"Vildarvina dómskerfið"

Skelfing er nú gott að vita hve skilvirt dómskerfið er hér á landi Vonandi verður sama formúla notuð, nei annars hún verður aldrei notuð á stórþjófana sem skildu hér eftir sig sviðna jörð  Vildarvina dómskerfið mun sjá fyrir því  Kært kvödd


mbl.is Í fangelsi fyrir búðahnupl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Logaði stafnanna á milli"

Þetta sýnir okkur betur en nokkuð annað hættuna sem sjómönum stafar af eldi um borð í skipum. Með stærri og öruggari skipum er eldurinn jafnvel orðinn hættulegri óvinur sjómannsins en hafið. Sem allir keppast nu til að hylla á degi "Sjómannsins" Gaskútar gerfiefni og margt fleira er hægt að telja til. Að vísu gerðist þetta í höfn til allrar lukku.

 

 

Þetta minnir mig á sögu sem gekk hér í "den" Friðrik Ólafsson skólastjóri Stýrimannaskólans þótti stundum harður í horn að taka hvað lærdóminn varðaði, En hann kenndi (sem venja var hjá skólastjórum f g skóla) siglingarreglur og var betra að gata ekki í tímum hjá honum. 

 

Svo varð það einusinni í tíma hjá Friðrik að hann tekur upp einn nemenda og spyr hann um kaflann í  24 reglunni um skip sem dregur annað skip. Þ.e.a.s hvaða  ljós slíkt skip á að hafa. Nemandinn sem seinna varð fengsæll fiskiskipstjóri og farsæll útgerðarmaður klóraði sér aðeins í hausnum og svaraði:" ja ég er nú ekki aveg viss um það."

 

Friðrik spurði þá strangur á svip:"hvað er þetta lest þú eki reglurna heima drengur." Jú jú svaraði hinn" en síðast þegar ég sá skip draga annað skip þá hafði dráttarskipið togljósið en sá sem dreginn var logaði nú bara stafnanna á milli"  En þá meinti hann þegar b/v Neptúnus RE. var að draga b/v Gylfa BA brennandi til hafnar í mai 1951. Menn sögðu að Friðrik hefði snúið sér undan til að halda andliinu. 001Ef myndin er stækkuð sérst hvernig brúin á Gylfanum hreinlega bráðnaði niðir. Kært kvödd


mbl.is Dæla sjó á eldinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"virðingu þorra landsmanna"

Seint og um síðir er það að  síast inn í höfuð á liðinu á þessu svokölluðu alþingi að almenningur er löngu búinn að missa allt álit á því.  Þetta segir ein konan úr liðinu:"Hverjum sem um er að kenna er ljóst að Alþingi hefur glatað trausti og virðingu þorra landsmanna."
Sem sagt hún viðurkennir að virðingin sé fokin út í veður og vind. Og hún heldur áfram: "Virðingu og traust er hægt að vinna til baka en það krefst þess að við tökum höndum saman."
Getur þetta lið ekki skilið að virðingin á samkundunni kemur aldrei nema að sumt fólk hverfi úr sölum þess. Svona fíflagangur og peningasóun eins og og einhver landsdómur yfir einum (þótt í forsæti hafi verið) ráðherra úr "hrunstjórninni" er bara sýndarmennska til að reyna að slá ryki í augu Þorri almennings vill í burt alla "hrunráðherra" Og ég hef alltaf lagt þá meiningu í "þorra" að það væri meirihluti af einhverju
Nokkrir af þessu liði hafði þó samvisku til að láta sig hverfa, en þeir óforskömmuðustu sitja sem fastast. Þegar þetta lið er farið væri hægt að fara að tala im einhverja virðingu. Kært kvödd

mbl.is Alþingi hefur glatað virðingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"ætum hatti "

Systir hans ætti að geta fengið uppskriftina fyrir ætum hatti hjá tengdamóðir sinni. Kom ekki eitthvað svipað fyrir hana? Þ.e.a.s tengdamóðirina.Kært kvödd


mbl.is Smyr sér hatt og étur hann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"leikfang "heldra" fólksins "

Þetta fokdýra leikfang "heldra" fólksins hefði átt að brenna til grunna.Jedú mía.Það var slæmt að danir,ástralar og svíar skyldu ekki byggja sín hávaðahús uppi á fjöllum (danir gátu það náttúrlega allsekki) Því þá hefði þetta hús sennilega verið byggt uppi á Skjaldbreið. Ljóti hermikrákuleikurinn Kært kvödd
mbl.is Slökkviliðið kallað í Hörpu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Alló alló Helgi Hjörvar"

Alló alló Helgi Hjörvar. Í fjögur ár hefur flokkur þinn sitið við völd. Síðstu tvö ár i forsæti Nv valdastjóri fv félagsmálaráðherra tvö ár þar á undan.

Og nú mætti halda af þessum ummælum þínum að þið í stjórnarflokkum ráði engu. "löngu tímabært" segir þú nú. Enhvern veginn síast þessi ummæli inn í minn heimska heila þannig að þetta hefði verið hægt en því ekki sinnt. 

 

Ykkur í þessari "tæru" sem viljið samsama ykkur við horfna verkalýðsleiðtoga verður allavega í hugum allra tekjulágra þjóðfélagshópa minnst sem alverstu "Íhaldsstjórn" sem landið hefur alið.

 

Ykkur verður  ekki minns sem stjórn sem bæri fg hópa fyrir brjósti.  Allavega rýrðuð þið "löngu tímabær" kjör eldri borgara svo dæmi sé tekið Kært kvödd


mbl.is Löngu tímabærar kjarabætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Kannske aldrei skilið neitt "

ASÍ virðist vera orðið ríki í ríkinu Eða hvað Maður er hættur að skilja. Kannske aldrei skilið neitt í sambandi við ASÍ

 

Ég gef Vilhjálmi Birgissyni orðið. :„Þessi bókun er stórmerkileg, vegna þess að aðildarfélög ASÍ eiga eftir að ganga frá fullt af sérkjarasamningum. Til dæmis á Hlíf í Hafnarfirði eftir að ganga frá samningi við Ísal í Straumsvík. Við eigum eftir að ganga frá samningi við Norðurál og Klafa. Það er fullt af svona samningum út og suður.

Þessi grein kveður á um það að menn skuldbindi sig til að ganga frá sömu launahækkunum og var gert á hinum almenna vinnumarkaði. Ég hef ætíð sagt það að fyrirtæki eins og álfyrirtækin eigi að koma með meiri launahækkanir heldur en fyrirtæki sem eiga undir höggi að sækja"

Tilvitnun lýkur. Mega þá álverin ekki borga meiri laun nú þegar vel gengur hjá þeim. Eru engin liðamót til eftir þénustu atvinnurekena Kært kvödd

 


mbl.is Samkomulag fljótlega eftir helgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"hvað Ögmundur er að sýsla."

Þetta sýnir betur en margt annað að við erum komin í samband við hinn stóra heim. Einhverjum hagsmunahópum er eitthvað illa við hvað Ögmundur er að sýsla.

Allir almennir borgarar sama í hvaða flokki fólk stendur fordæma svona árásir. Og það er auðvelt að vera hugrakkur í skjóli myrkurs og heigulinn einn gortar af því að vera aldrei hræddur. Ég vil bara óska Ögmundi velgengdar í baráttu við vissa hópa.

Kært kvödd


mbl.is Ráðist á heimili Ögmundar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Þegar ég var ungur "

Þegar ég var ungur las ég einhvertíma að kynlíf matur og atvinna í þessari röð minnir mig væri undurstaðan til að geta lifað. Og þegar maturinn er bara eftir eins og hjá mér þá er það á hreinu að kaffið (sem ég skil sem mat) er bara þrælhollt og bráðnauðsynlegt. Þessir hollendingar eri bara að grafa undan heilsu íslendinga vegna Icesave En ég gæti trúað að stórsnýtingar væru ekki hollar.Kært kvödd
mbl.is Kaffi, kynlíf og snýtur hættuleg heilsunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"sumir"

Það er með hreinum endemum hvað sumir XD menn eru viðkvæmir gagnvart eftirliti með umsýslu peninga. Sumir þeirra ættu kannske að líta sér nær hvernig eftirlit sumra nákomna með fg sýslu brást algerlega og jafnvel af sumum talið orsök hrunsins. Og það er kannske von að sumir vilji ekkert eftirlit til að geta tekið við "gjöfum" frá sumum til að halda í sæti á sumum stöðum. Kært kvödd
mbl.is Hljómar eins og lýsingar á Stasi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"svona stórglæsilegar konur "

Ég myndu nú ekki vera að flýta mér við að semja með svona stórglæsilegar konur eins og sjást á myndinni í samninganefndunum. Já já ég veit ekki snerta bara skoða, Kært kvödd
mbl.is Bjartsýnn á að samningar náist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Þarna lærðu "

Þarna lærðu Stýrimannaskólanemendur "íþróttir" á sínum tíma. Eða þannig Kært kvödd
mbl.is Gamalt íþróttahús friðað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"og þeir sem minna mega sín"

Eldriborgarar, öryrkjar og þeir sem minna mega sín hafa fundið illilega fyrir menningunni undanfarið og ekki sést einusinni roða fyrir sólini hvað það varðar. Og ekki lýsa menningarvitarnir í því dimmviðri.Kært kvödd 
mbl.is Nýir tímar í menningarsögunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Er nú ekki nóg helv.... "

Er nú ekki nóg helv.... pappirssnifsafokið um allt. Þetta stendur í fréttinni "sem farþegar geta annað hvort lesið á meðan ferðalaginu stendur eða tekið með sér heim" en gleymdist að bæta við " eða hent þegar úr vagninum er komið" Kært kvödd
mbl.is Frí blöð í strætó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"En þurfa kannske"

Ég samfagna Akureyringum. En þurfa kannske Vestmanneyingar að fara huga betur að sínum málum í kjölfarið?? Kært kvödd
mbl.is Fagnar kaupum Samherja á starfsemi Brims
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

" hrynja skrautfjaðirnar af"

Ja hérna Þær eru að hrynja skrautfjaðirnar af þeirrar tæru. Er  maðurinn ekki á "listamannalaunum" Sagði ekki Voltaire að: "Eru stjórnmál annað en sú list að kunna að ljúga á réttum tíma" 

Og segir ekki Biblían "verður er verkamaðurinn launa sinna" Það er samhljómur í þessu. Það væri gaman að vita hvað"við" greiðum þessum manni í laun samtals fyrir að sitja með hönd undir kinn hálfsofandi á samkundunni við Austurvöll.

Og ætli Jóni Bjarna sé ekki skítsama um þennan "flokkaflakkara" Kært kvödd


mbl.is Styður ekki Jón sem ráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"fyrir ódæðið"

Ja hann valdi sér staðinn fyrir ódæðið. Mér finnst satt að segja þeir sem stjórna í húsi spölkorn frá séu að fremja samnefnt ódæði á þjóðinni. Allavega þeim sem minna mega sín. Kært kvödd
mbl.is Reyndi að nauðga stúlku á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"tilgangsleysi stjórnmálanna"

Þetta sýnir tilgangsleysi stjórnmálanna nú meir en margt annað. Meiningarlaust skítkast á báða bóga. Ef einhver smávirðing fyrir þessum furðufuglum á þessu svoköluðu alþingi hefði verið einhverstaðar fyrir hendi,  þá væri ýmislegt sem þessi frú sem fer fyrir þeirri tæru hefur látið sér um mun fara:"ekki boðlegt í sölum" fyrrgreindar samkundu. Skítkast hver í annan og skotgrafarhernaður eru aðalsmerki títtnefndar samkundu. Enda kemur ekkert að viti frá henni allavega nú um stundir Kært kvödd
mbl.is Ekki boðlegt í sölum Alþingis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"tregara en tárum taki "

Það er eiginlega tregara en tárum taki þegar glæsileg ungmenni falla á vigvelli eiturlyfjanna. Og líka er það sárgrætilegt að ekki skuli nást í morðinga þessarar fallegu stúlku.

 

Þó að einhverjir sendlar séu skotnir öðru hvoru nást höfuðpaurarnir sennilega aldrei. Og yfirleitt eru þeir sem nást þrælar þessara manna. Sem þeir eru búnir að ná tangarhaldi á í gegn um eiturlyfin, Þessir andsk.... eru slægari en svo að jafnvel sendlarnir hafa ekki hugmynd um hverir þeir eru.

 

Og ég er þess fullviss að í hópi þeirra eru jafnvel menn  úr heimi þeirrar hroðalegu peningagræðgi sem við erum farin að þekkja úr svokölluðu "viðskiftalífi"

Menn sem svífast einskis til að verða ríkari en þeir eru. Ég held að "peningagræðgin" virði engin landamæri. Einn dáinn einstaklingur á móti tugmiljóna gróða hafi lítið að segja í það gin Verið kært kvödd


mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 536784

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband