Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Fangelsi ???

Ég set stórt ?-merki við þennan dóm. Ekki það að ég hafi neina samúð með þessum manni.En á hann heima í fangelsi. 5 ára dómur
Hann situr hvað 2 1/2 ár í fangelsi Svo er honum sleppt aftur út í lífið. Hvað þá???. Fyrir mér er þessi maður virkilega andlega bilaður og ætti þessvegna eiga heima á geðveikrahæli fyrir lífstíð. Kært kvödd

mbl.is 5 ára fangelsi fyrir brot gegn dóttur sinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver trúir ???

Hvaða íslendingur með greind yfir 10 ára barn trúir svona andsk..... málflutningi. Hvenær ætla menn sem sem eru hreinlega í vinnu hjá okkur þessum sauðsvörtu, sem þeir elska að hata að koma fram og viðurkenna sannleikann

 

Kanske ekki í 1stu atrennu en allavega í 2nnari eða 3ju. Hverskonar helberir hálvitar stjórna þá þessari rannsókn ef satt reynist Dettur einhverjum í hug að "sérstakur saksóknari" sé að "þefa"af þessu ef engin er af því skítalyktin.

 

Hvers vegna í ósköpunum dettur engum íslenskum ráðamanni sem sætir einhverslags rannsókn  í hug að segja af sér meðan mál hans  eru rannsökuð.

 

Koma svo aftur í starf með fullri sæmd ef ekkert var athugavert. Þetta hátterni þessara manna ber ekki yfirbragð menntaðra manna. Heldur erkibófa sem alltaf þræta meðan volgt er í þeim hland.. Það verður að fara að hreinsa út.

Við Austurvöll við Lækjartorg  við ja allstaðar sem stjórnsýslan er til húsa. Skifta liðinu út frá toppi til táar.Enn og aftur er vildarvinavæðingin á fullu og fámennið að baga okkur. Kært kvödd


mbl.is Fjármálaeftirlitið taldi skýringar fullnægjandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"gleðst"

Þegar svona fréttir sjást gleðst maður Sjáanleg gæsla gleður sjómannshjartað. Kært kvödd
mbl.is Ægir á leið til Grænlands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"spegill spegill"

Þetta með speglana er nú bara andsk..... kjaftæði, Minn spegill er örugglega eitthvað vitlaus. Allavega trúi ég ekki því sem ég sé í honum. Kært kvödd
mbl.is Svín þekkja sig í spegli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

50 fathoms

Það ætti að senda okkar niður á 50 faðmana og hífa þá ekki upp fyrr en eitthvað kæmi að viti frá þeim. Kært kvödd


mbl.is Ríkisstjórnarfundur neðansjávar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hringavitleysa

Hverskonar hringavitleysa er þetta eiginleg ?.En þetta ætti að koma í veg fyrir  að vitlausir póstar lendi hjá vitlausum þingmönnum eða þannig. Kært kvödd


mbl.is Leiðbeiningar gegn leka láku á netið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"one way ticket" og tré

Ég sem hélt að við gætum losnað við þessa 63 við Austurvöll  En svo bregðast krosstré sem önnur tré."Krosstré er tré sem notað er til að búa til krossa.

Orðið er gamalt í málinu og í Postulasögum og Heilagra manna sögum er til dæmis talað um að „hengja e-n á krosstré“, það er krossfesta hann. Í yngra máli virðist orðið einnig notað um smíði sem myndar kross, til dæmis krosstré í glugga. Kært kvödd


mbl.is Trúður í geimnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"á beinunum"

Hverskonar dauðans kjaftæði er þetta. Ég hefði nú haldið að karlmenn vildu hafa smá kjöt á beinunum, það var allavega þannig þegar ég var ungur. 

Alveg eins og afi min vildi hafa hrossaketið En þessu er nú ekki saman að jafna og alls ekki sambærilegt. Ef þetta er rétt þá fer heimurinn versnandi, Ég ber mikla virðingu fyrir „alvöru konum“ Um leið og ég kveð þær allar kært


mbl.is Enginn vill sjá þrýstnar konur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"velvilji og fl"

Velvilji, skilningur, góðvild. Ekkert af þessu er hægt að nota ofan á brauð eða út á hafragrautinn. Og ég spyr hver borgar þessar ferðir ??? Kært kvödd
mbl.is Mikill velvilji í garð Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mogginn góður

Það kom fyrir á togurunum í gamla daga að birgðir af salernispappír þrutu. Þá kom Mogginn í góðar þarfir. Hann þótti betri í þessu sambandi heldur en t.d Þjóðviljinn. Kært kvödd
mbl.is Nemendur leggi skólanum til salernispappír
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.9.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 537758

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband