.

Eða hvað heldur fólk að þessir kónar séu gera nú um stundir. Með hjálp dýrustu lögmanna í heimi. Rífa svo kja.. og segja íslenskri réttvísi að éta skít. 

Eftir stendur þjóð á barmi gjaldþrots og spyr sig af hverju eru þessir menn ekki kallaðir heim og settir í farbann. Kært kvaddir sem það eiga skilið


mbl.is RÚV: Þriggja milljarða leitað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"tek hattinn ofan"

Ég tek hattinn ofan fyrir Lilju Móses. Hún á mikið hrós fyrir framistöðu sína í húsinu við völlinn. Og á sennilega stæðsta þáttinn í að 10% þjóðarinnar treysti en því liði sem þar er. Kært kvaddir sem það eiga skilið
mbl.is Segir sig úr ríkisfjármálahópi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"síast inn"

Fer það ekki að síast inn í hausinn á fólki að við erum. allavega stundum komnir í samband við ummheiminn Hverjum kemur þetta á óvart. Kært kvaddir sem það eiga skilið


mbl.is Hópslagsmál í Hafnarstræti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband