Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Nú er lag á læk

Nú situr maður dolfallinn. Og eigilega í hálfgerðum trans. Raggi Bjarna nýbúinn að kippa manni rúm 50 ár til baka. Syngandi um forðum daga í Hamborg. Og marga vinsæla Þórskaffislagara. Forðum í Hamborg!!!  Þar sá maður nú ýmislegt sem ekki er prenthæft. Einusinni sá ég konu reykja með ónefndum hluta líkamana 2007410172849603 Þó ekki þessum

En í minningunni litu þær þannig út stúlkurnar í Hamborg product enlarged Finnst ykkur nokkur furða þótt maður gráti gamla tíma í Hamborg já og víðar. 2007117232638500 Hólar og hæðir.

Ég man einnig að togaramenn nefndu ýmsa hóla og hæðir á togslóðunum eftir sumum líkamshlutum ónefndra vinkvenna í ónefndum hafnarborgum Töluðu jafnvel um að að  vera undir brjóstunum á einni ónefndri og toga "nið´r eftir" Eða þegar maður lá á  Cleethorpe beach þá litu þær allar svona útBabes from Blackpool (Virkilega en þessar eru að vísu frá Blackpool) En svo þegar maður vaknaði leit þetta allt öðruvísi út Þetta vildi nú brenna við í Hamborg og víðar líka  En það var ekki þeim að kenna. Viss vökvi sem maður sótti mikið í (oftar en ekki of mikið) villti manni sýn Þetta voru manneskjur sem einhverra hluta vegna urðu á vegi manns. Ég er ekki að gera lítið úr neinum. Og allsekki konum. Þær met ég upp til hópa mikils. Það vita þeir sem mig þekkja 

Að  kveldi         beyonce heat imagesCADIRNUD Að morgni

Þetta er heldur ekkert grobb um kvenhylli. Ef einhver hefði verið hvarf hún fljótlega eftir að glösunum fjölgaði. Þessvegan litu þær svona út að morgni. Sjarmurinn leyfði kannske ekki meiri fegurð. En þetta voru ágætis stelpur með örfáum undantekningum.En svona var þetta bara 4223680728 b7374bfb52 The Cleethorpe beach Konur höfðu og hafa sennilega enn  alveg magnað vald yfir okkur karlpeningnum asc Hún veit sínu viti sú stutta

 2008222144038910 Og þessi er of ungur til að vita hverju hann er að fúlsa við 

Ég skrifaði um daginn um reynslu góðs vinar míns af ristil speglun og af því ég er viss um að enginn læknir lesi þetta skrifelsi þá held ég því fram að einhvern veginn svona fari þetta fram

imagesCAU8S98A Þetta er ekki læknirinn hans

imagesCAD1FD4H Án þess að vita það held ég að totan þarna efst til vinstri sé botlanginn. Ég hafði tvo. Báðir sprungu þeir en með 14 ára millibili. Sá síðari var tekin með skurði á miðjum belgnum. Þar sem tilvist hinnar seinni totu var ekki sönnuð fyrr en belgurinn hafði verið opnaður,imagesCALTYCGHVenjulegur botangaskurður

Skurðlæknirin sem þetta gerði sagði mér að um 2 % af mannkyninu frekar en íslendingum gengu með tvær totur. Þegar ég fór í hina tveggja árlegu læknisskoðun í Danmörk vegna atvinnuréttinda minna lenti ég stundum í strögli þegar ég sagðist aldrei hafa verið "operaður" út af magasári,abdominal exploration aftercare pictureMinn seinni  

Nú hvernig stendur á þessu öri á maganum á þér spurðu þeir þá. Botlangaskurður svaraði ég. " Hvordan i hule helve..  skærer de op til blindtarmenIsland" fékk ég þá stundum að heyra. Síðar fékk ég óþverra í ónefndan kirtil og ég man að mér leið einhvernvegin eins og ég hefði lent í þessu eftir að 8 prufur höfðu verið teknar ódeyft imagesCAWTCTEP Lent í þessu

 joke2 Þessi mynd er að vísu ekki frá þeim uppskurði

Nú fjandans kirtillinn var tekinn.Svo nú situr maður hér án mikilvægra tóla og syrgir gamla daga (allavega í kvöld. Á morgun annar dagur og góða skapið tekið við) í Hamborg Og þrátt fyrir allt þakka ég Ragga Bjarna fyrir að vekja upp þessar minningar "forðum í Hambog" og allt það  Raggi er engum líkur það hefur hann margsannað CleethorpeSunrise3 Sólin að hníga til viðar hjá manni og fer sennilega að setjast bráðlega

Ég vona að engin móðgist yfir þessu rugli hjá gömlum hálf elliærum stjórntækjalausum fv gæja(að eigin mati þá) sem Raggi Bjarna framkallaði vökva um augu hjá í kvöld Og lítur til baka með óvenjulegum gleraugum Verið öll ávallt kært kvödd og megi góður guð gefa okkur öllum eins gæfurík komandi ár og hver og einn verðskuldar

Happy%20New%20Year Lífsins terta komin að lokum


Gleðilegt ár

Þó þessi upptaka sé tveggja ára gömul finnst mér hún alveg eins eiga við í dag Ég óska öllum lesendum (þessum 20-30) síðunnar, vinum og vandamönnum hvar sem er  Gleðilegs árs og friðar. Og ég þakka allt gamallt og gott Megi góður guð gefa okkur öllur öllum gæfuríkt komandi  ár

http://fragtskip.123.is/flashvideo/viewvideo/24880/

Ég veit ekki afhverju ég get ekki hlaðið inn myndbandi hér en það tekst ágætlega á 123 síðunni minni og þessvegna kemur þetta svona. Ég vona að þið fyrirgefið að og takið vilja fyrir verkið Verið ávallt kært kvödd


"úr seinni frétt "

þetta er úr seinni frétt en sem sem bloggið er tengt við: "Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni barst  beiðni um þyrlu í gegnum Neyðarlínuna klukkan   20:27 í kvöld. TF-LÍF var þá að koma inn til lendingar úr öðru verkefni og fór þyrlan í loftið á ný klukkan 20:50 og lenti á veginum rétt við slysstað kl. 21:21. Rúmum tíu mínútum síðar lagði þyrlan af stað til Reykjavíkur og lenti við Landspítalann í Fossvogi kl. 22:02. Maðurinn sem slasaðist var í fólksbíl sem var á leiðinni suður og lenti í árekstri við flutningabíl sem var á leiðinni norður, að sögn lögreglunnar í Borgarnesi."

 

Nauðsyn á vel efldri og þjálfaðri þyrlusveit LHGÍ  þarf að fara að síjast inn í hausinn á þessu hlandónýta liði í hinni Tæru. Liði sem heldur vill halda út rándýrum sendiráðum sem við innan við 10 % þjóðarinnar hefur eitthvað gagn af í skiftum fyrir tæki sem sótt geta slasað og mikið veikt fólk af landsbyggiðinni. Minar óskir á nýári verða að einhver af þessum ónefndum fábjánum hálsbrjóti sig einhverstaða út í óbyggðum, En sú þyrla sem þá væri í flughæfu ástandi væri í útkalli annars staðar. Skildi það ekki kveikja á einhverjum perum Verið ávallt kært kvödd


mbl.is Bílvelta á Holtavörðuheiði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glepileg jól

Ég óska öllum velunnurum síðunnar gleðilegra jóla











http://fragtskip.123.is/flashvideo/viewvideo/24787/

"með flugeldum"

Það var full ástæða til að fagna þessu glæsiega skipi með flugeldum. Þetta skip er afrakstur mikils dugnaðar og hæfileika föðurs og sonar Til hamingu Þórunnar menn. Vinur minn Tryggvi Sigurðsson vélstjóri og módelsmiður hér í Eyjum tók myndir af hinu glæsilega skipi og setti á heimasíðu sína. Þar má einnig sjá bátinn sem æfintýrið byrjaði á

http://batarogskip.123.is/

 

Kært kvödd


mbl.is Þórunni fagnað með flugeldum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Það er gleðiefni"

Það er gleðiefni að til séu fyrirtæki sem virða vinnu starfsfólks og sýna það í verki. Ég held að þessi viðurkenning sem þetta starfsfólk fékk í þessu tilfelli hafi í verunni verið rausnarlegri en þessir peningar. Eittvað matarkynns hafi líka fylgt. Það er frábært þegar vel gengur og að verkafólkið látið sjá að verk þeirra séu virt. Til hamingu með þetta Vinnslustöðvarfólk, Verið kært kvödd
mbl.is Vinnslustöðin greiðir starfsmönnum bónus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"í götu ríkisstjórnarinnar"

Er ekki svindl Íslenskra Aðalverktaka steinar í götu ríkisstjórnarinnar, Hvernig getur svona svikamylla framgengið. Þetta styrkir mann í þeim grun hverjir virkilega standi að baki hinum"erlendu" kröfuhafa í bankana. Þessir andsk..... menn eru allir að ná vopnum sínum aftur, Og mergsjúga íslenska aðþýðu. Og sú "Tæra" stendur bara "kjaftstopp"álengdar.

 

Einhverntíma hefði kjaftu.... á Steingrími  J ekki stoppað af stóryrðum yfir svona vendingum. Og hittir ekki andsk..... ömmu sína, fyrir Jóhönnu hvað varðar Lilju Móses. Klauf hún( Jóhanna)  ekki Alþýðuflokkinn og hefur hún ekki rekist ílla í stjórnum fyrir hve vinstrisinnuð hún var  þar til nú. Ja lúft er að láta sér dreyma og gleyma. Verið kært kvödd


mbl.is „Mikil ábyrgð að velta steinum í götuna“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"opið geðið á fólki."

Þeir taka harðara á því skotarnir ef svokallaðir þingmenn ljúga upp í opið geðið á fólki. Hvenær skildi á því tekið hér á landi án silkihanskanna. Kært kvödd
mbl.is Fyrrverandi þingmaður dæmdur fyrir meinsæri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Til hamingu"

Til hamingu Goðafossmenn. Þið eruð virkilega vel að þessari heiðrun komnir. Ég hugsa að fáir sem ekki í voru geti virkilega ímyndað sér hvað mikið afrek þessir menn unnu,þ. 30 okt.síðastliðinn. Verið ávallt kært kvödd
mbl.is Áhöfnin á Goðafossi heiðruð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"og græðgina "

Enn eitt dæmið um vildarvinavæðinguna og græðgina sem henni fylgir. Verið öll ávallt kært kvödd


mbl.is Unnið að farsælli lausn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband